Áskrifendatapið sem streymisveitan upplifði á öðrum ársfjórðungi er sögð sú stærsta í sögu fyrirtækisins en búist hafi verið við meira tapi. Brotthvarf áskrifenda á fyrsta ársfjórðungi þessa árs sagði Netflix hafa verið meðal annars vegna stríðsins í Úkraínu og þeirrar staðreyndar að fólk deili lykilorðum að reikningum sín á milli.
New York Times greina frá því að streymisveitan hafi bætt við sig 2,4 milljónum áskrifenda á þriðja ársfjórðungi og stæri sig því af 223 milljónum áskrifenda. Meirihluti nýju áskrifenda Netflix komi ekki frá Bandaríkjunum. Samkvæmt Wall Street Journal býst streymisveitan við því að bæta við sig 4,5 milljónum áskrifenda á fjórða ársfjórðungi þessa árs.
Gróði fyrirtækisins á þriðja ársfjórðungnum hafi verið 1,4 milljarðar Bandaríkjadala eða 206,3 milljarðar íslenskra króna.
Miklar sviptingar virðast á næsta leyti hjá fyrirtækinu þar sem það hefur ákveðið að byrja að sýna áskrifendum sínum auglýsingar. Ekki munu allir þurfa að horfa á þær en boðið verði upp á ódýrari áskriftarleið þar sem auglýsingar verði sýndar. Nýja áskriftarleiðin muni kosta áskrifendur 6,99 Bandaríkjadali eða 1.024 íslenskar krónur, þess má geta að dýrasta áskriftarleiðin kostar 19,99 Bandaríkjadali sem eru 2.930 krónur.
Ódýrasta áskrifarleiðin verður til þess að byrja með aðeins aðgengilg í tólf löndum en það eru Bandaríkin, Bretland, Ástralía, Frakkland, Japan, Mexíkó, Spánn, Kórea, Brasilía, Kanada og Þýskaland.