Stórleikur Gísla Þorgeirs dugði ekki til Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 9. nóvember 2022 21:45 Gísli Þorgeir átti frábæran leik. Twitter@SCMagdeburg Þýskalandsmeistararnir í Magdeburg náðu aðeins jafntefli á heimavelli gegn Rhein Neckar Löwen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Þá vann Melsungen góðan sex marka sigur á Göppingen á útivelli.
Magdeburg tapaði naumlega fyrir danska liðinu GOG í Meistaradeild Evrópu í vikunni en hafði verið á góðu skriði heima fyrir. Liðið lék vel á köflum í kvöld og var til að mynda tveimur mörkum yfir í hálfleik. Þegar líða fór á síðari hálfleikinn virtist hins vegar sem gestirnir myndu hirða sigurinn en Löwen leiddi með tveimur mörkum þegar skammt var til leiksloka. Meistararnir skoruðu hins vegar síðustu tvö mörk leiksins og náðu að bjarga stigi, lokatölur 32-32. Gísli Þorgeir Kristjánsson var magnaður í liði Magdeburg. Hann skoraði sex mörk og gaf þrjár stoðsendingar. Ómari Ingi Magnússon skoraði þrjú og gaf eina stoðsendingu. Melsungen vann Göppingen 29-23 og segja má að sigurinn hafi að miklu leyti verið Íslendingum liðsins að þakka. Elvar Örn Jónsson skoraði fjögur mörk og gaf tvær stoðsendingar. Þá skoraði Arnar Freyr Arnarsson þrjú mörk ásamt því að gefa eina stoðsendingu. Ljónin í Löwen eru í 2. sæti deildarinnar með 17 stig eftir 11 leiki. Magdeburg er í 4. sæti með 15 stig en liðið hefur aðeins leikið 9 leiki. Melsungen er svo í 9. sæti með 12 stig að loknum 11 leikjum.
Handbolti Þýski handboltinn Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti „Eins og fjölskylda í sólarlandaferð“ Fótbolti Fleiri fréttir Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Sjá meira