Viðsnúningur í milljarðadeilu ALC og Isavia Árni Sæberg skrifar 12. maí 2023 16:57 Málið snerist um kyrrsetningu á flugvél Wow air í kjölfar falls flugfélagsins. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur snúið við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að flugvélaleigan ALC og íslenska ríkið skyldu greiða Isavia 2,5 milljarða króna í skaðabætur vegna kyrrsetningar á flugvél sem hið sáluga Wow air hafði haft á leigu.
Málið má rekja til deilna Isavia og ALC um yfirráð yfir Airbus þotu Wow Air. Isavia hafði kyrrsett þotuna árið 2019 vegna skulda flugfélagsins Wow air sem varð gjaldþrota sama ár. ALC, sem eigandi flugvélarinnar, taldi hins vegar að Isavia mætti ekki halda vélinni sem tryggingu vegna gjaldþrots annars félags, Wow air. Málið rataði fyrir fyrir dómstóla, enda voru gríðarlegi fjármunir í húfi. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness árið 2019 fékkst sú niðurstaða í málið að Isavia hafi einungis verið heimilt að kyrrsetja umrædda flugvél vegna greiðslna sem tengdust vélinni sjálfri, ekki heildarskuldar Wow air við Isavia. Þessari niðurstöði vildi Isavia ekki una og að endingu fór málið alla leið til Hæstaréttar. Í héraðsdóminum var hins vegar tekið fram að málskot frestaði ekki réttaráhrifum dómsins. Því ákvað ALC að greiða upp allar skuldir sem tengdust vélinni og fljúga henni af landi brott. Töldu dómarann hafa komist að rangri niðurstöðu Isavia taldi héraðsdómarann hafa valdið sér tjóni með því að hafa komist að efnislega rangri niðurstöðu í málinu, sem hafi gert ALC kleift að koma flugvélinni úr landi. Isavia sætti sig ekki við þessa niðurstöðu og stefndi íslenska ríkinu og ALC til greiðslu 2,2 milljarða króna í skaðabætur vegna málsins. Isavia taldi að með úrskurði sínum hafi dómari við Héraðsdóm Reykjaness sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi við úrlausn málsins. Félagið hafi verið svipt tryggingu fyrir umræddri skuld. Í Héraðsdómi Reykjavíkur var fallist á málatilbúnað Isavia og ALC og ríkið voru dæmd til að greiða 2,5 milljarða króna óskipt. Íþyngjandi ákvæði beri að túlka þröngt ALC og ríkið áfrýjuðu þessari niðurstöðu héraðsdóms til Landsréttar. Í dómi Landsréttar, sem kveðinn var upp nú síðdegis, var rakið að við mat á því hvort umrædd aðfarargerð næði fram að ganga reyndi efnislega á lögskýringu og túlkun heimildar ákæðis laga um loftferðir til að aftra för loftfars af flugvelli vegna ógreiddra gjalda. Niðurstaða héraðsdómarans hefði byggt á þeim skilningi hans á ákvæðinu að heimilt væri að hamla för loftfars á meðan gjöld tengd viðkomandi loftfari væru ógreidd en ekki vegna annarra ógreiddra gjalda viðkomandi eiganda eða umráðamanns. Hefði hann því fallist á þá kröfu ALC að félagið fengi farþegaþotuna afhenta með beinni aðfarargerð eftir að það hafði greitt skuld Wow air hf. vegna hennar. Heimildin til þess að aftra för loftfars af flugvelli vegna ógreiddra gjalda samkvæmt ákvæðinu fæli í sér lögheimilaða greiðsluþvingun og varðaði fyrst og fremst áfallin gjöld þess loftfars sem í hlut ætti en tæki samkvæmt orðanna hljóðan einnig til „annarrar starfsemi hlutaðeigandi eiganda eða umráðanda loftfarsins.“ Þannig væri orðalag ákvæðisins að þessu leyti mjög opið og víðtækt og takmarkaði ekki hvaða starfsemi eða gjöld gætu legið til grundvallar, en lögskýringargögn veittu engar vísbendingar þar um. Þegar litið væri til þeirrar skerðingar á nýtingarrétti eiganda loftfarsins sem af stöðvun þess leiddi og þeirra fjárhagslegu hagsmuna sem í húfi væru af þeim sökum yrði að gera kröfu til þess að almennt væri fyrirsjáanlegt hvaða gjöld stöðvun loftfarsins væri ætlað að tryggja. Ákvæðið væri verulega íþyngjandi og við túlkun þess bæri að líta til eignarréttarákvæðis stjórnarskrárinnar. Yrði því að telja að við skýringu þess bæri að beita þrengjandi lögskýringu eins og héraðsdómarinn gerði í dómi sínum. Því kæmi í málinu hvorki til álita bótaábyrgð ALC, samkvæmt hlutlægri bótareglu laga um aðför, né bótaábyrgð ríkisins á grundvelli almennu sakarreglu bótaréttarins. Því voru báðir áfrýjendur sýknaðir af kröfum Isavia. Þá var Isavia sýknað af kröfum ALC í gagnsök, sem námu um 2,7 milljörðum króna. Málskostnaður var látinn niður falla.
WOW Air Fréttir af flugi Dómsmál Mest lesið Fara fram á lögbann á Isavia Viðskipti innlent Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei Atvinnulíf Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Viðskipti innlent Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Viðskipti innlent Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Viðskipti innlent Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Samstarf „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Viðskipti innlent Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Viðskipti innlent „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Fleiri fréttir Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Sjá meira