Það mátti heyra saumnál detta í Vetrargarðinum í Smáralind þann 16. janúar 2004, þegar keppendur og áhorfendur biðu þess í ofvæni að þeir Simmi og Jói myndu tilkynna hver yrði fyrsta Idolstjarna Íslands.
Keppendurnir þrír sem eftir stóðu, Kalli Bjarni, Anna Katrín og Jón Sigurðsson, héldu þétt utan um hvert annað á meðan þau biðu úrslitanna.
„Ég man nákvæmlega eftir augnablikinu þegar nafnið mitt var kallað. Þetta var alveg ólýsanleg tilfinning,“ segir Kalli Bjarni, fyrsta Idolstjarna okkar Íslendinga.
„Skrítin tilfinning, því þetta gerðist svo hratt“
Keppendur Idolsins urðu sannkallaðar stjörnur hér á landi á þessum tíma. Sjálfur segist Kalli Bjarni þó ekki hafa fundið fyrir frægðinni fyrr en eftir keppnina.
„Þegar maður er í svona keppni þá er maður einhvern veginn ekki að hugsa um neitt annað en bara það að standa sig vel í næsta þætti.“
Það var svo ekki fyrr en hann var staddur í Kringlunni skömmu eftir keppnina, að hann áttaði sig á því að líf hans hefði breyst, því allt í einu störðu allir á hann.
„Ég var nýbúinn að borða pulsu og ég hugsaði með mér að ég hlyti að vera búinn að sulla remúlaði yfir mig allan. En þá rann það upp fyrir mér að það vissu bara allir hver ég væri. Það var mjög skrítin tilfinning því þetta gerðist svo hratt.“
Níu gigg á einni helgi
Það varð fljótt mikið að gera hjá Kalla Bjarna. Þegar mest lét spilaði hann á níu stöðum á einni helgi. Segir hann það hafa verið allt of mikið.
„Ég týndist náttúrlega svolítið eftir þetta,“ segir Kalli sem villtist af braut um tíma og komst í kast við lögin. Í dag hefur hann þó afplánað sinn dóm og segist hann vera kominn í gott jafnvægi og er sáttur við sjálfan sig.
Sigurjakkanum var stolið
Það er erfitt að gleyma rauða og hvíta blómajakkanum sem Kalli Bjarni klæddist í úrslitaþætti Idolsins. Eftir keppnina var jakkanum komið fyrir á Hard Rock, sem þá var í Kringlunni.
„Síðan hætti Hard Rock og þá fór jakkinn á einhvern vergang. Það er búið að ganga ýmislegt á síðan þá. Það er búið að stela honum einu sinni. Þegar ég ætlaði að vera í honum í Ghetto Betur þáttunum á Stöð 2, þá hafði hann bara verið tekinn ófrjálsri hendi.“
Skömmu síðar fékk Kalli svo símtal þess efnis að einhver aðili hefði sést í jakkanum á Akureyri. „Sá aðili var bara rifinn úr jakkanum og honum skilað til mín. Síðan þá hef ég passað vel upp á hann.“
Gott að finna fiðringinn aftur
Það var svo sannarlega tilefni til að dusta rykið af sigurjakkanum þegar Kalli Bjarni mætti sem leynigestur á Idol árshátíð Sýnar nú í október. Þá hafði hann ekki komið fram í jakkanum í þó nokkur ár. Í ofanálag flutti hann Idol smellinn Við lifum aðeins einu sinni og sigurlagið Mustang Sally og var um sannkallað afturhvarf til fortíðar að ræða.
„Það skapast alltaf einhver mögnuð stemning þegar ég tek þessi lög. Það gaf mér líka alveg virkilega mikið að stíga á svið og finna aftur fiðringinn sem maður fær áður en maður stígur á svið. Þetta kveikti alveg í mér aftur.“

Kominn í jafnvægi og einbeitir sér að tónlistinni
Kalli, sem hefur starfað lengst af sem sjómaður, er nú kominn í land til þess að einbeita sér að fjölskyldunni og tónlistinni.
„Það hefur safnast upp alveg hellingur af frumsömdu efni í gegnum allan blúsinn og alla gleðina. Mér hefur einhvern veginn aldrei fundist vera rétta augnablikið til að gefa þetta út. En nú er ég loksins kominn í gott jafnvægi og er tilbúinn til þess að senda þetta frá mér.“
Kalli Bjarni gaf síðast út lagið Faces árið 2020. Það lag vann hann með tónlistarmanninum Vigni Snæ, sem Kalli kynntist einmitt í gegnum Idol ævintýrið.
„Þú hefur einn séns og þarft að gefa allt í þetta“
Kalli segist vera spenntur að sjá hver muni feta í hans fótspor sem sigurvegari fimmtu þáttaraðar Idolsins sem fer af stað á Stöð 2 þann 25. nóvember næstkomandi.
„Það eru næstum því tveir áratugir síðan ég sigraði þessa keppni. Þannig þetta er algjörlega nýtt blóð sem er að fara taka þátt í þessu núna. Það verður áhugavert að sjá hvað þessi kynslóð hefur fram að færa.“
En hvaða ráð getur Kalli gefið Idol keppendunum í ár?
„Að gefa allt í þetta. Þegar ég fór í prufurnar vildi ég frekar „die trying“ heldur en að vera með einhverja eftirsjá síðar meir. Þú hefur einn séns og þú þarft bara að gefa allt í þetta.“
Eða eins og Kalli Bjarni söng svo eftirminnilega í Vetrargarðinum fyrir átján árum síðan, þá er:
„Um að gera að nýta hvert tækifæri sem best.“

Idol verður á Stöð 2 á föstudagskvöldum í vetur. Fleiri hundruð söngvarar spreyttu sig í áheyrnaprufunum en að lokum mun einn standa uppi sem sigurvegari. Fyrsti þáttur fer í loftið föstudagskvöldið 25. nóvember.