Körfubolti

Martin með tólf stig í sigri Valencia

Aron Guðmundsson skrifar
Martin í leik með Valencia
Martin í leik með Valencia Visir/Getty

Ís­lenski at­vinnu- og lands­liðs­maðurinn í körfu­bolta, Martin Her­manns­son skoraði 12 stig fyrir lið sitt Valencia á Spáni er það bar sigur­orðið af Bil­bao í ACB deildinni.

Martin spilaði alls um 23 mínútur í leiknum sem endaði með sjö stiga sigri Valencia, 95-88.

Ís­lendingurinn knái náði á sínum mínútum að skora 12 stig, taka tvö frá­köst og gefa fjórar stoð­sendingar.

Valencia er með 30 stig eftir leik kvöldsins í 8. sæti ACB deildarinnar sem er jafn­framt efsta deild á Spáni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×