Stúkan óviðgerðarhæf og jafnvel hættuleg Árni Sæberg skrifar 6. júní 2024 13:01 Þessi mynd var tekin árið 2018. Þá var stúkan ekki í góðu ásigkomulagi og það hefur aðeins versnað. Vísir/Rakel Ósk Sérfræðingar sem fengnir voru til þess að meta ástand stúkunnar við Laugardalslaug telja ekki líkur á að hún muni hrynja að svo stöddu. Annar þeirra segir þó ljóst að aldrei verði gert við umfangsmiklar skemmdir á stúkunni og meta þurfi hvort takmarka þurfi aðgang að henni vegna hættu.
Á fundi borgarráðs í dag voru lögð fram gögn vegna fyrirhugaðrar hönnunarsamkeppni á Laugardalslaug og tengdum mannvirkjum. Viðhaldi lítið sinnt á síðustu árum Verkfræðistofa Reykjavíkur var fengin til þess að greina burðarþol áhorfendapalla og skyggnis stúkunnar. Í inngangi skýrslu stofunnar segir að á ríflega fimm áratugum sem liðnir eru frá byggingu stúkunnar hafi komið fram skemmdir á mannvirkinu, eins og búast hafi mátt við. Horft vestur eftir þaki. Í steyptri þakrennu við vesturbrún þaksins eru skemmdir vegna vatns.Verkfræðistofa Reykjavíkur Ráðist hafi verið í viðgerðir og viðhald á mannvirkinu í viðleitni til þess að framlengja líftíma þess, en á seinni árum hafi því lítið verið sinnt, nema til þess að takast á við vatnsleka frá áhorfendapöllunum inn í húsnæðið sem undir er. Sýnilegar skemmdir víða Í skýrslunni segir að sýnilegar skemmdir séu mjög víða, bæði á plötum og römmum. Á plötum megi glöggt sjá útfellingar sem stafa af rakastreymi í gegnum plöturnar. Mest beri á þessum útfellingum undir láréttri plötu næst bakvegg stúkunnar og neðst á skyggni, einnig næst bakvegg. Í römmunum sjálfum sé nokkuð mikið um sprungur, eftir sjónmati sé ekki ósennilegt að þær tengist frostskemmdum og hugsanlega alkalívirkni, en engin rannsókn hafi verið gerð á steypunni í tengslum við þetta ástandsmat, önnur en styrkprófun. Skemmdir á steyptum ramma við vesturvegg, undir plötu áhorfendasvæðis. Þegar klæðningu er flett af kom í ljós steypuviðgerðir og merki um að bleyta hafi komist inn fyrir klæðningu.Verkfræðistofa Reykjavíkur Í römmum séu víða merki í ryðskemmdir í steypustyrktarstáli, sér í lagi í lykkjum sem liggja næst yfirborði steypunnar, en einnig í langjárnum. Umfang ryðskemmda í lykkjum kunni að hafa dregið töluvert úr skúfstyrk burðarvirkja. Í bakvegg stúkunnar sé skúfkraftur frá skyggni að stóru leyti borinn af rammanum þar sem gluggar skera vegginn í sundur. Í jarðskjálfta kunni þessu rýrnun á skerstyrk að hafa alvarlegar afleiðingar. Engin yfirvofandi hætta á hruni Í niðurstöðukafla skýrslunnar segir að prófanir á steypukjörnum úr þaki skyggnis hafi leitt í ljós að þrátt fyrir umtalsverða sprungumyndun sé þrýstistyrkur steypu í samræmi við forsendur hönnunar. Ryðskemmdir á járnum hafi leitt til þess að skúfstyrkur vissra burðarhluta hefur rýrnað og einnig megi sjá merki um ryðmyndun í langjárnum sums staðar. Þeir burðarhlutar stúkunnar sem eru verst farnir séu ofanáliggjandi þakbitar skyggnis, stoðir við vesturvegg og bitar sem liggja undir vestasta hluta áhorfendasvæðis. Mest reyni á skúfstyrk stoða við vesturvegg í gluggahæð, en annars staðar séu rammar hússins tengdir saman með veggskífum eða plötum. Skemmdir í steypu og járnum, bæði lykkjum og langjárnum. Þessar skemmdir eru fyrir neðan plötu og trúlega eru mestu skemmdirnar neðst á vegg, fyrir neðan gluggaröðina.Verkfræðistofa Reykjavíkur Ekki sé ljóst hvort stúkan uppfylli enn þann staðal sem hún á sínum tíma var hönnuð eftir. Skerstyrkur súlnanna gagnvart jarðskjálftaálagi eftir lengd hússins sé nokkuð nærri útreiknuðu jarðskjálftaálagi, ef miðað er við núgildandi staðal. Ef gert er ráð fyrir því að engar lykkjur séu fyrir hendi sé skerstykur súlunnar 70 kN, en álagið nálægt 80 kN. Þó eitthvað sé um ryðmyndun í járnum sé líklegt að skerstyrkur súlunnar sé nægur, enda sé heildarstyrkur skerbendingar nálægt 40 kN. „Það er mat höfunda að þrátt fyrir skerta burðargetu mannvirkisins sé engin yfirvofandi hætta á hruni eins og ástandið er í dag.“ Ekki að hrynja að svo stöddu en gæti verið hættulegt Þá var verkfræðingur og steypusérfræðingur frá Verkís fenginn til þess að vinna minnisblað um ástand stúkunnar. Í niðurstöðukafla minnisblaðsins segir að ljóst sé að mannvirkið er mjög illa farið af steypuskemmdum og umfang skemmda sé svo mikið að það teljist illa og jafnvel óviðgerðarhæft. Skemmdir í stoðum undir skyggni, staðbundin ryðmyndun í lykkjum, sprungur í steypu. Einnig sjást merki um rakaflæði í gegnum plötu skyggnis.Verkfræðistofa Reykjavíkur Flestir fletir séu illa og jafnvel óviðgerðarhæfir og hættulegt að umgangast það í of mikilli nálægð. „Þetta mannvirki verður aldrei hægt að gera við á fullnægjandi hátt. Meta þarf hvort ástæða sé til að loka af alla umferð um mannvirkið. Taka skal fram að mannvirkið mun ekki hrynja að svo stöddu en það er ljóst að það mun halda áfram að hrynja úr því.“
Reykjavík Borgarstjórn Sundlaugar Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira