Í sumarform á 6 vikum Greenfit 23. maí 2024 12:09 Lukka Pálsdóttir, starfsmaður og einn eiganda Greenfit. Átakið Í form á sex vikum verður kynnt sérstaklega í húsakynnum Greenfit, við Dalveg 16b, klukkan 18:00 í dag. Er hægt að bjarga forminu fyrir sumarið á þessum allra síðustu vordögum, með sex vikna átaki? Er almennt hægt að komast í gott líkamlegt form á sex vikum?
Þessum spurningum svarar starfsfólk Greenfit játandi og býður því til stuðnings nú upp á sex vikna heilsuátak þar sem sérfræðingar Greenfit hjálpa einstaklingum að komast í gott form og ná betri heilsu. „Máttur þess að tvinna saman markvissu mataræði og úthugsaðri þjálfun er mikill. Með nútímatækni og mælingum er hægt að búa til afar markvisst plan um góðan árangur á stuttum tíma og setja saman áætlun sem hentar persónulega hverjum og einum miðað við stöðu þeirra og markmið," segir Lukka Pálsdóttir, starfsmaður og einn eiganda Greenfit.“ Skýrt 6 vikna plan og mælanlegur árangur Í form fyrir sumarið er sex vikna heilsuáskorun sem hefst á heilsufarsmælingum, nánar tiltekið blóðmælingu, ásamt líkamssamsetningar- og efnaskiptamælingum. Sérfræðingar Greenfit fara yfir niðurstöðurnar og nota sem undirstöðu fyrir markmiðasetningu og í kjölfarið hannar Lukka matarplan sem hentar þörfum einstaklingsins. Sigurður Sigurður Örn Ragnarsson, ólympíuþjálfari og besti þríþrautarmaður landsins tekur svo við og hannar hlaupaprógram og fer yfir góða tækni í hlaupum. Æfingaáætlunin er send beint í snjallúr eða síma einstaklingsins sem sér á hverjum degi árangur með tilliti til eigin markmiðasetningar. Æfingarnar taka mið af bæði mælingum, vali um æfingaálag og markmiðum og eru samsettar úr rólegum æfingum yfir í meiri ákefð. Þannig er æfingaplanið einnig sérsniðið að þörfum einstaklingsins. Til þess að skapa svo góða stemmningu er þátttakendum boðið í Facebook hóp sem veitir bæði aðhald og hvatningu. Hér má lesa nánar um átakið á heimasíðu Greenfit. Samlegðaráhrif næringar og æfinga „Góður matseðill þar sem máltíðir eru útbúnar úr hreinu hráefni án gjörunninna matvæla nærir líkamann vel og gefur góða orku fyrir erfiðar æfingar. Gæða næring styður góða orku allan daginn og kemur í veg fyrir orkuþurrð og sykurlöngum seinni part dags. Með prótínríku og næringarþéttu mataræði getum við stutt við uppbyggingu vöðva og aukið góða endurheimt eftir æfingar. Með vel úthugsuðu mataræði ásamt styrktaræfingum má sjá afar góðan árangur á tiltölulega stuttum tíma,“ segir Lukka. Þá ítrekar hún að mataræði snúist ekki bara um hitaeiningar og orku heldur líka um næringarefni og snefilefni sem hafa áhrif á meltingarveg og frásog næringarefna. Blóðsykurstjórnun, næringarþéttni, vítamín og trefjar gegna lykilhlutverki og þarmaflóra getur skipt sköpum. „Góð næring hefur ekki einungis áhrif á líkamlega heilsu. Heldur betur ekki því við erum ein heild og líkamleg og andleg heilsa haldast í hendur. Góð orka og líðan kemur innan frá og vel nærðar frumur heila og taugakerfis skipta ekki síður máli en aðrar frumur líkamans." Fjögur ár af heilsufarsmælingum og heilsuráðgjöf Ástandsskoðun hjá Greenfit er allsherjar skoðun sem samsett er úr ýmsum mælingum. Greenfit er tiltölulega ungt fyrirtæki, stofnað í upphafi árs 2020. Allar götur síðan hefur Greenfit verið leiðandi í heilsufarsmælingum hér á landi en fjölmargir Íslendingar hafa farið í ástandsskoðun hjá Greenfit. „Ástandsskoðun hefur klárlega verið okkar vinsælasta þjónusta í gegnum árin. Ástandsskoðunin hjá Greenfit er allsherjar skoðun á þér og þinni heilsu og er samsett úr ýmsum mælingum, svo sem blóðmælingu, efnaskiptamælingu, blóðþrýsting, álagsmælingu, öndunarmælingu, líkamssamsetningu og gripstyrk, segir Lukka.“ Síðan Greenfit hóf að bjóða upp á ástandsskoðun hefur fyrirtækið vaxið og dafnað og býður nú upp á fjölbreytta þjónustu. Má þar nefna ítarlegar heilsufarsmælingar, heilsuþjálfun, hlaupaþjálfun og næringarþjálfun. Á síðasta ári bættust svo við rauðljósa, kulda- og súerefnismeðferðir en þær hafa fengið gríðarlega góðar viðtökur samkvæmt Lukku; „Rauðljósameðferðin hefur sérstaklega verið vinsæl hjá okkur enda getur hún verið frábær leið til þess að auka orku og flýta endurheimt, draga úr bólgum og bæta húðina. En fólk kemur líka í kuldameðferð og nær sér í auka orku og svo súrefnismeðferðin sömuleiðis öflug leið til þess að auka endurheimt og ýta undir eðlilega líkamsstarfsemi.“ Þess ber að geta að þjónusta Greenfit er ekki heilbrigðisþjónusta. Hún er ekki ætluð til þess að greina eða meðhöndla sjúkdóma og kemur ekki í stað læknisfræðilegrar þjónustu. Tilgangur þjónustunnar er að veita innsýn í mælingar og heilsu, efla heilsulæsi, fræða og upplýsa um leiðir að bættri heilsu og vellíðan. Rauðljósa, kulda- og súerefnismeðferðir Greenfit hafa fengið gríðarlega góðar viðtökur. Kynning á námskeiði og kynningartilboð Í form á sex vikum verður kynnt sérstaklega í húsakynnum Greenfit, við Dalveg 16b, klukkan 18:00 í dag. Þar gefst gestum og gangandi tækifæri á því að kynnast starfsemi Greenfi en þar verða Sigurður og Lukka með fræðsluerindi og þá verður kynning á rauðljósa-, súrefnis- og kuldameðferðum Greenfit. Þar að auki verður sérstök kynning á Nike hlaupaskóm og þá eiga gestir möguleika á því að vinna par af hlaupaskóm.
Heilsa Mest lesið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Ljósavinir fögnuðu í Sjálandi Lífið Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Lífið Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið Seld sú hugmynd að grannur líkami sé það eina sem er aðlaðandi Lífið Vatn og brauð íslenskra fanga: Hvað elda menn í íslenskum fangelsum? Menning Munur er á manviti og mannviti Menning „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Lífið Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Lífið Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Lífið Fleiri fréttir Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Útreiðartúrinn leiðir lesendur inn í flókið net fjölskyldu, vináttu og leyndarmála Himnesk rúmföt úr egypskri bómull Nóvella sem leiðir lesandann inn í söguna á nýjan hátt Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Þegar vitvél fær spurningu um nasisma og allt fer í háaloft The Barricade Boys koma til Íslands með Broadway Party Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Breyta bíóinu í risastórt skemmtisvæði í tilefni afmælis „Nýju hverfin eintómar stafsetningarvillur“ Nýjasta bók Gunna Helga sprengdi TikTok Skrímslaævintýri á Álftanesi varð að blómstrandi fjölskyldufyrirtæki Spennandi breytingar í GK Reykjavík – verslunin flutt í Evu Jólagjafir sem gleðja hárið og hjartað Gerður Kristný, Andri Snær og Þórunn Valdimars meðal upplesara í kvöld Myndaveisla: Glæsileg frumsýning Zootropolis 2 í Kringlunni Fortíð og nútíð fléttuð saman í nýrri spennandi unglingasögu Vill að lesendur skemmti sér en verði samt skíthræddir Að lifa er að hlusta á þúsund sögur Slökkviliðin og vinsæll barnabókahöfundur leiða saman hesta sína Kostnaður listarinnar Spennandi unglingabók um samfélag í upplausn, samkennd og heitar tilfinningar Á Hvömmum er lífið allt nema einfalt Kenzen með 5 af topp 20 vörunum á Óskar appinu Fjörðurinn, húsið og leyndarmálin Græjaðu gjafalistann á góðum prís Snjallt pöntunarkerfi á hádegismat sparar vinnu, tíma og kostnað Ný vefverslun Slippfélagsins er paradís fyrir myndlistafólk Sjá meira