BBC skipað að mæta fyrir yfirrétt á Indlandi vegna heimildarmyndar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 22. maí 2023 10:14 Modi varð forsætisráðherra árið 2014. epa/Jagadeesh NV Yfirdómstóllinn í Delhi á Indlandi hefur fyrirskipað BBC að mæta fyrir dóm í meiðyrðamáli sem samtök höfðuðu á hendur breska ríkisútvarpinu vegna heimildarmyndar um framgöngu forsætisráðherrans Narendra Modi þega óeirðir brutust út í Gujarat árið 2002.
Samkvæmt Guardian var það ónefnd stofnun sem er ekki rekin í hagnaðrskyni sem höfðaði málið á hendur BBC en miðillinn er sakaður um að ófrægja orðspor Indlands, dómskerfið og forsætisráðherrann. Modi, sem árið 2002 var æðsti ráðherra Gujarat, hefur verið sakaður um að hafa gengið of skammt í því að stöðva óeirðirnar en hann var hreinsaður af öllum ásökunum í rannsókn sem hæstiréttur landsins fyrirskipaði. Að minnsta kosti þúsund manns létust í óeirðunum en aðgerðasinnar segja fjölda látinna nær tvö þúsund. Flestir látnu voru múslimar. Stjórnvöld á Indlandi hafa kallað heimildarmyndina, India: The Modi Question, „áróður“ og hindrað birtingu á myndinni og myndskeiðum úr henni á Indlandi. Indversk skattayfirvöld gerðu húsleitir á starfsstöðvum BBC í Delhi og Mumbai í febrúar síðastliðnum, eftir að myndin var sýnd. Modi hefur hafnað þeim ásökunum sem settar eru fram í heimildarmyndinni og BBC hafnað ásökunum stjórnvalda um hlutdrægni.
Indland Bretland Fjölmiðlar Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Innlent Fleiri fréttir Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Sjá meira