Hrottafengnar lýsingar á morðinu á þrettán ára stúlkunni Jón Þór Stefánsson skrifar 12. mars 2024 15:25 Mynd af rannsókn lögreglu í Danmörku. EPA Sautján ára piltur sem var handtekinn í kjölfar morðs á þrettán ára stúlku í smábænum Hjallerup á Norður-Jótlandi í Danmörku í gærkvöldi, er grunaður um að hafa orðið henni að bana.
Jafnaldra stúlkunnar var líka handtekin vegna málsins en hefur verið látin laus. Danska ríkissjónvarpið greinir frá því að pilturinn sé grunaður um morðið sem er talið hafa átt sér stað á milli klukkan átta og tíu í gærkvöldi. Hann er grunaður um að hafa kæft stúlkuna, bundið hendur hennar og slegið hana með múrsteini í höfuðið. Þar að auki er pilturinn talinn hafa nauðgað stúlkunni. Fram kemur að hann sé grunaður um brot á lagaákvæðum sem annars vegar varða samneyti við barn undir fimmtán ára aldri, og hins vegar að beita ofbeldi og hótunum til að neyða aðra manneskju til kynmaka. Verjandi piltsins segir hann neita sök varðandi ásakanir um manndráp, en hann viðurkenni að hafa beitt ofbeldi sem hafi leitt til dauða stúlkunnar. Þá neitar hann að hafa nauðgað henni. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, segir fréttirnar átakanlegar. Hún sendir fjölskyldu stúlkunnar og aðra sem voru nákomnir henni sínar hlýjustu samúðarkveðjur.
Erlend sakamál Danmörk Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Inga segir já Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira