Bókaormar framtíðarinnar fjölmenntu í útgáfuhóf Íris Hauksdóttir skrifar 23. nóvember 2023 18:01 Margt var um manninn í útgáfuboði Sokkalabbanna. „Við erum í skýjunum með viðtökurnar,“ segir rithöfundurinn Bergrún Íris en hún ásamt leikaranum Þorvaldi Davíð fögnuðu útgáfu bókarinnar Sokkalabbarnir nýverið. „
Við fögnuðum í góðra vina hópi á Shake & Pizza, og gætum ekki verið ánægðari.“ Sjálf kemur Bergrún Íris að útgáfu fjögurra bóka þetta árið. „Já, ég er dálítið ofvirk,“ segir Bergrún og hlær. „Þetta er hins vegar fyrsta bók Þorvaldar og það var ótrúlega gaman að búa til bók með einhverjum sem hefur ekki gert það áður. Ég fæ að upplifa spennuna í kringum útgáfuferlið alveg upp á nýtt, og þessa einstöku gleðina sem blossar upp þegar maður fær brakandi nýtt eintak í hendurnar, beint úr prentsmiðjunni.“ Flestir þekkja hausverkinn að para saman sokka Bók Þorvaldar Davíðs og Bergrúnar Írisar ber heitið Sokkalabbarnir og fjallar um ævintýraveröld fyllta litríkum sokkum. „Við Þorvaldur erum bæði foreldrar og þekkjum vel hausverkinn sem fylgir því að reyna að para saman sokka. Svo vorum við að hlæja að þessu og velta fyrir okkur hvort allir þurfi endilega að vera hluti af pari, hvort það sé svo slæmt að vera einstakur. Í Sokkalöbbunum kynnumst við Bjarti, sem ferðast úr þvottavélinni yfir í nýja veröld, þar sem hann upplifir það í fyrsta sinn að vera með augu, munn og tilfinningar.“ Fyrst og fremst skemmtilestur Þorvaldi Davíð og Bergrúnu Írisi þykir báðum mikilvægt að hlustað sé á raddir barna og þau fái tækifæri til að upplifa tilfinningar sínar án þess að vera sagt að harka af sér eða jafna sig. „Börnum er gjarnan send þau skilaboð að tilfinningar séu ýmist góðar eða slæmar, æskilegar eða óæskilegar. Í bókinni læra Sokkalabbarnir inn á tilfinningar sínar, í gegnum samskipti og hversdagslega árekstra í Sokkalabbaskólanum. Bókin er fyrst og fremst skemmtilestur en ef hún hjálpar einhverjum börnum að skilja tilfinningar sínar betur þá er það stórkostlegt.“ Bergrún Íris segir samstarfið hafa gengið vel og von sé á fleiri bókum um Sokkalabbana. „Já, en ekki bara fleiri bókum, því Þorvaldur kemur inn með víðamikla reynslu úr sjónvarpi og leikhúsi, og því borðleggjandi að Sokkalabbarnir skemmti börnum einn daginn á skjám allra landsmanna.“ Hér fyrir neðan má sjá myndir frá útgáfuboðinu. Höfundar bókarinnar stilltu sér upp með dóttur Þorvaldar, Emelíu Sól.Rakel Ósk Sigurðardóttir Teikingar bókarinnar eru eftir Bergrúnu Írisi en hún hefur myndlýst ríflega 60 bækur.Rakel Ósk Sigurðardóttir Sylvía Rut Sigfúsdóttir mætti með syni sínum, Baldri Frey Snorrasyni.Rakel Ósk Sigurðardóttir Þorvaldur Davíð áritaði fjölda bóka fyrir gesti útgáfuboðsins.Rakel Ósk Sigurðardóttir Ljúf stemning skapaðist í boðinu.Rakel Ósk Sigurðardóttir Bergrún hafði stillt upp sérstakri Sokkalabba-smiðju þar sem gestir gátu búið til sinn eigin Sokkalabba.Rakel Ósk Sigurðardóttir Upplestur höfundanna hélt áhorfendum hugföngnum.Rakel Ósk Sigurðardóttir Emma Dögg Ingvadóttir var spennt fyrir nýju bókinni sinni.Rakel Ósk Sigurðardóttir Foreldar Bergrúnar komu færandi hendi í boðið.Rakel Ósk Sigurðardóttir Nóg var að gera við áritunarborðið.Rakel Ósk Sigurðardóttir Embla Bachmann, ungur og upprennandi rithöfundur, lét sig ekki vanta.Rakel Ósk Sigurðardóttir Sokkabrúðurnar voru litríkar og fjölbreyttar.Rakel Ósk Sigurðardóttir Flugstjórinn Ásgeir vandaði sig mikið við að lita mynd af Sokkalöbbunum.Rakel Ósk Sigurðardóttir Ekki gátu allir gestir beðið eftir að komast heim með bókina, áður en byrjað var að lesa.Rakel Ósk Sigurðardóttir
Bókmenntir Bókaútgáfa Samkvæmislífið Krakkar Mest lesið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Lífið Maður þurfti ekki að vera skyggn Gagnrýni „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið Fleiri fréttir Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira