Vonar að fólkið þori að mæta í gulu á leik stelpnanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. október 2023 09:41 Stuðningsmenn sænska landsliðsins í stúkunni á leik Belgíu og Svíþjóðar eftir að hafa frétt af örlögum landa sinna í hryðjuverkaárás í miðbæ Brussel. Getty/Stringer Sænska kvennalandsliðið í fótbolta er að fara að spila leiki í Þjóðadeildinni í þessari viku alveg eins og það íslenska.
Sænsku stelpurnar spila við sérstakar aðstæður vegna þess að tveir sænskir stuðningsmenn karlalandsliðsins voru drepnir í hryðjuverkaárás í Brussel í Belgíu í síðustu viku. Svíar ætla að herða mikið öryggisgæsluna í kringum leik sænska liðsins sem er á móti Sviss á Gamla Ullevi leikvanginum í Gautaborg. Stuðningsmennirnir voru í gulu sænsku landsliðsbúningnum þegar þeir voru skotnir til bana en árásin varð stutt frá leikvanginum þar sem sænska landsliðið spilaði. Leik var hætt í hálfleik og sænsku stuðningsmennirnir voru í lögreglufylgd þar til þeir yfirgáfu Belgíu. Áhorfendur á leiknum þurfa að fara í gegnum öryggisleit eins og við þekkjum á flugvöllum. Það er þó enginn að tala gegn því að stuðningsmennirnir mæti í sænsku litunum. „Ég vona að fólk vilji koma í gulu treyjunum sínum til að styðja sænska landsliðið með auðvitað fullri virðingu fyrir þeim sem ákveða annað,“ sagði Martin Fredman, yfirmaður öryggismála hjá sænska sambandinu, í viðtali við Aftonbladet. Það er von á góðri mætingu á leikinn en sænsku stelpurnar eru að berjast um að komast á Ólympíuleikana í París á næsta ári.
Þjóðadeild kvenna í fótbolta Sænski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira