Discover hefur flug milli München og Íslands Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. desember 2024 14:35 Frúarkirkjan og ráðhústorgið í München. Getty Images Þýska flugfélagið Discover Airlines, dótturfélag Lufthansa, hefur ákveðið að fljúga milli München og Keflavíkurflugvallar allt árið um kring. Þetta var tilkynnt í dag en áður hafði félagið boðað flug til og frá KEF yfir sumartímann.
Fyrsta flug félagsins verður 3. apríl 2025 og verður flogið þrisvar sinnum í viku yfir sumartímann og tvisvar í viku út vetrartímabilið. Flogið verður á Airbus A320 vélum flugfélagsins. Lufthansa flug áður á milli München og Keflavíkurflugvallar, en Discover Airlines, tekur yfir flugleiðina. Discover býður sínum farþegum upp á að hægt verði að tengja áfram til enn fleiri áfangastaða þeirra og Lufthansa í gegnum München. „Það er okkur sönn ánægja að bjóða flugfélagið Discover Airlines velkomið í flugvallarsamfélagið á Keflavíkurflugvelli,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og leiðaþróunar í tilkynningu. „Þessar fréttir koma í kjölfar ákvörðunar easyJet að bæta við áfangastöðum næsta sumar og pólska flugfélagsins LOT að hefja í fyrsta sinn flug milli Varsjár og KEF. Þetta eru ánægjulegar fréttir og styrkja enn frekar áfangastaðinn Ísland. Við hlökkum til að taka á móti Discover Airlines.“
Fréttir af flugi Þýskaland Keflavíkurflugvöllur Ferðalög Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira