LED ljósameðferðir: Nýjasta trendið í húðumhirðu Elira 10. júní 2024 11:59 Árangur sést strax á fyrstu meðferð þar sem blóðflæðið eykst og húðin ljómar, einnig eykst seratónín í líkamanum og þar með vellíðan. „LED ljósameðferð hafa verið að tröllríða öllu úti í heimi þetta ár og við erum alveg einstaklega stoltar að geta boðið upp á virkar og flottar LED meðferðir hérna hjá okkur Eliru snyrtistofu," segir Rakel Ósk Guðbjartsdóttir snyrtifræðingur og eigandi Eliru. „
Meðferðirnar bæta útlit húðarinnar á öruggan hátt. Þær hafa hlotið mikla athygli fyrir margþættan ávinning sinn og hefur verið notuð af bæði almenningi og fagfólki í húðlækningum í nokkurn tíma núna. LED (Light Emitting Diode) ljósameðferðirnar fela í sér notkun ljósa af mismunandi bylgjulengdum til að örva og endurnýja húðina. Meðferðirnar er bæði ótrúlega áhrifaríkar og algjörlega sársaukalausar, sem hafa gert þær að eftirsóknarverðum kosti fyrir þá sem vilja forðast inngripsmiklar aðgerðir eins og sterkar sýru- og lasermeðferðir eða fylliefni." Ávinningur LED ljósameðferða Ljósin eru mismunandi og virka á mismunandi máta. Blátt ljós er notað til að drepa bakteríur sem valda bólum og fílapenslum. Blátt ljós leiðir til hreinni húðar án sýkinga. Rautt ljós örvar framleiðslu kollagens og elastíns, sem hjálpar til við að slétta úr fínum línum. Gult ljós hefur bólgueyðandi eiginleika sem hjálpa til við að róa húðina og minnka roða, sérstaklega hjá þeim sem þjást af rósroða. Ljósdíóðuljós (LED) virkjar ljósskynjara húðarinnar og gerir húðfrumum kleift að taka upp orku þess. Í meðferðum nær LED-ljósið inn í húðina til að meðhöndla vandamál innan frá og út. LED-ljósið vinnur í djúpum lögum húðarinnar til að hindra myndun baktería, örva kollagen og draga úr bólgum. Mismunandi bylgjulengdir munu vinna á mismunandi vandamálum og meðferðaraðilinn mun sérsníða meðferðina til að henta hverjum einstaklingi, sem gerir það að verkum að allir geta notast við LED ljós. Engin húðumhirða kemst eins djúpt og LED og vinnur það ekki á efsta húðlaginu sem þýðir að það er enginn batatími eða aukaverkanir á efsta lagi húðarinnar. Sérsniðnar meðferðir geta verið í boði – LED-ljós getur verið samþætt í hvaða meðferð sem er til að ná betri árangri. Árangur sést strax á fyrstu meðferð þar sem blóðflæðið eykst og húðin ljómar, einnig eykst seratónín í líkamanum og þar með vellíðan. Til að draga úr fínum línum og auka kollagen framleiðslu þá þarf nokkur skipti. Mælt er með 6-9 meðferðum einu sinni í viku og svo reglulegum viðhaldsmeðferðum. Flutt í glæsilegt húsnæði á Hallgerðargötu Elira flutti úr Smáralindinni í lok síðasta árs í enn stærra húsnæði á Hallgerðargötu. „Við vildum bæta við okkur snyrtiherbergjum til að geta boðið upp á það allra besta sem gerist í húðmeðferðum í dag ásamt öðrum klassískum snyrtistofumeðferðum. Snyrtistofan býður upp á glæsilegar andlitsmeðferðir, litun og plokkun, lash og brow lift, vax og fótsnyrtingu ásamt LED andlitsmeðferðunum.“ Snyrtivöruverslunin leggur áfram áherslu á ráðgjöf og góða þjónustu „Úrvalið af húð- og snyrtivörum er mikið í dag og aðgengi að allskonar upplýsingum er ótæmandi. Því er mikilvægt að geta fengið faglega ráðgjöf um innihald og rétta notkun húð- og förðunarvara. Hér í Eliru vinna eingöngu lærðir snyrtifræðingar og förðunarfræðingar og við bjóðum einungis upp á hágæða snyrtivörur og förðunarvörur ásamt persónulegri þjónustu,“ bætir Rakel við að lokum. Nánar á elira.is.
Heilsa Tíska og hönnun Hár og förðun Mest lesið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Lífið Laufey fær eigin God of War leik Leikjavísir Datt af sviðinu og beint í skurð Tónlist Stjörnufans í eins árs afmæli Lífið Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Lífið Peabo Bryson er látinn Tónlist Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Lífið Fleiri fréttir Celebrating George Michael kemur til Íslands Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Sjá meira