KR Reykjavíkurmeistari eftir vítaspyrnukeppni Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 1. febrúar 2024 20:33 Sigurður BjarturHallson misnotaði vítaspyrnu í venjulegum leiktíma en tryggði KR sigur í vítaspyrnukeppni. Vísir/Hulda Margrét KR er Reykjavíkurmeistari í knattspyrnu eftir sigur gegn Víkingi í vítaspyrnukeppni í kvöld.
Það var Finnur Tómas Pálmason sem skoraði fyrsta mark leiksins á 39. mínútu er hann kom KR-ingum í forystu þegar hann kom boltanum í netið eftir klafs í teignum. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins og KR-ingar fóru því með 1-0 forystu inn í hálfleikshléið. KR-ingar fengu svo tækifæri til að gera út um leikinn á 84. mínútu þegar Gísli Gottskálk Þórðarson braut af sér innan vítateigs og vítaspyrna var dæmd. Sigurður Bjartur Hallson fór á punktinn, en Ingvar Jónsson varði frá honum áður en Ingvar varði einnig eftir að Sigurður tók frákastið. Víkingar áttu því enn von og Sveinn Gísli Þorkelsson tryggði liðinu vítaspyrnukeppni með marki í uppbótartíma eftir stoðsendingu frá Danijel Dejan Djuric. Bæði lið skoruðu úr fyrstu þremur spyrnum sínum í kvöld áður en Gísli Gottskálk Þórðarson lét Sigurpál Sören Ingólfsson verja fjórðu spyrnu Víkings frá sér. Hrafn Tómasson kom KR-ingum í forystu í næstu spyrnu áður en Ari Sigurpálsson skoraði úr fimmtu spyrnu Víkinga. Sigurður Bjartur Hallsson, sem hafði misnotað vítaspyrnu í venjulegum leiktíma, tók fimmtu spyrnu KR og gat þar með tryggt liðinu sigur. Í þetta sinn brást honum ekki bogalistinn og KR-ingar fögnuðu sigri í vítaspyrnukeppni, 5-4.
KR Víkingur Reykjavík Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira