Fimmtíu slasaðir eftir að Boeing-vél „féll“ í miðju flugi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. mars 2024 08:45 Boeing 787-9 D í eigu LATAM Airlines á flugvelli í Santiago. Getty/LightRocket/SOPA Images/Fabrizio Gandolfo Fimmtíu manns þurftu aðhlynningu og þrettán voru lagðir inn á sjúkrahús eftir að „tæknilegir örðugleikar“ komu upp í flugi Latam Airlines frá Sydney til Auckland sem urðu þess valdandi að flugvélin „féll“ og farþegar hentust úr sætum sínum.
Mikill viðbúnaður var á alþjóðaflugvellinum í Auckland þegar vélin lenti. Einn er sagður alvarlega slasaður. Einn farþega lýsti upplifuninni þannig að flugvélin, sem er af gerðinni Boeing 787-9 Dreamliner, hefði „fallið“ eftir um tveggja klukkustunda flug og að farþegar hefðu kastast úr sætum sínum. Sumir hefðu kastast á loft vélarinnar. Brian Jokat sagði í samtali við staðarmiðilinn Stuff að fyrstu viðbrögð fólks hefðu verið að öskra en svo hefði vélin hrapað með nefið niður og hann talið víst að öllu væri lokið. Annar sagði í samtali við Radio New Zealand að fjöldi hefði slasast en margir hefðu ekki verið með sætisbeltin spennt þegar atvikið átti sér stað. Lantam sendi frá sér yfirlýsingu þar sem sagði að atvikið mætti rekja til „tæknilegra örðugleika“. Vélin var sem fyrr segir á leið frá Sydney til Auckland þegar atviki átti sér stað. Stoppið í Auckland var þó aðeins millilending þar sem endastöðin var Santiago í Chile. Það fylgir ekki sögunni hvort haldið var áfram. Guardian greindi frá.
Ástralía Nýja-Sjáland Chile Fréttir af flugi Samgönguslys Boeing Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira