Skoðun

Máttur örkær­leika í dag­legu lífi

Ingrid Kuhlman skrifar

Örkærleikur („micro kindness“) felur í sér litlar einlægar og sjálfviljugar athafnir og viðhorf sem sýna öðrum að við kunnum að meta þá. Örkærleikur getur lífgað upp á daginn hjá öðrum og stuðlað að jákvæðum samskiptum. Kærleikurinn getur skapað svokölluð gáruáhrif og fengið fólk til að vilja miðla góðvildinni til annarra. Örkærleikur er leið til að rækta með sér góðvild og samkennd í eigin lífi og sjá heiminn í jákvæðara ljósi. Þegar við sýnum öðrum góðvild og kærleik getur það aukið hamingjutilfinningar okkar, dregið úr streitu og skapað tilgang. Örkærleikur getur þannig haft jákvæð áhrif bæði á aðra en ekki síst á okkur sjálf. Það góða er að það kostar okkur ekkert að sýna kærleika.

Hér eru nokkur dæmi um örkærleik í garð annarra:

  • Að halda hurðinni opinni fyrir einhvern.
  • Að brosa til ókunnugra.
  • Að heilsa ókunnugu fólki sem þú mætir í morgungöngunni.
  • Að hvetja samstarfsmann áfram.
  • Að tína og henda rusli í göngutúr.
  • Að gefa ókunnugum eða vini hrós.
  • Að skrifa þakkarbréf eða senda einhverjum jákvæð skilaboð.
  • Að hleypa einhverjum fram fyrir þig í biðröðinni.
  • Að gefa þér tíma til að tala við einhvern á meðan þú bíður í röðinni.
  • Að halda á innkaupapokum fyrir einhvern.
  • Að greiða fyrir kaffi eða máltíð einhvers.
  • Að gefa til góðgerðarmála eða málefnis sem er þér mikilvægt.
  • Að skilja eftir jákvæða umsögn á vefsíðu fyrirtækis um þjónustu sem þú fékkst.
Umsplash/Andrea Tummons

Örkærleikur varðar einnig hugsanir okkar

Örkærleikur hefur einnig að gera með hugsanir okkar. Á hverjum degi túlkum við gjörðir annarra og þær túlkanir fela oft í sér mat á hvötum annarra. Segjum að afgreiðslumaður á kaffihúsi sé dálítið pirraður og óvingjarnlegur. Við vitum ekki alveg ástæðuna fyrir þessu viðhorfi. Það gæti stafað af áhyggjum af veiku barni, það gæti líka verið vegna þess að afgreiðslumaðurinn er í raun og veru ekki mjög þjónustulundaður. Í slíkum aðstæðum er gott að velja vinsamlega viðhorfið, að hann sé annars hugar og stressaður út af einhverju í lífi hans. Kærleiksríkt viðhorf í hans garð mun ekki aðeins koma í veg fyrir að þú bregðist við með pirringi heldur getur góðvild þín, á einhvern lítinn hátt, haft jákvæð áhrif á líðan afgreiðslumannsins.

Kærleikur í eigin garð

Við höfum tilhneigingu til að vera frekar hörð við okkur sjálf. Oft erum við okkar versti gagnrýnandi. Við þurfum því einnig að sýna kærleika í eigin garð, t.d. með því að fyrirgefa sjálfum okkur og sýna sjálfum okkur mildi, umhyggju og skilning.

Það bjóðast óteljandi tækifæri á hverjum degi til að sýna góðvild. Fylgistu með hversu oft þú sýnir kærleik og fjölgaðu þeim augnablikum smám saman. Með tímanum verður kærleikurinn að vana. Með því að sýna örkærleik í daglegu lífi okkar getum við gert heiminn að betri stað.

Höfundur er leiðbeinandi og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun og með meistaragráðu í hagnýtri jákvæðri sálfræði (MAPP) frá Buckinghamshire New University.




Skoðun

Sjá meira


×