Skoðun

Dofri bjargar borginni

Arnar Sigurðsson og Elías Blöndal Guðjónsson skrifa

Nýverið ákváðu hinar opinberu stofnanir Orkuveita Reykjavíkur, HS Orka og Landsvirkjun að gera upp gufuborinn Dofra fyrir 36 milljónir. Gufuborinn er frá árinu 1957 en hann boraði síðustu holuna 1991.

Borinn á að vera til sýnis í Elliðaárstöð sem Orkuveita Reykjavíkur hyggst gera upp fyrir 800 milljónir að auki. Líklega er jarðbor sem safngripur einhver undarlegasta hugmynd á þessu sviði.

Í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur segir:

,,Eftir að ljóst varð að Rafstöðinni yrði ekki komið í gang að nýju, nema með fyrirsjáanlegum eilífum taprekstri, tókum við til óspilltra málanna. Hugmyndasamkeppni var haldin, unnið úr vinningstillögunni og spjallað og fundað með fólkinu sem nýtir sér dalinn og þeim sem gætu vel hugsað sér að nýta hann sér til lífsbótar.”

Að borgarstjórn setji taprekstur fyrir sig er auðvitað nýlunda enda hefur tap verið rauður þráður í öllum rekstri borgarinnar. En niðurstaðan er sem sagt sú að það að láta virkjun framleiða rafmagn er tap en að eyða 800 milljónum í safn er þá væntanlega hagnaðardrifin starfsemi. Því miður var hins vegar ekkert ,,spjallað og fundað” með fólkinu sem nýtir sér heitt vatn til húshitunar og því engar nýjar borholur á teikniborðinu til að mæta vaxandi þörf. Sömuleiðis var ekkert fundað og spjallað um hvort fólk vildi fóta sig á hálum gangstéttum borgarinnar. Raunar verður að taka tillit til þess að borgarfulltrúar hafa verið uppteknir við að funda um kaup á ljósleiðara, væntanlega í framhaldi af spjalli og fundum með fólkinu sem notar fjarskipti sér til ,,lífsbótar”.

Stjórnendum Orkuveitunnar er sjálfsagt ekki kunnugt um að borgarsjóður er rekinn með mesta halla frá upphafi mælinga. Vegna lélegs árangurs í fjármálalæsi hefur þetta dótturfélag Reykjavíkurborgar ákveðið að kaupa fjarskiptakerfi fyrir 3 milljarða með lánsfé.

Á meðan dótturfélag borgarinnar eyðir um efni fram gengur snjómokstur hægt. Ekki skal þó örvænta um það efni því stýrihópur um endurskoðun vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar er að störfum. Hann átti reyndar að skila tillögum að breytingum fyrir 2. nóvember sl. en vegna anna við umfjöllun um skýrslu með greiningu með aðferðafræði kynjaðrar fjárhags- og starfsáætlunar fyrir bílastæðasjóð tókst ekki að ljúka verkinu áður en fyrsti snjórinn féll nú í vetur.

Á sama tíma hafa svo verið lagðar fram tillögur í borgarstjórn um að spara skuli 100 milljónir í mötuneytiskostnaði í leikskólum með því að elda hafragrautinn miðlægt og keyra út. Einnig á að stytta opnunartíma félagsmiðstöðva fyrir unglinga um 15 mínútur. Unglingarnir geta þá kannski skellt sér í dalinn og skoðað gufuborinn Dofra. Ef þeir komast leiðar sinnar.

Höfundar búa í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×