Viðskipti innlent

Bein út­sending: Hug­mynda­landið Ís­land til um­ræðu á Iðn­þingi

Atli Ísleifsson skrifar
Sigurður Hannesson er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Sigurður Hannesson er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Vísir/Egill

„Hugmyndalandið – dýrmætasta auðlind framtíðar“ er yfirskrift Iðnþings Samtaka iðnaðarins sem fer fram í Silfurbergi í Hörpu milli klukkan 14 og 16 í dag.

Hægt verður að fylgjast með þinginu í spilaranum að neðan.

Í tilkynningu frá SI segir að hugmyndir breyti heiminum og með þeim höfum við byggt upp blómlegt samfélag í nábýli við náttúruöflin, skapað meiri verðmæti úr takmörkuðum auðlindum og bylt lífsgæðum á Íslandi. 

Á 30 ára afmælisþingi SI verði rætt um hugmyndalandið Ísland og mikilvægar ákvarðanir í fortíð og framtíð.

Þátttakendur í dagskrá

  • Árni Sigurjónsson, formaður SI
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands
  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis
  • Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra
  • Reynir Sævarsson, formaður Félags ráðgjafarverkfræðinga
  • Arna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Helix
  • Björk Kristjánsdóttir, rekstrar- og fjármálastjóri CRI
  • Baltasar Kormákur, kvikmyndaframleiðandi og eigandi RVK Studios
  • Sigurlína Ingvarsdóttir, stofnandi hjá Behold Ventures
  • Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI
  • Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI





Fleiri fréttir

Sjá meira


×