Hafdís staðfestir brottför frá Fram Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. apríl 2023 13:31 Hafdís Renötudóttir ver ekki mark Fram á næsta tímabili. vísir/hulda margrét Hafdís Renötudóttir, landsliðsmarkvörður í handbolta, er á förum frá Fram. Hún hefur verið orðuð við Val.
Í gær greindi handbolti.is frá því að Hafdís væri á leið til Vals og hefði náð samkomulagi við félagið. Í skilaboðum til Vísis í dag staðfesti Hafdís að hún myndi yfirgefa Fram fyrir næsta tímabil og gerði það með miklum trega. Hún sagði að framhaldið hjá sér væri óljóst en hún myndi halda alltaf áfram í handbolta. Hafdís gekk aftur til liðs við Fram 2019 eftir dvöl hjá SønderjyskE í Danmörku og Sola í Noregi. Þá lék hún með Stjörnunni áður en hún hélt utan. Miklar breytingar verða hjá Fram fyrir næsta tímabil. Einar Jónsson tekur við liðinu af Stefáni Arnarsyni sem hættir eftir níu ára starf. Auk Hafdísar er ljóst að Perla Ruth Albertsdóttir og Kristrún Steinþórsdóttir yfirgefa félagið en þær hafa samið við Selfoss. Fram hefur samið við unglingalandsliðsmarkvörðinn Ethel Gyðu Bjarnasen en hún kemur frá HK. Markverðirnir Ingunn María Brynjarsdóttir og Soffía Steingrímsdóttir eru einnig samningsbundnar Fram. Sú síðarnefnda lék sem lánsmaður með Gróttu seinni hluta tímabilsins. Fram lenti í 4. sæti Olís-deildarinnar í vetur og féll úr leik fyrir Haukum, 2-0, í sex liða úrslitum úrslitakeppninnar.
Olís-deild kvenna Fram Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Fótbolti Fleiri fréttir Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Sjá meira