Innlent

Sam­herji lagði lista­manninn Odee

Árni Sæberg skrifar
Listamaðurinn Odee ásamt flennistórri veggmynd þar sem beðist er afsökunar í leturgerð Samherja.
Listamaðurinn Odee ásamt flennistórri veggmynd þar sem beðist er afsökunar í leturgerð Samherja. Vísir/Vilhelm

Dómstóll í Lundunúm féllst í dag á allar kröfur Samherja hf., í máli sem félagið höfðaði á hendur listamanninum Oddi Eysteini Friðrikssyni, Odee, vegna afsökunarbeiðni og vefsíðu sem hann setti upp í nafni Samherja.

Þetta segir í tilkynningu á vef Samherja. Afsökunarbeiðnin og vefsíða sem Oddur smíðaði og lét líta út fyrir að vera á vegum Samherja var hluti af útskriftarverkefni hans við Háskólans í Björgvin í Noregi. Oddur hefur ítrekað reynt að blekkja fjölmiðla með fölskum fréttatilkynningum sem hann hefur sent út, nú síðast í nafni bandarísku kaffihúsakeðjunnar Starbucks.

Samherji óskaði eftir því að Oddur tæki vefsíðuna niður, afhenti fyrirtækinu lén hennar og gerði grein fyrir því að síðan hefði verið fölsuð. Því neitaði hann. Í kjölfarið stefndi Samherji Oddi fyrir breskum dómstól en vefsíðan var hýst í Bretlandi.

Í frétt norska ríkiútvarpsins síðan í september er haft eftir Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja, að Samherji krefðist þess einungis að Oddur tæki vefsíðuna úr loftinu og eyddi öllu tengdu útskriftarverkefninu. „Samherji hefur engan áhuga á að stefna [Oddi] umfram það að stöðva vísvitandi ólögleg brot hans.“

Í tilkynningu Samherja nú segir ekki hverjar kröfur félagsins á hendur Oddi, sem fallist var á, hafi verið.

Ekki listræn skopstæling

Í tilkynningu segir að í forsendum dómsins sé því slegið föstu að notkun vörumerkis Samherja við hönnun vefsíðunnar hafi verið gerð í því skyni að ljá vefsíðunni trúverðugleika en ekki í þeim tilgangi að varpa fram gagnrýni. Notkun vörumerkis og öll framsetning vefsíðunnar hafi verið eins og um væri að ræða opinbera vefsíðu félagsins. 

Þannig hafi hönnun síðunnar hvorki falið í sér listræna skopstælingu né skrumskælingu sem rúmast innan þess tjáningarfrelsis sem listamenn njóta.

Oddur hafi hafnað mildari úrræðum

Niðurstaða dómsins hafi verið að uppsetning vefsíðunnar á léni með nafni félagsins, og vísvitandi framsetning rangra upplýsinga þar inni, hafi falið í sér ásetning um blekkingar. Þá hafi ekki verið fallist á að framangreint feli í sér ólögmætar skerðingar á tjáningarfrelsi enda geti tjáningarfrelsi sætt takmörkunum vegna lögbundinna réttinda annarra og þar undir falla vörumerkja- og hugverkaréttindi.

„Við erum að sjálfsögðu ánægð með þessa niðurstöðu. Við vorum knúin til þess að verja vörumerki okkar með málshöfðun þegar öllum mildari úrræðum var hafnað. Dómurinn er afdráttarlaus um hvað geti flokkast sem listræn tjáning og hvað teljist misnotkun á skráðu vörumerki. Sú niðurstaða hlýtur að vera alvarlegt umhugsunarefni fyrir þær menntastofnanir sem lögðu blessun sína yfir augljós vörumerkjabrot undir formerkjum listsköpunar,“ er haft eftir Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja hf.


Tengdar fréttir

Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka

Samherji segist engan áhuga hafa haft að höfða mál gegn listamanninum Oddi Eysteini Friðrikssyni heldur neyðst til þess til að verja fjörutíu ára gamalt vörumerki. Sjávarútvegsfyrirtækið hvetji til listrænnar sköpunar og sér í lagi Odd til frekari verka svo framarlega sem hann virði réttindi samborgara sinna.

Mál Sam­herja gegn Odee tekið fyrir dóm í vikunni

Réttarhöld í máli Samherja gegn Oddi Eysteini Friðrikssyni, sem gengur undir listamannsnafninu Odee, hefjast í London á fimmtudag. Samherji höfðaði málið eftir að Oddur sendi út afsökunarbeiðni í nafni fyrirtækisins vegna framgöngu þess í Namibíu.

Starbucks kemur ekki til Íslands

Berjaya Food International hefur tryggt sér rekstrarrétt til að opna og reka Starbucks-kaffihús á Íslandi. Áður hafði komið fram að tilkynningin væri liður í gjörningalistaverki en það reyndist ekki vera satt.

Fölsk af­sökunar­beiðni Sam­herja reyndist loka­verk­efni í LHÍ

Fölsk af­sökunar­beiðni í nafni Sam­herja, vef­síða og yfir­lýsing þar um var loka­verk­efni lista­mannsins Odds Ey­steins Frið­riks­sonar, sem kallar sig Odee, í Lista­há­skóla Ís­lands. Þetta kemur fram í til­kynningu frá lista­manninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×