Viðskipti innlent

Ís­land hafði enn á ný betur í nafna­deilunni við Iceland Foods

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ísland og breska verslunarkeðjan Iceland hafa átt í deilum um notkun á orðinu ICELAND.
Ísland og breska verslunarkeðjan Iceland hafa átt í deilum um notkun á orðinu ICELAND. Vísir

Fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins hefur vísað frá áfrýjun Iceland Foods í deilu verslunarkeðjunnar og íslenskra stjórnvalda vegna vörumerkjaskráningar á orðinu Iceland. Skráning verslunarkeðjunnar er því ógild.

Hin fjölskipaða áfrýjunarnefnd kvað upp úrskurð sinn í síðustu viku. Í afar stuttu máli snerist deilan um það hvort að fyrirtæki geti slegið eign sinni á heiti fullvalda ríkis, í þessu tilviki enska orðið Iceland.

Ísland hafði betur í deilunni á fyrri stigum málsins árið 2019. Iceland Foods áfrýjaði hins vegar niðurstöðunni.

Ákveðið var að halda munnlegan málflutning vegna málsins fyrir hinni fjölskipuðu áfrýjunarnefnd, sem er afar sjaldgæft, og til marks um hversu mikilvægt það er talið. Vísir hefur fylgst grannt með gangi málsins.

Það var lögmaðurinn Ásdís Magnúsdóttir, frá Árnason Faktor, sem flutti málið fyrir hönd Íslands.

„Við erum hér til að sækja vernd fyrir nafnið á landinu okkar,“ sagði hún þegar málið var tekið fyrir í september síðastliðnum.

Sem fyrr segir var áfrýjuninni vísað frá hinni fjölskipuðu áfrýjunarnefnd og stendur því úrskurðurinn frá 2019 óhaggaður. Það þýðir að vörumerkjaskráning Iceland Foods  á orðmerkinu Iceland í Evrópusambandinu er ógild og að skráningarnar skuli felldar úr gildi.

Niðurstöðu áfrýjunarnefndarinnar er hægt að áfrýja til Evrópudómstólsins, sem myndi þá taka lokaákvörðun í málinu. Niðurstöðuna má lesa hér og hér.


Tengdar fréttir

Til marks um hve mikil­vægt Iceland-málið er talið vera

Það að fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins hlýði á munnlegan málflutning í deilu íslenskra yfirvaldra og bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods um yfirráð yfir orðinu Iceland er talið til marks um hversu mikilvægt málið er talið vera. Vonast er til þess að niðurstaðan verði fordæmisgefandi.

Deila Íslands og Iceland Foods brýtur blað

Fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins hefur fyrirskipað að haldinn verði munnlegur málflutningur í deilu íslenskra yfirvalda og bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods um yfirráð yfir orðinu Iceland. Deilan brýtur blað í sögu hinnar fjölskipuðu áfrýjunarnefndar þar sem þetta verður í fyrsta sinn sem nefndin hlýðir á munnlegan málflutning í áfrýjunarmáli.

Er hægt að eignast vörumerkið Jamaíka og selja ís undir því nafni?

Eitt af þeim álitaefnum sem fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) þarf að taka afstöðu til í deilu Íslands og verslunarkeðjunnar Iceland Foods er hvort að ásættanlegt sé að selja banana undir nafni Íslands eða ís undir nafni Jamaíku.

Deilu Íslands og Iceland Foods ekki lokið

Deilu íslenskra yfirvalda og bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods um yfirráð yfir orðinu Iceland er ekki lokið. Fjölskipuð áfrýjunarnefnd Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) er með málið til umfjöllunar eftir að breska verslunarkeðjan áfrýjaði á síðasta ári úrskurði sem féll Íslandi í vil árið 2019.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×