Willum lagði upp en Kristian og félagar úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 21. desember 2023 21:27 Kristian Hlynsson og félagar í Ajax eru úr leik í hollenska bikarnum eftir niðurlegjandi tap í kvöld. Vísir/GEtty Willum Þór Willumsson og félagar hans í Go Ahead Eagles eru komnir í 16-liða úrslit hollensku bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir öruggan 7-1 sigur gegn C-deildarliði De Treffers í kvöld. Kristian Hlynsson og félagar eru hins vegar úr leik eftir 3-2 tap gegn D-deildarliði USV Hercules.
Willum lagði upp þriðja mark Go Ahead Eagles á 26. mínútu fyrir Oliver Edvardsen, en staðan var 4-0 í hálfleik. Gestirnir klóruðu í bakkan snemma í síðari hálfleik, en heimamenn í Go Ahed Eagles bættu þremur mörkum við í kjölfarið og unnu að lokum afar öruggan 7-1 sigur. Liðið er þar með komið í 16-liða úrslit hollenska bikarsins, en De Treffers er úr leik. Þá var annar Íslendingur í eldlínunni í hollenska bikarnum í kvöld þegar Kristian Hlynsson og félagar hans í Ajax heimsóttu D-deildarlið USV Hercules. Heimamenn í Hercules komust í 1-0 með marki frá Tim Pieters snemma leiks áður en hann tvöfaldaði forystuna með sínu öðru marki þegar um 25 mínútur voru til leiksloka. Brian Brobbey og Chuba Akpom sáu hins vegar til þess að staðan var jöfn þegar komið var inn í uppbótartímann með mörkum á 83. og 89. mínútu. Mats Grotenbreg gerði þó út um endurkomu Ajax með marki á þriðju mínútu uppbótartíma og þar við sat. D-deildarlið Hercules er þar með komið í 16-liða úrslit á kostnað Ajax sem situr eftir með sárt ennið.
Hollenski boltinn Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ Sjá meira