Þöggun Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir, Margrét Kristín Blöndal, Margrét Rut Eddudóttir, Lukka Sigurðardóttir, Sigtryggur Ari Jóhannsson og Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifa 5. nóvember 2024 08:47 Síðastliðinn laugardag, 2.nóvember var alþjóðegur baráttudagur gegn refsileysi glæpa á blaðamönnum og mótmælti hópur fólks, af því tilefni, með táknrænum gjörningi fyrir utan Útvarpshúsið. Mótmælendur vöktu þar athygli á þeim gríðarlega fjölda blaðamanna sem skipulega hafa verið myrtir af Ísraelsher á undanförnum tólf mánuðum en 180 blaðamenn hafa verið drepnir á Gaza og hið minnsta 129 teknir til fanga á þessu tímabili. Mótmælendur, lögðust á jörðina, með alþjóðlegt merki blaðamanna og lágu þar hreyfingarlausir í 10 mínútur. Yfirlýsing var síðan lesin upp þar sem fram kom gagnrýni á fréttaflutning meginstraumsmiðla af þjóðarmorðinu. Sá fréttaflutningur sem almenningi hefur verið boðið upp á síðastliðið ár þykir villandi og ekki gefa raunsanna mynd af þeim veruleika sem heimsbyggðin þó verður vitni af utan meginstraumsmiðla af þeim hrottalegu stríðsglæpum sem Ísraelsher fremur og gereyðingu þeirra á Gaza. Í dag eru 395 dagar liðnir. 395 dagar, síðan sú hrina þjóðarmorðs sem hið svokallaða Ísraelsríki hefur með tryggum og dyggum stuðningi Bandaríkjanna og annarra Evrópuþjóða framkvæmt af fordæmalausri ómennsku, þar sem markmiðið er skýrt, útrýming Palestínsku þjóðarinnar. Sá glæpur, sem hefur verið eins og tryggt fylgitungl þessarar þjóðarmorðshrinu þ.e þöggunin, um þjóðarmorðið hefur verið með æ skýrari hætti að framkallast, eins og fjölmargir hafa bent á. Þöggunin sem megnið af vestrænum meginstraumsfjölmiðlum hafa gerst sekir um að beita á svívirðilegan hátt. Þöggun, sem beitt er með því að villa bæði meðvitað og ómeðvitað um fyrir almenningi, með umfjöllun og eða umfjöllunarleysi um hrottalega stríðsglæpi sem framdir eru í akkorði af Ísraelsher á Palestínskum almenningi, á Gaza sem og á Vesturbakkanum. Þōggunin er um glæp gegn mannkyni, sem framinn er fyrir augum okkar allra og meginstraumsfjōlmiðlar hafa valið meðvitað og ómeðvitað að taka sér stöðu með kúgaranum. Í félagi við stjórnvöld og aðrar ábyrgar samfélagsstofnanir hafa þeir “normalíserað” hryllinginn. Hvernig? Jú með því að beita aðferðum eins og "engri umfjöllun" t.d. á morðunum á öllum þessum fjölda blaðamanna sem skipulega hafa verið drepnir eða teknir til fanga og pyntaðir. Blaðamenn sem höfðu fram að því lifað við gengdarlausar hótanir um fyrirhuguð dráp, hvort heldur á þeim sjálfum og/eða fjölskyldum þeirra. „Að flytja ekki fréttina“ er önnur aðferð. Þegar Ísraelsher brenndi fólk lifandi með því að skjóta eldvörðum inn í spítala sem einnig var skjól fyrir flóttafólk, þá var fréttina um það hvergi að finna á fyrrnefndum miðlum. Það var ekki fyrr en viku síðar, líklega fyrir tilstilli gagnrýni almennings, sem yfirþyrmdur af hryllingi vakti athygli fréttastofu RÚV á atburðunum! Lét fréttastofan þá tilleiðast og tróð fréttinni af voðaverkinu inn í tíufréttir sjónvarps, viku síðar! "Að nefna aðeins hluta upplýsinga", "að veita rangar upplýsingar", "að leiðrétta ekki rangfærslur", samanber þá hryllingsfrétt sem RÚV flutti sannarlega um afhöfðuð börn í bakaraofnum frá 7.október, frétt sem fyrir löngu hefur verið hrakin með ítarlegum réttarrannsóknum. Frétt sem að var uppspunnin frá rótum og fyrrgreindir miðlar, þ.a.m RÚV lapti upp, beint upp úr áróðursmaskínu ísraelskra stjórnvalda. "Orðalag", það að notast stanslaust við orðið stríð (sem þetta er ekki), átök og hryðjuverkasamtök í fréttaflutningi. Þar að auki er það regla fremur en tilhneiging hjá þessum fréttastofum að nota annars vegar orðið gísl, þegar talað er um ísraela sem teknir hafa verið höndum, en hins vegar er orðið fangi notað þegar dæminu er snúið við. "Að nefna 7.október statt og stöðugt sem upphaf þjóðarmorðsins". Þessi atriði, ein og sér, gera það að verkum að afbōkuð mynd er gefin af þjóðarmorðinu. Með þessum aðferðum er búin til frásagnarmynd fyrir almenning sem ekki á við rök að styðjast. Það er ábyrgðarhluti. Fréttastjóri RÚV, Heiðar Örn Sigurfinnsson, hefur borið því við aðspurður í viðtali að engir fréttamenn séu á þeirra vegum Gaza og þess vegna sé erfitt að flytja "traustar fréttir" þaðan. Fréttastofan verði bara að reiða sig á þær "traustu" fréttaveitur sem hún sé með "samninga" við því au telji sig ekki geta sannreynt myndefni þeirra fréttamanna sem staddir eru á vettvangi. Nú er erfitt að ráða í hvað hann á við, einkum þegar ljóst er að fréttastofa Al Jazeera er ein þeirra fréttaveitna sem RÚV hefur "samninga" við og sú fréttstofa hefur sannarlega verið með fréttamenn á Gaza þótt Ísraelsher hafi drepið þrjá þeirra og tveir í viðbót séu í lífshættu eftir morðtilraunir þeirra. Á fréttastjóri Ríkisútvarpsins mögulega við að fréttum úr ōðrum heimshlutum sé ekki treystandi? Að myndefni fréttafólks á Gaza sé ekki trúverðugt? Meginþorri almennings hefur horft í 395 daga á börnum og foreldrum þeirra slátrað í umvörpum. Fólk er svelt til bana með skipulögðum hætti, tekið til fanga pyntað á ólýsanlegan hrottafenginn hátt. Sjúkrahús, grunnskólar háskólar, moskur, kirkjur, bakarí, allt jafnað við jörðu. Vatnslagnir eyðilagðar, kirkjugarðar eyðilagðir, rafmagn tekið, Allir innviðir, allt samfélagslegt grunnkerfi Gaza hefur verið sprengt í loft upp. ÞVÍ EYTT. ÖLLU EYTT. Ōllu eytt samkvæmt nákvæmri áætlun ísraelskra stjórnvalda, og allt í beinni útsendingu! Um 1000 fjölskyldur hafa með skipulögðum hætti verið þurrkaðar út af þjóðskrá Palestínu! Til viðbótar öllum þessum hryllingi hōfum við orðið vitni að því hvernig Ísrael og Bandaríkin lítilsvirða alþjóðastofnanir og gera að engu, alþjóðalōg, samþykktir og tilskipanir þeirra. Fótunum hefur vísvitandi verið kippt undan ōryggi heimsins vegna þessa. Þetta eru einfaldlega stærstu og hryllilegustu atburðir sem heimurinn hefur orðið vitni að! Hver er eiginlega hvatinn á bak við það að fjalla ekki um þá á raunsannan hátt? Um þessa helför í beinu streymi sem enginn stöðvar. Um þessa helför og útrýmingu og viðbrögð heimsins við henni þar sem almenningur mótmælir stöðugt því hann þolir ekki viðbjóðslegt óréttlætið, hrottalegt ofbeldið og gengdarlaus drápin á hundruðum þúsunda saklauss fólks en valdhafar heimsins virðast vera á þeim djöfuls buxum að Palestínsku þjóðinni megi fórna og á mótmælendur, sem vilja fyrst og síðast frelsi og frið fyrir Palestínu, siga þeir ofbeldisfullri vopnaðri lögreglu. Staðreyndin um að aldrei hafi fleiri blaðamenn verið drepnir á stríðstímum frá upphafi mælinga, að blóðtaka í blaðamannastétt hafi aldrei nokkurn tímann verið meiri virðist ekki kalla á aukna umfjöllun fjölmiðla. Eða aðgerðir að hálfu blaðamanna? Er það, eðlilegt? Eðlilegt hefði manni þótt að það hefðu verið kollegar þeirra fréttamanna sem drepnir hafa verið sem mótmæltu fjöldamorðunum, en svo var alls ekki. Eðlilegt hefði verið að fjölmiðlar fjölluðu um þessa fordæmalausu aðför að frjálsri blaðamennsku en svo var alls ekki. Það er stríðsglæpur að myrða blaðamenn og það er brot á alþjóðasamþykktum að hindra fréttaflutning. Það er ár, síðan að Blaðamannfélag Íslands sendi frá sér yfirlýsingu þar sem félagið fordæmdi dráp á blaðamönnum í því sem það kallaði, átök Ísraelsmanna og Hamas þar sem þá 39 blaðamenn höfðu "látið lífið", í loftárásum Ísraelshers á Gaza. Síðan þá hefur ekki spurst til Blaðamannafélagsins. Þrátt fyrir að fréttamenn á Gaza séu yfirlýst skotmörk Ísraelshers í þeirri skipulögðu herferð þeirra, sem er þáttur í þjóðarmorðinu, sem gengur út á að þagga niður í þeim sem þora að skrásetja raunveruleika eyðileggingarinnar. Þannig gera þeir beina árás á grundvallarrétt okkar til upplýsinga, og eyða sögunni. Umfjöllun fyrrgreindra fjölmiðla hér um þjóðarmorðið fær engu að síður ámóta eða jafnvel minna vægi en listalífið í Reykjavík eða íþróttaafrek knattspyrnumanna í Evrópu. Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir Margrét Kristín Blöndal Margrét Rut Eddudóttir Lukka Sigurðardóttir Sigtryggur Ari Jóhannsson Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Margrét Kristín Blöndal Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Endalok einkalífsins: Hið alsjáandi auga Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar Skoðun Að semja gegn sjálfum sér Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson skrifar Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ég ætla að treysta komandi kynslóðum Margrét Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvernig er að eiga sæti við borðið Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Pólitískir vindhanar sem vilja nú hafa afstöðu af þjóð Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun „Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB,“ sagði engin þjóð aldrei Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun
Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar
Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar
Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun
Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun