Samþykktu endurskipulagningu Viaplay Atli Ísleifsson skrifar 12. janúar 2024 10:56 Streymisveitan var stofnuð árið 2007 og opnaði á Íslandi árið 2020. Viaplay Hluthafar sænska streymisfyrirtækisins Viaplay Group hafa samþykkt endurskipulagningu á félaginu sem leiðir til þess að franski fjölmiðla- og fjarskiptarisinn Canal+ Group og tékkneska fjárfestingafélagið PPF hafa eignast hvor um sig 29,3 prósenta hlut í fyrirtækinu.
Þetta var samþykkt á sérstökum aðalfundi félagsins sem fram fór á miðvikudaginn. Í tilkynningu frá Viaplay Group segir að endurfjármögnunaráætlun félagsins muni afla fjögurra milljarða sænskra króna, um 54 milljarða íslenskra króna, með útgáfu nýrra hluta ásamt leiðréttingu eða endursamkomulagi á núverandi skuldum. Á fundinum var einnig samþykkt sala á hlutum félagsins í mið- og austur-evrópska framleiðandanum Paprika til ungverska búnaðarins Poblano. Samhliða endurfjármögnuninni láta núverandi hluthafar Viaplay af stöðu sinni. Gengi félagsins lækkaði mikið síðasta árið og er ætlunin að rétta úr kútnum með samþykktri endurskipulagningunni. Viaplay er með milljónir áskrifenda bæði í Evrópu og Norður-Amerínu en streymisveitan var stofnuð árið 2007 og opnaði á Íslandi árið 2020. Á síðasta ári gerði Sýn víðtækan samstarfssamning við Viaplay sem fól í sér einkarétt á sölu Viaplay með vörum Vodafone og Stöðvar 2. Vísir er í eigu Sýnar.
Fjölmiðlar Svíþjóð Streymisveitur Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira