Gerðist síðast hjá Gylfa fyrir meira en fimmtán árum síðan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. apríl 2024 10:01 Gylfi Þór Sigurðsson byrjar vel með Valsmönnum. Vísir/Hulda Margrét Gylfi Þór Sigurðsson skoraði laglegt mark í gærkvöldi í sínum fyrsta leik í efstu deild á Íslandi. Gylfi skoraði þá seinna mark Valsmanna í 2-0 sigri á ÍA í fyrstu umferð Bestu deildarinnar. Það þarf að fara allt til ársins 2009 til að finna deildarkeppni þar sem Gylfi skoraði í fyrsta leiknum sínum. Gylfi skoraði í fyrsta leik sínum fyrir Crewe Alexandra í ensku C-deildinni í febrúar 2009. Gylfi innsiglaði þá 4-0 sigur á Brighton & Hove Albion. Gylfi skoraði líka í fyrsta deildarleik sínum með Shrewsbury Town í sigri á Bournemouth í ensku D-deildinni í október 2008. Þá var Gylfi aðeins nýorðinn nítján ára gamall. Bið eftir fyrsta marki eftir deildum: 14 mínútur í þýsku Bundesligunni 22 mínútur í ensku D-deildinni 59 mínútur í Bestu deildinni 89 mínútur í ensku C-deildinni 233 mínútur í ensku úrvalsdeildinni 358 mínútur í ensku B-deildinni - Skoraði ekki í dönsku úrvalsdeildinni Það þarf þó ekki að fara lengur aftur en til október til að finna Gylfa skora í fyrsta leik í keppni. Hann skoraði þá tvö mörk í bikarsigri Lyngby en leikurinn vannst þó ekki fyrr en í vítakeppni. Gylfi náði aftur á móti ekki að skora mark fyrir Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni. Gylfi náði heldur ekki að skora í fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni í janúar 2012 en gaf þá stoðsendingu á Danny Graham í sigurmarkinu í 3-2 sigri Swansea á Arsenal. Gylfa átti líka stoðsendingu í fyrsta leik sínum með Reading í ensku b-deildinni haustið 2009 en tókst ekki að skora sjálfum. Gylfi náði ekki að skora í fyrsta leik sínum í þýsku deildinni en kom þá inn á sem varamaður undir lok leiksins. Hann skoraði aftur á móti eftir að hafa komið inn á sem varamaður í leik tvö sem var á móti Kaiserslautern. Hann þurfti því tvo leiki en aðeins fjórtán spilaðar mínútur til að skora í Þýskalandi. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir fyrsta leik hjá Gylfa í hans helstu keppnum á ferlinum. Frumaun Gylfa Þórs Sigurðsson í hinum ýmsu keppnum: - Fyrsti leikurinn í ensku D-deildinni 18. október 2008 með Shrewsbury á móti Bournemouth á heimavelli Skoraði fyrsta mark leiksins - Fyrsti leikurinn í ensku C-deildinni 28. febrúar 2009 með Crewe á móti Brighton & Hove Albion á útivelli Skoraði fjórða og síðasta mark leiksins - Fyrsti leikurinn í ensku bikarkeppninni 3. janúar 2009 með Reading á móti Cardiff á útivelli Skoraði ekki (Kom inn á sem varamaður) - Fyrsti leikurinn í ensku b-deildinni 22. ágúst 2009 með Reading á móti Sheffield United á heimavelli Skoraði ekki en gaf stoðsendingu - Fyrsti leikuinn í enska deildabikarnum 26. ágúst 2008 með Reading á móti Luton á heimavelli Skoraði ekki (Kom inn á sem varamaður) - Fyrsti leikurinn í þýsku Bundesligunni 10. september 2010 með Hoffenheim á móti Schalke Skoraði ekki (Kom inn á sem varamaður) - Fyrsti leikurinn í ensku úrvalsdeildinni 15. janúar 2012 með Swansea á móti Arsenal á heimavelli Skoraði ekki en gaf stoðsendingu - Fyrsti leikurinn í Evrópudeildinni 20. september 2021 með Tottenham á móti Lazio á heimavelli Skoraði ekki (Kom inn á sem varamaður) - Fyrsti leikurinn í dönsku úrvalsdeildinni 22. september 2023 með Lyngby á móti Vejle Skoraði ekki (Kom inn á sem varamaður) - Fyrsti leikurinn í dönsku bikarkeppninni 31. októtber 2023 með Lyngby á móti Helsingör Skoraði tvö mörk - Fyrsti leikurinn í Bestu deildinni 7. apríl 2024 með Val á móti ÍA Skoraði seinna mark síns liðs Besta deild karla Valur Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Sjá meira
Gylfi skoraði þá seinna mark Valsmanna í 2-0 sigri á ÍA í fyrstu umferð Bestu deildarinnar. Það þarf að fara allt til ársins 2009 til að finna deildarkeppni þar sem Gylfi skoraði í fyrsta leiknum sínum. Gylfi skoraði í fyrsta leik sínum fyrir Crewe Alexandra í ensku C-deildinni í febrúar 2009. Gylfi innsiglaði þá 4-0 sigur á Brighton & Hove Albion. Gylfi skoraði líka í fyrsta deildarleik sínum með Shrewsbury Town í sigri á Bournemouth í ensku D-deildinni í október 2008. Þá var Gylfi aðeins nýorðinn nítján ára gamall. Bið eftir fyrsta marki eftir deildum: 14 mínútur í þýsku Bundesligunni 22 mínútur í ensku D-deildinni 59 mínútur í Bestu deildinni 89 mínútur í ensku C-deildinni 233 mínútur í ensku úrvalsdeildinni 358 mínútur í ensku B-deildinni - Skoraði ekki í dönsku úrvalsdeildinni Það þarf þó ekki að fara lengur aftur en til október til að finna Gylfa skora í fyrsta leik í keppni. Hann skoraði þá tvö mörk í bikarsigri Lyngby en leikurinn vannst þó ekki fyrr en í vítakeppni. Gylfi náði aftur á móti ekki að skora mark fyrir Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni. Gylfi náði heldur ekki að skora í fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni í janúar 2012 en gaf þá stoðsendingu á Danny Graham í sigurmarkinu í 3-2 sigri Swansea á Arsenal. Gylfa átti líka stoðsendingu í fyrsta leik sínum með Reading í ensku b-deildinni haustið 2009 en tókst ekki að skora sjálfum. Gylfi náði ekki að skora í fyrsta leik sínum í þýsku deildinni en kom þá inn á sem varamaður undir lok leiksins. Hann skoraði aftur á móti eftir að hafa komið inn á sem varamaður í leik tvö sem var á móti Kaiserslautern. Hann þurfti því tvo leiki en aðeins fjórtán spilaðar mínútur til að skora í Þýskalandi. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir fyrsta leik hjá Gylfa í hans helstu keppnum á ferlinum. Frumaun Gylfa Þórs Sigurðsson í hinum ýmsu keppnum: - Fyrsti leikurinn í ensku D-deildinni 18. október 2008 með Shrewsbury á móti Bournemouth á heimavelli Skoraði fyrsta mark leiksins - Fyrsti leikurinn í ensku C-deildinni 28. febrúar 2009 með Crewe á móti Brighton & Hove Albion á útivelli Skoraði fjórða og síðasta mark leiksins - Fyrsti leikurinn í ensku bikarkeppninni 3. janúar 2009 með Reading á móti Cardiff á útivelli Skoraði ekki (Kom inn á sem varamaður) - Fyrsti leikurinn í ensku b-deildinni 22. ágúst 2009 með Reading á móti Sheffield United á heimavelli Skoraði ekki en gaf stoðsendingu - Fyrsti leikuinn í enska deildabikarnum 26. ágúst 2008 með Reading á móti Luton á heimavelli Skoraði ekki (Kom inn á sem varamaður) - Fyrsti leikurinn í þýsku Bundesligunni 10. september 2010 með Hoffenheim á móti Schalke Skoraði ekki (Kom inn á sem varamaður) - Fyrsti leikurinn í ensku úrvalsdeildinni 15. janúar 2012 með Swansea á móti Arsenal á heimavelli Skoraði ekki en gaf stoðsendingu - Fyrsti leikurinn í Evrópudeildinni 20. september 2021 með Tottenham á móti Lazio á heimavelli Skoraði ekki (Kom inn á sem varamaður) - Fyrsti leikurinn í dönsku úrvalsdeildinni 22. september 2023 með Lyngby á móti Vejle Skoraði ekki (Kom inn á sem varamaður) - Fyrsti leikurinn í dönsku bikarkeppninni 31. októtber 2023 með Lyngby á móti Helsingör Skoraði tvö mörk - Fyrsti leikurinn í Bestu deildinni 7. apríl 2024 með Val á móti ÍA Skoraði seinna mark síns liðs
Bið eftir fyrsta marki eftir deildum: 14 mínútur í þýsku Bundesligunni 22 mínútur í ensku D-deildinni 59 mínútur í Bestu deildinni 89 mínútur í ensku C-deildinni 233 mínútur í ensku úrvalsdeildinni 358 mínútur í ensku B-deildinni - Skoraði ekki í dönsku úrvalsdeildinni
Frumaun Gylfa Þórs Sigurðsson í hinum ýmsu keppnum: - Fyrsti leikurinn í ensku D-deildinni 18. október 2008 með Shrewsbury á móti Bournemouth á heimavelli Skoraði fyrsta mark leiksins - Fyrsti leikurinn í ensku C-deildinni 28. febrúar 2009 með Crewe á móti Brighton & Hove Albion á útivelli Skoraði fjórða og síðasta mark leiksins - Fyrsti leikurinn í ensku bikarkeppninni 3. janúar 2009 með Reading á móti Cardiff á útivelli Skoraði ekki (Kom inn á sem varamaður) - Fyrsti leikurinn í ensku b-deildinni 22. ágúst 2009 með Reading á móti Sheffield United á heimavelli Skoraði ekki en gaf stoðsendingu - Fyrsti leikuinn í enska deildabikarnum 26. ágúst 2008 með Reading á móti Luton á heimavelli Skoraði ekki (Kom inn á sem varamaður) - Fyrsti leikurinn í þýsku Bundesligunni 10. september 2010 með Hoffenheim á móti Schalke Skoraði ekki (Kom inn á sem varamaður) - Fyrsti leikurinn í ensku úrvalsdeildinni 15. janúar 2012 með Swansea á móti Arsenal á heimavelli Skoraði ekki en gaf stoðsendingu - Fyrsti leikurinn í Evrópudeildinni 20. september 2021 með Tottenham á móti Lazio á heimavelli Skoraði ekki (Kom inn á sem varamaður) - Fyrsti leikurinn í dönsku úrvalsdeildinni 22. september 2023 með Lyngby á móti Vejle Skoraði ekki (Kom inn á sem varamaður) - Fyrsti leikurinn í dönsku bikarkeppninni 31. októtber 2023 með Lyngby á móti Helsingör Skoraði tvö mörk - Fyrsti leikurinn í Bestu deildinni 7. apríl 2024 með Val á móti ÍA Skoraði seinna mark síns liðs
Besta deild karla Valur Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Sjá meira