Skoðun

Inn­flutt skautun í boði Við­reisnar

Hópur ungra Sjálfstæðiskvenna skrifar

Formaður Viðreisnar var stóryrt í Pallborðinu á Vísi í vikunni.

Þar fullyrti hún að Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki staðið vörð um frelsi einstaklinga á síðustu árum og nefndi þá sérstaklega kvenfrelsi. Þar ákvað formaður Viðreisnar að draga umræðu um þungunarrof inn á svið stjórnmálanna líkt og klofið hefur bandarísku þjóðina síðustu 40 ár. Reynir formaður Viðreisnar að mála upp ímyndaðan andstæðing til þess að skora ódýr pólitísk stig.

Ísland fremst meðal þjóða hvað varðar kvenfrelsi

Formaðurinn gerir með því augljósa, en afar ósanngjarna, tilraun til þess að gera rétt til þungunarrofs að kosningamáli í Alþingiskosningunum nú, líkt og í komandi forsetakosningum vestanhafs.

Réttur kvenna til þungunarrofs á Íslandi er óskoraður. Hér ríkir víðtæk sátt um nauðsyn þess að réttur kvenna til að geta rofið þungun að eigin ósk sé tryggður og er Ísland fremst meðal þjóða í heiminum þegar kemur að kvenfrelsi og jafnrétti. Fyrir suma kann að vera nauðsynlegt að færa til bókar að enginn fer í þungunarrof að gamni sínu.

Sorgleg þróun í Bandaríkjunum á ekkert skylt við Ísland

Því fer fjarri að rétti kvenna til þungunarrofs hér á landi svipi til þess sem gengur og gerist í Bandaríkjunum. Það veit formaður Viðreisnar. Þar hafa konur og frjálslynd öfl barist gegn afnámi þessara sjálfsögðu réttinda í fjölda ríkja síðan Hæstiréttur Bandaríkjanna snéri við niðurstöðu sinni í máli Roe gegn Wade árið 2022, máli sem réttur kvenna til þungunarrofs hafði verið byggður á í hálfa öld.

Var ákvörðunarvald um löggjöf til þungunarrofs þá fært til fylkjanna og hefur víða verið gengið svo nærri rétti kvenna til þungunarrofs að er varla hægt að segja að um réttindi sé að ræða. Þar hefur þungunarrof verið bannað nánast alfarið, jafnvel án undantekninga fyrir nauðgun, sifjaspell eða þegar heilsa móður er í hættu. Í sumum tilfellum er þungunarrof einungis leyft mjög snemma á meðgöngu, oft innan fyrstu sex til átta vikna. Þetta er sorgleg þróun og afturför sem ber að fordæma, en á sér blessunarlega enga samsvörun í pólitískri umræðu á Íslandi.

Formaður Viðreisnar slær með orðum sínum gagngert ryki í augu fólks og vill telja því trú um að hér sé um umdeilt pólitískt mál að ræða, og til standi að skerða rétt kvenna. Því fer fjarri, skerðing á rétti kvenna til þungunarrofs er ekki á dagskrá hér á landi en ef svo væri þá stæði Þorgerður Katrín svo sannarlega ekki ein í þeirri baráttu. Ekki stæði á sjálfstæðiskonum.

Ódýr pólitísk stigasöfnun Viðreisnar

Á Íslandi er konum treyst til að taka ákvarðanir um eigin líkama og ekki að sjá að umræddar breytingar á löggjöfinni árið 2019 hafi breytt neinu til hins verra í þeim efnum. Rétt skref var stigið í víðtækri pólitískri sátt þótt skiptar skoðanir hafi verið um hvort miða skyldi við 20 vikur eða 22 þegar málið var rætt á Alþingi, sem hvort tveggja er með því frjálslyndasta sem gerist í heiminum.

Undirritaðar frábiðja sér að teiknuð sé upp óþarfa skautun um mál sem ríkir breið samstaða um á Íslandi, gagngert í þeim tilgangi að skora ódýr pólitísk stig

Höfundar eru ungar sjálfstæðiskonur.

Andrea Gunnarsdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Ingveldur Anna Sigurðardóttir, Katrín Sigríður Þorsteinsdóttir, Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, Lísbet Sigurðardóttir, Nanna Kristín Tryggvadóttir, Sigríður Erla Sturludóttir og Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×