David Lynch með lungnaþembu: „Eins og að ganga um með plastpoka á hausnum“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. nóvember 2024 10:14 David Lynch reykti frá því hann var átta ára ogþar til hann var 76 ára. tæp sjötíu ár. Nú er hann hættur. Getty „Það er erfitt að lifa með lungnaþembu. Ég get varla gengið þvert yfir herbergi. Það er eins og að ganga um með plastpoka á hausnum,“ segir leikstjórinn David Lynch sem hætti að reykja fyrir tveimur árum en hafði fyrir það reykt frá átta ára aldri.
Lynch greindi frá því í ágúst að hann hefði greinst með lungnaþembu, langvinnan lungnasjúkdóm sem einkennist af mæði og hóstum. „Ég verð að segja, ég naut þess mjög mikið að reykja og ég elska tóbak - lyktina af því, að kveikja í sígarettum, að reykja þær - en maður geldur þessa nautn dýrum dómi, og minn dómur er lungnaþemba. Ég hef nú verið reyklaus í tvö ár. Nýlega gekk ég undir mörg próf og góðu fréttirnar eru þær að ég er í frábæru formi fyrir utan lungnaþembuna. Ég er fullur af hamingju og ég mun aldrei leggjast í helgan stein,“ skrifaði hann í færslu á X (áður Twitter). Ladies and Gentlemen,Yes, I have emphysema from my many years of smoking. I have to say that I enjoyed smoking very much, and I do love tobacco - the smell of it, lighting cigarettes on fire, smoking them - but there is a price to pay for this enjoyment, and the price for me is…— David Lynch (@DAVID_LYNCH) August 5, 2024 Nú hvetur hinn 78 ára Lynch aðra til að hætta líka og segir sjálfan sig vera forvörn fyrir aðra. Í viðtali við People í vikunni greindi hann frá því að hann þurfi viðbótarsúrefni fyrir flestallt sem hann geri. „Þú deyrð eftir viku ef þú hættir ekki“ Lynch lýsir því hvernig hann reyndi að hætta „mörgum, mörgum sinnum, en þegar eitthvað varð krefjandi fékk ég mér þessa fyrstu sígarettu og það var ferð aðra leið til himnaríkis.“ Þá hafi verið auðvelt að byrja að reykja upp á nýtt. Árið 2020 greindist Lynch síðan með lungnaþembu en þrátt fyrir það gat hann ekki hætt að reykja. Það var ekki fyrr en tveimur árum seinna sem honum tókst það. Hann segist hafa séð teikn á lofti „og þau sögðu ,Þú deyrð eftir viku ef þú hættir ekki'.“ Síðan þá hefur honum gengið vel að halda sér reyklausum og þakkar meðal annars innhverfri íhugun sinni sem hann hefur stundað í tugi ára. Lynch reykir sígarettu á frumsýningu Twin Peaks: The Return á Cannes árið 2017.Getty Fer lítið út úr húsi „Ég gat varla hreyft mig án þess að taka andköf. Eini möguleikinn var að hætta,“ segir Lynch sem er fjögurra barna faðir, þar af eru þrjú þeirra orðin fullorðin en það yngsta er hin tólf ára Lula. Það er því til mikils að lifa. Hann stendur reyndar í skilnaði við móður hennar, Emily Stofle sem er fjórða eiginkona hans. Þessa dagana fer Lynch lítið út úr húsi til að forðast sýkingar sem gætu gert sjúkdóminn verri. Fyrir vikið er nær ómögulegt fyrir hann að leikstýra á staðnum. Hann segist þó vera opinn fyrir því að fjarleikstýra í framtíðinni. Hann segist þó ekki sjá eftir reykingunum: „Þetta var mikilvægt fyrir mig. Ég óska þess sem hver fíkill óskar sér: að það sem við elskum sé gott fyrir okkur.“
Hollywood Bandaríkin Heilsa Bíó og sjónvarp Mest lesið Fer ekki út úr húsi eftir greininguna Lífið Hversdagslegir hlutir urðu óyfirstíganlegir Lífið Hjónabönd 50+: „Ekki gott ef gremjubankinn stækkar og stækkar“ Áskorun Skotheldar hugmyndir að góðri hlustun Lífið „Ég þori alveg að fullyrða að ég er skítsæmileg móðir“ Lífið Krakkatían: Fossar, dýr og prinsessur Lífið Greitt úr leyfisvandræðum og tónleikarnir fara fram í kvöld Lífið Tengdó hringdi og vildi vita hvort Sunnu Dís hefði í alvöru liðið svona Lífið Hafa bæði kvatt sín fyrrverandi og eru alsæl saman Lífið Fáir sáu íslenskar bíómyndir sem fengu 350 milljónir króna í styrk Lífið Fleiri fréttir Skotheldar hugmyndir að góðri hlustun Fer ekki út úr húsi eftir greininguna Hversdagslegir hlutir urðu óyfirstíganlegir Krakkatían: Fossar, dýr og prinsessur Greitt úr leyfisvandræðum og tónleikarnir fara fram í kvöld Endurgreiða alla miða ef tónleikahald tekst ekki í kvöld „Ég þori alveg að fullyrða að ég er skítsæmileg móðir“ Frelsaði húsgögn Brynhildar Fréttatían: Mannlíf, ferðamenn og Trump Hundruðum svekktra tónleikagesta vísað frá Hvalasafninu Skellti sér á djammið Segir fjölskylduna flutta Fáir sáu íslenskar bíómyndir sem fengu 350 milljónir króna í styrk Stílhreinn glæsileiki og svartur marmari á Nesinu „Er ekki að fara fram á það lifa lífinu í bómull“ Conan O'Brien verður kynnir á Óskarnum Hafa bæði kvatt sín fyrrverandi og eru alsæl saman „Nýja heimsskipanin:“ Leynileg áætlun um heimsyfirráð í undirbúningi? Bannað að hlæja: Stressið allsráðandi í upphafi kvöldsins Katrín og Markus orðin tveggja barna foreldrar Tengdó hringdi og vildi vita hvort Sunnu Dís hefði í alvöru liðið svona „Getur líka fengið Óskarsverðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki“ Heitir og hýrir flugþjónar í suðrænni stemningu Tengdadóttir forsætisráðherra í innsta koppi Loftssystkina Heitasti plötusnúður í heimi í Melabúðinni Emilíana Torrini einhleyp Fólkið sem fer yfir tíu tonn af fatnaði á dag „Vinkonusambönd virka aldrei ef það er afbrýðisemi“ Kári og Erla vilja 330 milljónir fyrir lúxusíbúð við höfnina Eiríkur og Guðrún selja eitt fallegasta hús Vesturbæjarins Sjá meira