Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Jón Þór Stefánsson skrifar 2. ágúst 2024 11:49 Málið varðar innflutning fíkniefna í pottum í skemmtiferðaskipi. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Karlmaður á fertugsaldri, sem er einn sakborninga í stórfelldu fíkniefnamáli, sem kennt hefur verið við potta og skemmtiferðaskip, er ákærður fyrir tilraun til manndráps. Honum er gefið að sök að hafa tekið annan mann kyrkingartaki, eins og segir í ákæru, og þrengt að öndunarvegi hans í að minnsta kosti sjö mínútur.
Meint árás er sögð hafa átt sér stað aðfaranótt laugardagsins 11. mars í fyrra í Norðlingaholti. Þá segir í ákæru að það hafi verið lögregla sem hafi tekist að losa manninn úr taki meints árásarmannsins. Sá sem varð fyrir árásinni mun hafa verið settur í lífshættulegt ástand sem birtist í meðvitundarskerðingu, krömpum og blóðsúrum. Í ákæru málsins kemur ekki fram hvort eða hvernig meint árás tengist sjálfu fíkniefnamálinu. Meint árás er sögð hafa átt sér stað í Norðlingaholti. Myndin er úr safni.Vísir/Vilhelm Foreldri á áttræðisaldri að geyma fíkniefni Fréttastofa hefur ákæru málsins undir höndum. Hún er umfangsmikil og telur tíu blaðsíður. Sakborningar málsins eru átján talsins, en þeir eru ýmist ákærðir fyrir fíkniefnalagabrot, peningaþvætti, vopnalagabrot, sem og áðurnefnda tilraun til manndráps. Af þessum átján sakborningum eru þrettán karlar og fimm konur. Aldursdreifing hópsins er nokkuð mikil. Flestir sakborningana eru á fertugs- og fimmtugsaldri, en sá yngsti er 28 ára. Tveir elstu sakborningarnir eru 63 ára og 71 árs. Hvort þeirra eru foreldrar annara sakborninga málsins, en fíkniefni munu hafa verið falin á heimilum þeirra. Níu af átján sakborningum málsins eru ákærðir fyrir að skipuleggja brotastarfsemi og stórfelld fíkniefnalagabrot frá því í fyrra til 11. apríl á þessu ári. Í ákæru segir að fólkið hafi sammælst og verið meðvituð um tiltekna verkaskiptingu við geymslu, pökkun, sölu, og dreifingu efnanna. Leiðbeiningar um hvernig eigi að koma fíkniefnum úr skipinu Líkt og áður segir hefur málið verið kennt við potta og skemmtiferðaskip. Það er vegna þess að hluti ákærunnar varðar innflutning á 2177 grömmum af kókaíni sem voru falin í tveimur pottum og flutt til landsins með skemmtiferðaskipi sem lagðist við bryggju á Íslandi þann 11. apríl 2024. Þeir fjórir sakborningar sem eru ákærðir fyrir það brot eru sagðir hafa sammælst um þátttöku í starfseminni með því að skiptast á skilaboðum í gegnum samskiptaforritið Signal og með símtölum. Þeir hafi rætt sín á milli og leiðbeiningar um það hvernig ætti að koma fíkniefnunum úr skipinu og hverjum ætti að afhenda þau, hvar ætti að sækja þau og hvernig og hvar ætti að fjarlægja efnin úr pottunum. Í ákærunni segir að tveir mannanna hafi komið með efnin til landsins sem farþegar skemmtiferðaskipsins og annar þeirra afhent þriðja manninum þau sem var í kjölfarið handtekinn. Sá sem var handtekinn er sá sami og er grunaður um tilraun til manndráps. Margar milljónir í reiðufé fluttar í sífellu milli manna Nokkrir sakborningana eru ákærðir fyrir peningaþvætti í skipulagðri brotastarfsemi. Í raun er um tvö peningaþvættismál að ræða sem samtals tæplega 29 milljónir króna. Í ákæru er annars vegar fjallað um 12,396 milljónir króna í reiðufé sem einn sakborningur var með í fórum sínum og á að hafa verið afrakstur brotastarfsemi hans. Sakborningurinn hafi afhent öðrum sakborningi peningana, sem afhenti svo enn öðrum sakborningi peningana, sem afhenti loks fjórða sakborningnum peningana, en lögregla stöðvaði þann mann. „Með framangreindum hætti fluttu ákærðu hinn ólögmæta ávinning og leyndu honum og ráðstöfun hans,“ segir í ákæru. Hins vegar er fjallað um 16,175 milljónir krónur í reiðufé, sem lögreglan vill meina að sé líka afrakstur brotastarfsemi. Lögreglan mun hafa fylgst með einum sakborningunum sækja peningana til annars manns, fara í námunda við heimili annars sakbornings og afhenda honum peningana. Sá mun hafa afhent fjórða manninum peningana sem ætlaði að flytja þá úr landi. Hann var stöðvaður á Keflavíkurflugvelli þegar tollverðir fundu peningana, en þá var hann á leið til Vínarborgar í Austurríki. Með sverð og skammbyssu með hljóðdeyfi Sakborningarnir eru ákærðir fyrir fleiri brot, líkt og vörslu fíkniefna í mismiklu magni, frá örfáum grömmum upp í hundruð gramma. Þá eru nokkrir ákærðir fyrir vopnalagabrot. Maðurinn sem er grunaður um tilraun til manndráps er til að mynda ákærður fyrir að hafa haflabyssu, skotfæri, loftskammbyssu með stálkúlum, rafbyssu, hnúajárn og piparúðabrúsa í fórum sínum, en lögregla á að hafa fundið vopnin á heimili og bíl mannsins. Einn er ákærður fyrir að hafa í vörslum sínum rafmagnsvopn, ein er grunuð um að vera með stunguvopn. Síðan er einn maðurinn ákærður fyrir að vera með bitvopn, fjaðurhníf, kasthníf, átta stunguvopn, fimm axir, sverð, skammbyssu með hljóðdeyfi, aðra skammbyssu, haglabyssu, 59 haglabyssuskot og tuttugu önnur skot sem lögregla fann á heimili hans. Rak hópinn eins og fyrirtæki Áður hefur verið fjallað um uppbyggingu og hlutverkaskiptingu hópsins, en í greinargerð lögreglu segir að hann hafi verið þaulskipulagður. Fram kom í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur að átta sakborningana hefðu verið í spjallhóp á samskiptaforritinu Signal. Þar hafi allir gengið undir leyninöfnum. Rannsóknargögn lögreglu sýni að einn sakborningurinn hafi verið yfir allri starfseminni í umræddum söluhóp. Hann hafi rætt starfsemina eins og um fyrirtæki væri að ræða og talað um hlutverk allra í hópnum.
Dómsmál Lögreglumál Fíkniefnabrot Reykjavík Sólheimajökulsmálið Mest lesið Hugsi yfir ríflegum launahækkunum kennara Innlent Leggur til íslenskan her, leyniþjónustu og herskyldu Innlent Jakob Reynir Aftur reyndi aftur og fær að reyna aftur Innlent Brugðist við biðlaunum Ragnars Þórs: „Mesta bull sem ég hef heyrt“ Innlent Furðu lostin yfir bílaplani í grænmetisparadís Innlent Vilja að RÚV feti í fótspor Slóveníu Innlent Engin röð á Læknavaktinni Innlent Lítil huggun í svörum sendiráðsins og íþróttafólki hótað lífstíðarbanni Innlent „Þetta er bara það sem aðrir hópar hjá okkur hafa fengið í gegnum tíðina“ Innlent Sturluðu myndskeiði af „Nýja-Gasa“ deilt á samfélagsmiðlum Trump Erlent Fleiri fréttir Flokkur fólksins á niðurleið Flugbrautin opnuð á ný Þjófurinn reyndist sofandi inn á baði Sögulegur samningur og Flokkur fólksins á niðurleið Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Bein útsending: Öryggismál í öndvegi Bæjarskrifstofan snýr aftur til Grindavíkur Brugðist við biðlaunum Ragnars Þórs: „Mesta bull sem ég hef heyrt“ Furðu lostin yfir bílaplani í grænmetisparadís Tekur varaformannsslaginn Jakob Reynir Aftur reyndi aftur og fær að reyna aftur Ráðist í skipulagsbreytingar og þremur sagt upp Hugsi yfir ríflegum launahækkunum kennara Kátt á hjalla í Karphúsinu í gærkvöldi Leggjast aftur yfir myndefnið Leggur til íslenskan her, leyniþjónustu og herskyldu Vilja hvalkjöt af matseðlinum Lítil huggun í svörum sendiráðsins og íþróttafólki hótað lífstíðarbanni Handtökur vegna nágrannaerja og slagsmála í miðbænum Nágranni vill banna kylfingum að nota veginn að Bakkakotsvelli Vilja að RÚV feti í fótspor Slóveníu „Þetta er bara það sem aðrir hópar hjá okkur hafa fengið í gegnum tíðina“ Ógeðslega stoltur af kennurum Einróma samþykki og borgarstjóri í skýjunum Kjarasamningur kennara í höfn Engin röð á Læknavaktinni Segir lífeyrisgreiðslur skertar á fölskum forsendum Reykjavík ekki ljót borg Hefur enga skoðun á máli Ragnars Þórs Ókunnugir og fyrrverandi meðal þeirra sem gætu verið að fylgjast með Sjá meira