Kennari mátti ekki löðrunga barn eftir allt saman Árni Sæberg skrifar 26. maí 2023 17:54 Kennarinn starfaði við Dalvíkurskóla. Dalvíkurskóli Dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra um skaðabætur til handa konu, sem var rekin úr starfi grunnskólakennara fyrir að löðrunga þrettán ára stúlku, hefur verið snúið við í Landsrétti. Landsréttur telur háttsemi konunnar hafa falið í sér gróft brot í starfi sem heimilaði skólanum að segja henni fyrirvaralaust upp störfum.
Mál konunnar vakti mikla athygli þegar henni voru dæmdar alls átta milljónir króna í skaða- og miskabætur vegna ólögmætrar uppsagnar í febrúar í fyrra. Þrátt fyrir að óumdeilt væri að hún hefði löðrungað barnið í íþróttatíma við Dalvíkurskóla studdu bæði Kennarasamband Íslands og Félag grunnskólakennara við bakið á konunni. Í dómi Landsréttar segir að daginn sem umdeilt atvik átti sér stað hafi kennarinn verið með kennslustund utandyra fyrir drengi sem voru að spila fótbolta. Stúlkunni hafði þá af öðrum kennara verið vísað úr annarri kennslustund, sem fór fram innan dyra fyrir stúlkur, þar sem hún kom ekki með íþróttaföt í skólann. Stúlkan hafi fengið þau fyrirmæli frá þeim kennara að ganga ákveðinn hring í bænum í stað þess að vera viðstödd kennslustundina. Frekar en að gera það hafi nemandinn sest á grasflöt við fótboltavöllinn þar sem konan var að sinna kennslu. Að mati hennar hafi þessi viðvera truflað kennslustundina og bað hún nemandann því um að fara. Enduðu þau samskipti með þeim hætti að nemandinn gaf kennaranum kinnhest. Kennarinn svaraði í sömu mynt og gaf nemandanum kinnhest. Hann kvaðst hafa upplifað ógn af nemandanum og gerði ráð fyrir fleiri höggum enda hafi hún talið nemandann vera í „ham.“ Send í leyfi og loks rekin Atferli kennarans var kært til lögreglu og var kennarinn sendur í leyfi á meðan rannsókn málsins stóð. Málið var síðar fellt niður. Kennarinn hlaut mikinn stuðning samkennara sinna og tuttugu kennarar og starfsfólk við Dalvíkurskóla skrifuðu undir yfirlýsingu þar sem þau bentu á erfiðleika í skólastarfi og skeytingarleysi stjórnenda skólans. Kennaranum var veittur andmælaréttur en bæjaryfirvöld töldu brot kennarans gróft. Henni var fyrirvaralaust sagt upp skömmu síðar. Héraðsdómur taldi að ekki væri hægt að líta einangrað á kinnhestinn. Atvikið hafi ekki verið gróft brot í starfi sem gæti réttlætt fyrirvaralausan brottrekstur. Bæjaryfirvöld hafi því rekið kennarann með ólögmætum hætti. Lítill kraftur kinnhestsins hafði enga þýðingu Landsréttur féllst hinsvegar á málatilbúnað bæjaryfirvalda þess efnis að kinnhesturinn hefði falið í sér gróft brot í starfi. Í dómi Landsréttar kom fram að væri horft til nánar tilgreindra ákvæða laga um grunnskóla og reglugerðar um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum, um hvenær heimilt geti verið að beita líkamlegu inngripi gagnvart nemanda yrði, í ljósi óumdeildra atvika málsins, ekki fallist á að efni væru til að hnekkja því mati að háttsemi konunnar í umrætt sinn hefði falið í sér gróft brot á starfsskyldum hennar. Ekki hefði haft þýðingu í því sambandi þótt konan hefði borið því við að um ósjálfráð viðbrögð hefði verið að ræða af hennar hálfu og að kinnhesturinn hefði ekki verið fastur. Þá yrði ekki fallist á að efni væru til að hnekkja þeirri niðurstöðu sem óhjákvæmilega fælist í framangreindu mati bæjaryfirvalda, að viðvera kennarans áfram í skólanum kynni í ljósi atvika og eðli háttseminnar að vera skaðleg fyrir starfsemi hans. Þá féllst Landsréttur ekki á það að bæjaryfirvöld hefðu brotið gegn málmeðferðarreglum stjórnsýsluréttarins við töku ákvörðunar um fyrirvaralausa uppsögn konunnar. Því var Dalvíkurbyggð sýknuð af öllum kröfum konunnar. Málskostnaður fyrir Landsrétti var felldur niður og gjafsóknarkostnaður konunnar, ein milljón króna, greiðist úr ríkissjóði. Dóm Landsréttar má lesa í heild sinni hér.
Skóla - og menntamál Dómsmál Dalvíkurbyggð Börn og uppeldi Ofbeldi gegn börnum Grunnskólar Tengdar fréttir Kennari rekinn eftir stimpingar við nemanda og fær bætur Grunnskólakennara við Dalvíkurskóla hafa verið dæmdar átta milljónir í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Kennarinn var rekinn eftir að hafa lent í stimpingum við nemanda skólans. 17. febrúar 2022 22:10 Finnst þau hafa verið svo gott sem nafngreind eftir tilkynningu Kennarasambandsins Foreldrar fjórtán ára stúlku í Dalvíkurskóla, sem lenti í átökum við kennara skólans sem lyktaði með brottrekstri hans, gagnrýna Kennarasambandið fyrir að hafa svo gott sem nafngreint dóttur þeirra í tilkynningu um málið. Þau hafi neyðst til að segja sögu dóttur sinnar vegna óvæginnar umræðu. 21. febrúar 2022 10:06 Gagnrýna ummæli formannsins: „Að afsaka kennara sem beita börn ofbeldi er óásættanlegt“ Landssamtök foreldra lýsa yfir vonbrigðum með málflutning formanns Félags grunnskólakennara í máli kennara í Dalvík sem hlaut nýverið bætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Samtökin segja formanninn hafa tekið afstöðu með einhliða frásögn kennarans og varpa ábyrgðinni á foreldra barnsins. 22. febrúar 2022 20:03 Segja dóminn leggja sig fram við að réttlæta ofbeldi gegn barni Þrjú samtök sem beita sér fyrir velferð nemenda segja það reiðarslag að Héraðsdómur Norðurlands eystra hafi nýverið dæmt kennara sem sló til nemenda í vil. Þau segja orðfæri dómsins gildishlaðið og skora á dómstóla landsins að fylgja Barnasáttmálanum. 24. febrúar 2022 00:14 Mest lesið Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Innlent Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Innlent Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Innlent Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Innlent Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Innlent Tilkynnt um mann með sverð Innlent Rúta skíðlogar í Hafnarfirði Innlent „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Innlent Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Innlent „Ég hef aldrei heyrt aðra eins fyrirspurn á ævinni“ Innlent Fleiri fréttir Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Kjartan Atli leiðir Samfylkinguna í Garðabæ Heimsmarkaðsverð í hæstu hæðum, sannir aðdáendur Laufeyjar og harka í ESB umræðum Tilkynnt um mann með sverð Stöðvuðu stút með naglamottu „Ég hef aldrei heyrt aðra eins fyrirspurn á ævinni“ Fyrsta konan sem skipuð er yfirlögregluþjónn Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Rúta skíðlogar í Hafnarfirði Neita öll sök í Reykholtsmálinu Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Óveðrinu slotar í bili og átak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Kæra aftur útboð Vestmannaeyjabæjar á líkamsræktarstöð Enginn verði á biðlista eftir hjúkrunarrými eftir þrjú ár Bein útsending: Ný áætlun fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila Flestir telja veikindarétt og starfsöryggi ríkari hjá hinu opinbera Um 500 leituðu skjóls í fjöldahjálparstöð og á hótelum Aldrei séð flóð falla á þessum stað á átján ára ferli Guðmundur Ingi snýr aftur á þing í dag „Mjög mikill fjöldi sem við vorum að taka á móti“ Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Hundruð manns í fjöldahjálparstöðvum fyrir norðan: „Það var bara snælduvitlaust veður“ Eldur kviknaði í fjölbýli í Úlfarsárdal Þrír fluttir á slysadeild ofan af Hellisheiðinni eftir tvo árekstra Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Rúta út af og Þingvallavegi lokað Tvö snjóflóð skammt frá byggð í Siglufirði Sjá meira
Kennari rekinn eftir stimpingar við nemanda og fær bætur Grunnskólakennara við Dalvíkurskóla hafa verið dæmdar átta milljónir í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Kennarinn var rekinn eftir að hafa lent í stimpingum við nemanda skólans. 17. febrúar 2022 22:10
Finnst þau hafa verið svo gott sem nafngreind eftir tilkynningu Kennarasambandsins Foreldrar fjórtán ára stúlku í Dalvíkurskóla, sem lenti í átökum við kennara skólans sem lyktaði með brottrekstri hans, gagnrýna Kennarasambandið fyrir að hafa svo gott sem nafngreint dóttur þeirra í tilkynningu um málið. Þau hafi neyðst til að segja sögu dóttur sinnar vegna óvæginnar umræðu. 21. febrúar 2022 10:06
Gagnrýna ummæli formannsins: „Að afsaka kennara sem beita börn ofbeldi er óásættanlegt“ Landssamtök foreldra lýsa yfir vonbrigðum með málflutning formanns Félags grunnskólakennara í máli kennara í Dalvík sem hlaut nýverið bætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Samtökin segja formanninn hafa tekið afstöðu með einhliða frásögn kennarans og varpa ábyrgðinni á foreldra barnsins. 22. febrúar 2022 20:03
Segja dóminn leggja sig fram við að réttlæta ofbeldi gegn barni Þrjú samtök sem beita sér fyrir velferð nemenda segja það reiðarslag að Héraðsdómur Norðurlands eystra hafi nýverið dæmt kennara sem sló til nemenda í vil. Þau segja orðfæri dómsins gildishlaðið og skora á dómstóla landsins að fylgja Barnasáttmálanum. 24. febrúar 2022 00:14