Pavel í veikindaleyfi Sindri Sverrisson skrifar 12. mars 2024 13:58 Pavel Ermolinskij tók við sem þjálfari Tindastóls í byrjun síðasta árs. vísir/Diego Pavel Ermolinskij er kominn í veikindaleyfi frá störfum sínum sem þjálfari Íslandsmeistara Tindastóls í körfubolta. Þetta staðfestir körfuknattleiksdeild Tindastóls í yfirlýsingu á Facebook. Þar segir að í ljósi veikindaforfalla Pavels muni Svavar Atli Birgisson taka tímabundið við sem þjálfari Stólanna. Honum til aðstoðar verður Helgi Freyr Margeirsson sem þjálfað hefur kvennalið Tindastóls. Körfuknattleiksdeild Tindastóls kveðst ekki ætla að tjá sig frekar um málið á næstunni en ítrekaðar tilraunir hafa verið gerðar til að ná í forráðamenn hennar frá því í morgun. Í tilkynningu Tindastóls er fjölmiðlafólk beðið um að sýna Pavel tillitssemi í umfjöllun sinni um þessar breytingar, og virða friðhelgi hans í bataferlinu. Svavar Atli hefur í langan tíma verið aðstoðarþjálfari meistaraflokksins, nú síðast með Pavel, og Helgi Freyr er þjálfari meistaraflokks kvenna en bætir nú nýju hlutverki við sig fram á vorið. Auk þjálfarastarfa sinna eiga þeir Svavar og Helgi einnig farsælan feril að baki í leikmannahópi Tindastóls. Pavel tók við sem þjálfari Tindastóls í janúar á síðasta ári, og er þetta hans fyrsta þjálfarastarf. Hann stýrði liðinu til fyrsta Íslandsmeistaratitilsins í sögu þess, síðasta vor. Tindastóll er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppni Subway-deildarinnar en liðið er með 20 stig í 7. sæti, þegar þrjár umferðir eru eftir, tveimur stigum fyrir ofan Hött og Stjörnuna en Stjörnumenn sitja utan úrslitakeppnissætanna sem stendur. Næsti leikur Tindastóls er á heimavelli gegn Þór Þorlákshöfn á fimmtudagskvöld. Á miðvikudaginn eftir viku spilar liðið svo við Álftanes í undanúrslitum VÍS-bikarsins í Laugardalshöll. Tilkynning frá körfuknattleiksdeild Tindastóls Í ljósi veikindaforfalla Pavels Ermolinskij hefur verið ákveðið að Svavar Atli Birgisson taki tímabundið við sem þjálfari meistaraflokks Tindastóls í körfuknattleik karla. Honum til aðstoðar verður Helgi Freyr Margeirsson. Svavar Atli hefur í langan tíma verið aðstoðarþjálfari meistaraflokksins, nú síðast með Pavel, og Helgi Freyr er þjálfari meistaraflokks kvenna en bætir þessu nýja hlutverki við sig fram á vorið. Auk þjálfarastarfa sinna eiga þeir Svavar og Helgi einnig farsælan feril að baki í leikmannahópi Tindastóls. Fjölmiðlafólk er beðið um að sýna Pavel tillitssemi í umfjöllun sinni um þessar breytingar og virða friðhelgi hans í bataferlinu. Körfuknattleiksdeild Tindastóls mun ekki tjá sig frekar um málið á næstunni. Sauðárkróki 12. mars 2024 Fréttatilkynning F. h. körfuknattleiksdeildar Tindastóls Dagur Baldvinsson, formaður Subway-deild karla Tindastóll Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira
Þetta staðfestir körfuknattleiksdeild Tindastóls í yfirlýsingu á Facebook. Þar segir að í ljósi veikindaforfalla Pavels muni Svavar Atli Birgisson taka tímabundið við sem þjálfari Stólanna. Honum til aðstoðar verður Helgi Freyr Margeirsson sem þjálfað hefur kvennalið Tindastóls. Körfuknattleiksdeild Tindastóls kveðst ekki ætla að tjá sig frekar um málið á næstunni en ítrekaðar tilraunir hafa verið gerðar til að ná í forráðamenn hennar frá því í morgun. Í tilkynningu Tindastóls er fjölmiðlafólk beðið um að sýna Pavel tillitssemi í umfjöllun sinni um þessar breytingar, og virða friðhelgi hans í bataferlinu. Svavar Atli hefur í langan tíma verið aðstoðarþjálfari meistaraflokksins, nú síðast með Pavel, og Helgi Freyr er þjálfari meistaraflokks kvenna en bætir nú nýju hlutverki við sig fram á vorið. Auk þjálfarastarfa sinna eiga þeir Svavar og Helgi einnig farsælan feril að baki í leikmannahópi Tindastóls. Pavel tók við sem þjálfari Tindastóls í janúar á síðasta ári, og er þetta hans fyrsta þjálfarastarf. Hann stýrði liðinu til fyrsta Íslandsmeistaratitilsins í sögu þess, síðasta vor. Tindastóll er í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppni Subway-deildarinnar en liðið er með 20 stig í 7. sæti, þegar þrjár umferðir eru eftir, tveimur stigum fyrir ofan Hött og Stjörnuna en Stjörnumenn sitja utan úrslitakeppnissætanna sem stendur. Næsti leikur Tindastóls er á heimavelli gegn Þór Þorlákshöfn á fimmtudagskvöld. Á miðvikudaginn eftir viku spilar liðið svo við Álftanes í undanúrslitum VÍS-bikarsins í Laugardalshöll. Tilkynning frá körfuknattleiksdeild Tindastóls Í ljósi veikindaforfalla Pavels Ermolinskij hefur verið ákveðið að Svavar Atli Birgisson taki tímabundið við sem þjálfari meistaraflokks Tindastóls í körfuknattleik karla. Honum til aðstoðar verður Helgi Freyr Margeirsson. Svavar Atli hefur í langan tíma verið aðstoðarþjálfari meistaraflokksins, nú síðast með Pavel, og Helgi Freyr er þjálfari meistaraflokks kvenna en bætir þessu nýja hlutverki við sig fram á vorið. Auk þjálfarastarfa sinna eiga þeir Svavar og Helgi einnig farsælan feril að baki í leikmannahópi Tindastóls. Fjölmiðlafólk er beðið um að sýna Pavel tillitssemi í umfjöllun sinni um þessar breytingar og virða friðhelgi hans í bataferlinu. Körfuknattleiksdeild Tindastóls mun ekki tjá sig frekar um málið á næstunni. Sauðárkróki 12. mars 2024 Fréttatilkynning F. h. körfuknattleiksdeildar Tindastóls Dagur Baldvinsson, formaður
Tilkynning frá körfuknattleiksdeild Tindastóls Í ljósi veikindaforfalla Pavels Ermolinskij hefur verið ákveðið að Svavar Atli Birgisson taki tímabundið við sem þjálfari meistaraflokks Tindastóls í körfuknattleik karla. Honum til aðstoðar verður Helgi Freyr Margeirsson. Svavar Atli hefur í langan tíma verið aðstoðarþjálfari meistaraflokksins, nú síðast með Pavel, og Helgi Freyr er þjálfari meistaraflokks kvenna en bætir þessu nýja hlutverki við sig fram á vorið. Auk þjálfarastarfa sinna eiga þeir Svavar og Helgi einnig farsælan feril að baki í leikmannahópi Tindastóls. Fjölmiðlafólk er beðið um að sýna Pavel tillitssemi í umfjöllun sinni um þessar breytingar og virða friðhelgi hans í bataferlinu. Körfuknattleiksdeild Tindastóls mun ekki tjá sig frekar um málið á næstunni. Sauðárkróki 12. mars 2024 Fréttatilkynning F. h. körfuknattleiksdeildar Tindastóls Dagur Baldvinsson, formaður
Subway-deild karla Tindastóll Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira