Erlent

Einar umfangmestu loft­á­rásir Rússa á orkuvinnviði Úkraínu

Kjartan Kjartansson skrifar
Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, segir Rússa hafa notað nokkrar tegundir dróna auk flugskeyta við árásir sínar í nótt.
Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, segir Rússa hafa notað nokkrar tegundir dróna auk flugskeyta við árásir sínar í nótt. AP/Denes Erdos

Rússar hafa látið sprengjum rigna úr lofti yfir orkuinnviði víðsvegar um Úkraínu í nótt og rafmagn hefur verið tekið af í þremur héruðum vegna þess. Árásirnar eru sagðar þær umfangsmestu frá því í lok sumars.

Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, segir að um 120 flugskeytum og 90 drónum hafi verið beitt í loftárásunum á landið. Þær hafist beinst að öllum hlutum Úkraínu. Úkraínska hernum hafi tekist að skjóta niður meira en 140 skotmörk.

Fregnir hafa borist af mannfalli í árásunum. Tveir járnbrautarstarfsmenn eru þannig sagðir hafa fallið í loftárás Rússa á lestarteina og brautarstöðvar í Dnipropetrovsk-héraði. Þrír aðrir hafi særst. Þá eru tvær konur sagðar hafa fallið í drónaárás á Mykolaiv. Sex til viðbótar hafi særst, þar á meðal tvö börn. Einnig hafa borist fréttir af því að maður hafi særst þegar brak úr dróna sem var skotinn niður yfir Kænugarði féll á hann.

DTEK, stærsta einkarekna orkufyrirtæki landsins, segir að verulegt tjón hafi orðið á varmaorkuverum þess í árásunum. Þetta hafi verið átta stóra árás Rússa á orkuvinniði á þessu ári. Alls hafi 190 árásir verið gerðar á varmaorkuver frá því að Rússar hófu allsherjarinnrás sína í febrúar árið 2022.

Breska ríkisútvarpið BBC segir að orkuframleiðsla í Úkraínu sé nú á bilinu þriðjungur til helmingur af því sem hún var fyrir innrásina. Úkrínask stjórnvöld fari með nákvæmar upplýsingar um það sem ríkisleyndarmál.

Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, skaut eitraðri pillu á Olaf Scholz, fráfarandi kanslara Þýskalands, sem ræddi við Vladímír Pútín Rússlandsforseta í síma á föstudag í fyrsta skipti frá því síðla árs 2022. Lýsti Sybiha árás Rússa í nótt sem „raunverulegu svari“ Pútín til þeirra leiðtoga sem ræddu við hann, að því er kemur fram í frétt Reuters.

Pólski herinn var settur í viðbragðsstöðu vegna árásanna á vestanverða Úkraínu í nótt og orrustuþotur voru sendar á loft.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×