Fótbolti

Cecilía í liði ársins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur leikið einkar vel í marki Inter í vetur.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur leikið einkar vel í marki Inter í vetur. getty/Pier Marco Tacca

Landsliðsmarkvörðurinn í fótbolta, Cecilía Rán Rúnarsdóttir, er í liði ársins á Ítalíu hjá DAZN.

Cecilía var lánuð frá Bayern München til Inter fyrir tímabilið. Hún hefur leikið ellefu leiki með Inter í ítölsku úrvalsdeildinni. Í þeim hefur hún aðeins fengið á sig sjö mörk og haldið marki sínu sex sinnum hreinu.

Tveir leikmenn Inter eru í liði ársins en auk Cecilíu var þýska landsliðskonan Lina Magull valin í það. Roma á fimm fulltrúa í liðinu, Juventus þrjá, Inter tvo og Fiorentina einn.

Inter er í 2. sæti ítölsku deildarinnar með 28 stig, sjö stigum á eftir toppliði Juventus. Næsti leikur Inter er gegn meisturum Roma 12. janúar. Cecilía átti stórleik þegar þessi lið mættust fyrr á tímabilinu.

Ekkert lið í ítölsku deildinni hefur fengið á sig færri mörk í vetur en Inter, eða aðeins sjö. Næst kemur Juventus með tólf mörk fengin á sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×