Lakers hefur átt einkar erfitt uppdráttar á tímabilinu og þar sem Anthony Davis er frá vegna meiðsla þar LeBron að spila nær óaðfinnanlega ætli liðið sér að vinna leiki. það er nákvæmlega það sem hann gerði í nótt.
Atlanta byrjaði leikinn betur og leiddi með 10 stigum að loknum fyrsta leikhluta. Framan af öðrum leikhluta var ekkert sem benti til þess að Lakers myndi landa sigri en LeBron og félögum tókst að minnka muninn niður í fimm stig rétt áður en flautað var til hálfleiks.
Eftir það var leikurinn eign LeBron, hann óð að körfunni aftur og aftur og aftur. Á endanum vann Lakers níu stiga sigur, lokatölur 121-130.
LeBron James spilaði 40 mínútur í leiknum, mest allra hjá Lakers. Hann skoraði 47 stig, tók 10 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Næst stigahæstur var Thomas Bryant með 19 stig en hann tók einnig 17 fráköst.
47 PTS
— NBA (@NBA) December 31, 2022
10 REB
9 AST
Lakers W
LeBron showed out on his 38th birthday. pic.twitter.com/33lO5BnVpo
Hjá Atlanta skoraði Trae Young 29 stig og gaf 8 stoðsendingar á meðan Dejounte Murray skoraði 20 stig, gaf 9 stoðsendingar og tók 7 fráköst.
Giannis Antetokounmpo bauð líka upp á sannkallaðan stórleik í níu stiga sigri Milwaukee Bucks á Minnesota Timberwolves, 123-114. Giannis skoraði 43 stig, tók 20 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Um er að ræða annan leikinn í röð þar sem hann skorar 40 stig eða meira og tekur 20 fráköst eða meira.
Þar á eftir kom Bobby Portis með 22 stig og 14 fráköst. Hjá Timberwolves skoraði Anthony Edwards 30 stig og tók 10 fráköst.
43 PTS
— NBA (@NBA) December 31, 2022
20 REB
5 AST
Giannis is the first player to drop back-to-back 40/20 games since 1982. pic.twitter.com/m1WT6xUjPu
New Orleands Pelicans, topplið Vesturdeildar, vann góðan sigur á Philadelphia 76ers, 127-116. Það virðist litlu skipta hvort Brandon Ingram sé með eða ekki þegar CJ McCollum og Zion Williamson spila eins og þeir gerðu í nótt.
McCollum skoraði 42 stig og Zion 36 stig. Hjá 76ers var Joel Embiid með 37 stig á meðan James Harden skoraði 20 og gaf 10 stoðsendingar.
42 PTS
— NBA (@NBA) December 31, 2022
4 REB
5 AST
11 3PM (franchise-record, career-high)
CJ McCollum went OFF in the Pelicans win. pic.twitter.com/s09E7DdoQr
Nikola Jokić var með þrefalda tvennu í sigri Denver Nuggets á Miami Heat, 124-119. Skoraði hann 19 stig, gaf 12 stoðsendingar og tók 12 fráköst. Kentavious Caldwell-Pope var hins vegar stigahæstur í liði Nuggets með 20 stig. Hjá Heat skoraði Tyler Herro mest eða 26 stig.
CrunchTime reacts to the Joker's 84th career triple-double
— NBA (@NBA) December 31, 2022
Watch live on the NBA App:https://t.co/HsnDfSqCoV pic.twitter.com/rLMKh8I0Rm
Gott gengi Sacramento Kings heldur áfram en liðið vann Utah Jazz með minnsta mun, lokatölur 126-125. Kevin Huerter var stigahæstur hjá Kings með 30 stig, þar á eftir kom Domantas Sabonis með 28 stig og 11 fráköst á meðan De‘Aaron Fox skoraði 24 stig og gaf 10 stoðsendingar. Hjá Jazz skoraði Lauri Markkanen 36 stig og Jordan Clarkson 25 stig.
30 PTS
— NBA (@NBA) December 31, 2022
6 threes
Game-winner
Kevin Huerter showed out tonight in Sacramento. pic.twitter.com/nGIPXA70Zz
Meistarar Golden State Warriors unnu Portland Trail Blazers þökk sé frábærum frammistöðum Jordan Poole og Klay Thompson, lokatölur 118-112. Poole skoraði 41 stig og Klay 31 stig. Hjá Portland var Damian Lillard stigahæstur með 34 stig.
Jordan Poole in the Warriors W:
— NBA (@NBA) December 31, 2022
41 PTS
5 REB
6 AST
5 3PM pic.twitter.com/xAnHl0rKZ7
Önnur úrslit
Orlando Magic 100-119 Washington Wizards
Toronto Raptors 113-104 Phoenix Suns
Chicago Bulls 132-118 Detroit Pistons
Updated standings are here
— NBA (@NBA) December 31, 2022
https://t.co/6FlAlihMep pic.twitter.com/KIZFnHd1Cl