Hrefna Rósa Sætran, matreiðslumeistari og veitingahúseigandi sagði nýverið að kassi af gúrku hafi hækkað um þúsund krónur í heildsölu frá því í lok júní, mest af öllum vörum sem hún kaupi inn. Ástæðuna telji hún augljóslega mega rekja til óvæntra vinsælda gúrkunnar í sannkallaðri gúrkutíð á TikTok.
Þórhallur Bjarnason, garðyrkjubóndi á Laugalandi í Borgarfirði hefur sagt gúrkuskort vera viðvarandi vandamál og framleiðendur ekki hafa undan. Ekki sé um nýtt vandamál að ræða og bændur hafi ekki undan.
Hann sagði gúrkusalatið á Tiktok ekki einu skýringuna á þessu, heldur sé agúrkan einfaldlega vinsæl og að Tiktok uppskriftir valdið því að neyslan hafi aukist enn frekar.
Vona að staðan lagist fljótlega
Fréttamaður breska ríkisútvarpsins BBC hefur eftir Sölufélagi garðyrkjumanna að uppskriftir að gúrkusalati hafi reynst svo vinsælar að garðyrkjubændur nái ekki að halda í við aukna eftirspurn. Vonast sé til þess að framboð verði komið í eðlilegt horf eftir um viku.

Í frétt BBC segir að sala á gúrkum hafi meira en tvöfaldast í verslunum Hagkaupa en að forsvarsfólk verslunarkeðjunnar dragi orsakatengslin milli samfélagsmiðlaæðisins og aukinnar eftirspurnar í efa. Vinsældir gúrkusalatsins séu ekki eina skýringin á skortinum og það sé algengt að lítið sé til af íslenskum gúrkum á þessum tíma ársins, að sögn Vignis Þórs Birgissonar, vörustjóra matvöru hjá Hagkaup.
Haft er eftir Kristínu Lindu Sveinsdóttur, markaðsstjóra Sölufélags garðyrkjumanna í sömu frétt að fleiri þættir spili líklega inn í. Margir gúrkubændur skipti út plöntunum sínum á þessum tíma árs og skólar séu að hefjast á ný, sem auki enn eftirspurn.
„Þetta er í fyrsta sinn sem upplifum eitthvað þessu líkt,“ segir Kristín.

Pantað neyðarsendingu af gúrkum frá Hollandi
Fullyrt er í frétt bandaríska stórblaðsins The New York Times að margir íslenskir heimakokkar hafi furðað sig á gúrkuleysinu. Rætt er við Daníel Sigþórsson sem segist hafa leitað að gúrku í þremur verslunum en ekki haft erindi sem erfiði.
Þá er haft Guðrúnu Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar að gúrkur séu uppseldar í verslunum um allt land. Stjórnendur hafi þurft að bregðast við skortinum með því að panta neyðarsendingu frá Hollandi.