Sviptir hulunni af heimildarmynd og sér um föstudagskvöldin á RÚV Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. mars 2024 15:29 Logi Bergmann Eiðsson fjölmiðlamaður stendur í ströngu þessa dagana. Vísir/Vilhelm Logi Bergmann Eiðsson fjölmiðlamaður til margra ára segir fyndið símtal hafa orðið til þess að hann ákvað að taka að sér framleiðslu heimildarmyndar um Ásgeir Elíasson, einn sigursælasta fótboltaþjálfara landsins. Logi er nú að vinna í gerð fleiri heimildamynda og er í ritstjórn spurningaþáttanna Er þetta frétt? sem sýndir eru á föstudagskvöldum á RÚV.
Myndin ber heitið Ásgeir - Maðurinn með Hattinn. Hún verður sýnd í Sambíóunum Kringlunni í dag á sérstakri sýningu og fjallar um Ásgeir Elíasson sem lést fyrir aldur fram árið 2007. Ásgeir gerði Fram að stórveldi og vann glæsta sigra með íslenska landsliðinu. „Ég fékk fyndið símtal frá Hemma þar sem hann sagði bara: „Ég fattaði allt í einu að ég hef engan tíma í þetta og svo kann ég þetta ekki. Getur þú hjálpað mér að klára þetta?“ segir Logi Bergmann Eiðsson í samtali við Vísi og vísar þar til Hermanns Guðmundssonar sem fékk hugmyndina að myndinni og framleiddi myndina með honum. Logi segir Ásgeir vera goðsögn sem breytt hafi boltanum á Íslandi með áherslu sinni á sóknarleik og skemmtun. Sjálfur þekkti hann Ásgeir í gegnum störf sín sem íþróttafréttamaður á Ríkisútvarpinu. „Ég hitti hann oft og tók mörg viðtöl við hann þegar ég var íþróttafréttamður. Hann var mjög almennilegur og afslappaður og var svolítið eins og Arnar Gunnlaugsson. Hann gaf sér alltaf tíma til þess að fara yfir málin með manni og ræða hluti.“ Plakat myndarinnar. Minningin að gleymast meðal yngri kynslóðarinnar Logi segir Hermann hafa orðið var við það að saga Ásgeirs væri að gleymast meðal yngri fótboltamanna. Hann hafi langað til að varðveita hana. „Það eru þessi áhrif sem hann hafði, sérstaklega eins og hjá Fram. Fram á gullöld og hún hverfist eiginlega öll um tíma Ásgeirs. Þetta er tíminn þar sem þeir eru bara stórveldi á Íslandi,“ segir Logi. Hann segir það ekki síst vegna þess andrúmslofts sem Ásgeiri og eiginkonu hans, Soffíu Guðmundsdóttur, betur þekkt sem Dedda, hafi tekist að skapa hjá félaginu. „Þau hjónin voru bæði á kafi í þessu. Þetta var svona fjölskylduklúbbur og hópurinn alltaf svolítið þéttur. Það er líka hluti af því og þetta er fyrir þessar stóru breytingar sem verða í fótbolta þar sem menn eru keyptir og flakka á milli liða og svona. Það var miklu minna um það á þessum tíma.“ Frétt Stöðvar 2 frá 2007 um andlát Ásgeirs: Gamlir liðsfélagar og mótherjar mæta í bíó Logi segir tíma sinn sem íþróttafréttamaður hafa reynst vel við gerð myndarinnar. Hann hafi sankað að sér efni hjá Ríkisútvarpinu og fundið viðmælendur úr hópi liðsfélaga Ásgeirs, mótherja og úr fjölskyldunni hans. „Hann hafði mikil áhrif á þá sem hann umgengst og það var mikil eftirsjá eftir honum og þeim báðum. Þannig að við ákváðum að hafa eina sýningu þannig að menn gætu komið saman og horft á þetta í bíó,“ segir Logi. Ýmislegt á döfinni hjá Loga Logi segist sjálfur hafa ýmislegt á döfinni á milli þess sem hann starfar fyrir Samtök sjávarútvegsfyrirtækja sem sérfræðingur í samskiptum og miðlum. Hann rifjar meðal annars upp gamla takta úr Gettu betur og Spurningabombunni í ritstjórn skemmtiþáttanna Er þetta frétt? á RÚV sem sýndir eru á föstudagskvöldum. „Þetta hefur verið rosalega gaman. Ég hef alltaf verið spurninganörd í mér, þetta eru svona ákveðin element sem fara ekkert,“ segir Logi. Hann segir ýmislegt fleira á döfinni en gefur ekki upp nákvæmlega hvað. „Ég er að vinna í einhverjum heimildarmyndum og svona, gera hitt og þetta bara. Ég er að vinna hjá SFS og svo þess á milli hef ég verið að nýta tímann í allskonar hluti. Ég hef voða gaman af þessu. Það er gaman að skapa og búa eitthvað til, þannig mér fannst þetta frábært verkefni.“
Bíó og sjónvarp Fótbolti Kvikmyndagerð á Íslandi Fram Tengdar fréttir Logi Bergmann í banastuði á sveittum tónleikum Auðuns Auðunn Lúthersson er mættur til landsins og tróð upp fyrir fullu húsi í Iðnó á laugardagskvöldið. Fremstur í flokki tónleikagesta var sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann sem skemmti sér konunglega. 18. desember 2023 09:01 Logi Bergmann aftur á skjánum Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson sneri aftur á sjónvarpsskjáinn í gærkvöldi þegar hann stýrði upphitunarþætti fyrir leik Manchester United og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á Símanum Sport í gærkvöldi. 26. maí 2023 08:01 Logi starfar fyrir Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi Logi Bergmann Eiðsson fjölmiðlamaður hefur verið ráðinn til Samtaka fyrirtæka í sjávarútvegi, þar sem hann mun undirbúa ársfund samtakanna og sinna tilfallandi verkefnum. 9. febrúar 2023 06:43 Segist saklaus en sjá eftir að hafa farið yfir mörk í einkalífi fólks Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson segist saklaus af þeim ásökunum sem bornar hafa verið á hann um kynferðislegt ofbeldi í garð ungrar konu. Hann viðurkennir þó að hafa farið yfir mörk í einkalífi fólks með því að hafa farið inn í herbergi sem hann hafi ekki átt að fara inn í. 6. janúar 2022 22:38 Mest lesið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Anthony Head er látinn Lífið James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Bíó og sjónvarp Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Lífið samstarf Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Menning Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Lífið samstarf Fleiri fréttir Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Sjá meira
Logi Bergmann í banastuði á sveittum tónleikum Auðuns Auðunn Lúthersson er mættur til landsins og tróð upp fyrir fullu húsi í Iðnó á laugardagskvöldið. Fremstur í flokki tónleikagesta var sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann sem skemmti sér konunglega. 18. desember 2023 09:01
Logi Bergmann aftur á skjánum Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson sneri aftur á sjónvarpsskjáinn í gærkvöldi þegar hann stýrði upphitunarþætti fyrir leik Manchester United og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á Símanum Sport í gærkvöldi. 26. maí 2023 08:01
Logi starfar fyrir Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi Logi Bergmann Eiðsson fjölmiðlamaður hefur verið ráðinn til Samtaka fyrirtæka í sjávarútvegi, þar sem hann mun undirbúa ársfund samtakanna og sinna tilfallandi verkefnum. 9. febrúar 2023 06:43
Segist saklaus en sjá eftir að hafa farið yfir mörk í einkalífi fólks Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson segist saklaus af þeim ásökunum sem bornar hafa verið á hann um kynferðislegt ofbeldi í garð ungrar konu. Hann viðurkennir þó að hafa farið yfir mörk í einkalífi fólks með því að hafa farið inn í herbergi sem hann hafi ekki átt að fara inn í. 6. janúar 2022 22:38