Myndbönd: McGregor sendi lukkudýr Miami Heat á bráðamóttöku Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 11. júní 2023 07:00 Conor McGregor lét Burnie finna fyrir því. Samsett/Getty Images Segja má að skemmtiatriði í síðasta leik Miami Heat og Denver Nuggets sem innihélt UFC-bardagakappann Conor McGregor og lukkudýr Miami hafi farið úr böndunum. Lukkudýrið þurfti að fara á bráðamóttöku eftir högg frá McGregor.
Denver Nuggets eru einum sigri frá NBA-meistaratitlinum eftir góðan sigur í fjórða leik liðanna á aðfaranótt laugardags. Líkt og vani er í svo stórum leikjum í NBA-deildinni þá eru ýmis skemmtiatriði milli leikhluta og í auglýsingahléum. Eitt slíkt innihélt McGregor og Burnie, lukkudýr Miami. Atriðið virtist vera í þá átt að lukkudýrið vék sér upp að McGregor með boxhanska og vildi slást við þennan margrómaða UFC-bardagakappa. McGregor slær Burnie hins vegar í gólfið og lætur höggin dynja áður en lukkudýrið er dregið út af vellinum. pic.twitter.com/i1QsUSm6Nr https://t.co/VdKH9BcKeS— Ballislife.com (@Ballislife) June 10, 2023 Conor McGregor knocked out the Miami Heat mascot pic.twitter.com/86RutVZ9d9— Complex Sports (@ComplexSports) June 10, 2023 Hvort ofbeldi sé fyndið og slíkt atriði sé við hæfi á leik sem þessum verður ósagt látið en það virðist eitthvað hafa farið úr böndunum þar sem sá sem leikur Burnie endaði upp á bráðamóttöku. Fékk hann verkjalyf við sársaukanum en samkvæmt fréttum líður honum betur. Nuggets getur unnið sinn fyrsta NBA-meistaratitil með sigri á Miami Heat í fimmta leik liðanna á aðfaranótt þriðjudags. Útsending Stöðvar 2 Sport 2 hefst á miðnætti en leikurinn sjálfur 00.30.
Körfubolti Box NBA Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Íslenski boltinn Andrea býr hjá breskri fjölskyldu sem styður hana til sigurs Golf Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Þrjár opnunarhátíðir á HM og stórstjörnur á þeim öllum Fótbolti Tækifæri bjóðist í fjarveru Sveindísar í lykilleik dagsins Fótbolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Allur leikmannahópurinn saman í þjóðsöngvunum Fótbolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Fleiri fréttir Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Sjá meira