Gefur lítið fyrir áform ríkisstjórnarinnar Tómas Arnar Þorláksson skrifar 4. janúar 2025 17:40 Heiðrún Lind Marteinsdóttir er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). vísir/vilhelm „Ný ríkisstjórn þarf því í raun ekki að móta nýja auðlindastefnu um sjálfbæra nýtingu þegar kemur að sjávarútvegi. Íslenskur sjávarútvegur er sjálfbær og með aflamarkskerfinu hefur almennt tekist vel við endurreisn fiskistofna frá því að þeir voru við það að hrynja og sumir hrundu. Fækkun báta, skipa og útgerða hefur gerst á forsendum markaðarins og er nú svo komið að íslenskur sjávarútvegur leggur hlutfallslega mest til þjóðarbúsins meðal allra fiskveiðiþjóða“
Þetta skrifar Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), sem viðbrögð við stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokk fólksins. Heiðrún birti pistil undir yfirskriftinni „Verðmætasköpun eða verðmætasköðun“ á vefsíðu SFS á gamlársdag. Óskiljanlegt orðalag Hún segir enga þörf fyrir nýja ríkisstjórn að móta nýja auðlindastefnu um sjálfbæra nýtingu þegar kemur að sjávarútvegi. Hún tekur einnig fram að óskiljanlegt sé hvað felist í orðalaginu réttlátt auðlindagjald. „Ríkisstjórnin hyggst einnig móta réttlát auðlindagjöld. Hugsanlega hefði verið betra fyrir ríkisstjórnina að nota eitthvað annað orð en „réttlát“ í þessu samhengi. Hver sem tekur sér það orð í munn getur lagt þann skilning í það sem viðkomandi kýs. Hvað er réttlátt auðlindagjald í sjávarútvegi? Við því er ekki til hlutlægt gilt svar,“ skrifar hún og spyr hvort að þriðjungur af afkomu í fiskveiðum sé réttlát skattlagning eða hvort ríkið vilji meira. Því fylgi neikvæð áhrif að hennar mati og listar hún upp fjölmörg hugsanleg áhrif. „Aukin skattheimta þýðir með öðrum orðum að minna fjármagn verður eftir til þess að skapa meiri verðmæti í framtíð en í fortíð. Minni fjárfesting mun þýða lakari samkeppnishæfni á alþjóðlegum markaði þar sem 98% af íslensku sjávarfangi eru seld. Og minni fjárfesting mun þýða minni útflutningsverðmæti og þar með minni hagvöxt en ella og lakari lífskjör.“ Engar augljósar vörður festar á blað Formenn stjórnarflokkana hafi verið andvígir frumvarpi Katrínar Jakobsdóttur um ákvæði í stjórnarskrá um auðlindir í þjóðareign vegna þess það hafi ekki kveðið á um að allir samningar sem gerðir verði væru tímabundnir. Tekið er sérstaklega fram í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar að hún hyggist koma slíku ákvæði í stjórnarskrána með eftirfarandi orðalagi: „Ríkisstjórnin mun hafa forgöngu um að samþykkt verði ákvæði í stjórnarskrá um auðlindir í þjóðareign.“ Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur einnig gagnrýnt stefnu ríkisstjórnarinnar og segir ef hún eigi að verða raunin þurfi að semja nýtt sjávarútvegiskerfi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur þó sagt það kýrskýrt að ríkisstjórnin ætli ekki að hrófla við kvótakerfinu. Heiðrún Lind segir áform ríkisstjórnarinnar vera áhyggjuefni. Í stjórnarsáttmálanum séu ákvæði um að rjúfa eigi kyrrstöðu og vinna að aukinni verðmætasköpun í atvinnulífinu sett fram með of almennu og opnu orðalagi. Engar augljósar vörður séu festar á blað til þess að markmiðum verði náð. „Þá er það heldur ekki alfarið á forræði ríkisins að auka verðmætasköpun í atvinnulífinu. Atvinnulífið sjálft, framsækið fólk á öllum sviðum, hlýtur að vera best til þess fallið að leiðbeina ríkinu um þá þætti sem kunna að vera til þess fallnir að skapa meiri verðmæti í dag en í gær,“ skrifar hún og vonast til að samtalið verði gott á skipunartíma nýrrar ríkisstjórnar. Erlendir kaupendur krefjist sjálfbærni Heiðrún ítrekar að sjávarútvegurinn stuðli nú þegar að sjálfbærri nýtingu í ljósi þess að eitt af markmiðum nýrrar ríkisstjórnar sé að „móta auðlindastefnu um sjálfbæra nýtingu og réttlát auðlindagjöld“. „Meginstefið er vísindaleg nálgun við veiðar, þar sem leyfilegur hámarksafli byggist á ráðum sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar um hvað óhætt sé að veiða mikið úr hverjum stofni. Alþjóðlegar stofnanir eru einnig hafðar með í ráðum. Við stjórn fiskveiða hér á landi er stuðst við það sem heitir varúðarnálgun og náttúran er látin njóta vafans. Sala á íslenskum fiski er háð því að þessi stefna sé viðhöfð því kaupendur erlendis gera þá kröfu að nýting á stofnum sé sjálfbær.“ Þökk sé aflamarkskerfinu skili vel rekin og arðsöm fyrirtæki ábata langt út fyrir hinn hefðbundna sjávarútveg. Greiðslur til hins opinbera séu nú þegar miklar. „Sjómenn eru jafnframt sú stétt sem hefur hæstar staðgreiðsluskyldar launagreiðslur allra stétta á landinu og launagreiðslur í fiskvinnslu eru hærri en meðal staðgreiðsluskyldar launagreiðslur í hagkerfinu. [...] Sjávarútvegurinn var, er, og mun verða ein af grunnstoðum íslensks efnahagslífs. Hann mun raunar verða enn sterkari ef honum verður leyft að þróast á eðlilegum viðskiptalegum forsendum.“ Strandveiðar „efnahagsleg sóun“ Heiðrún gagnrýnir jafnframt harðlega að strandveiðidögum skuli fjölgað í 48 daga sem hún segir bæta í efnahagslega sóun. Á undanförnum árum hafi verið umtalsverður samdráttur í ráðlögðum þorskafla. Fiskveiðiárið 2019/20 hafi ráðlagður þorskafli verið 272 þúsund tonn. Á yfirstandandi fiskveiðiári hafi hann verið 213 þúsund tonn, sem gerir um 22% mun. Hún tekur fram að útgerðir aflamarksskipa og fiskvinnslur hafi þurft að mæta þessum niðurskurði á meðan áhugamenn um stranveiðar hafi ekki þurft að sæta slíkum takmörkunum. Fyrirtæki rembist við að halda úti vinnu fyrir fólk allt árið og tryggja byggðafestu. „Strandveiðar hafa þrefaldast frá því kerfinu var komið á. Það er einstaklega óskynsamlegt og ósanngjarnt að strandveiðar fái sífellt stærri sneið af kökunni, ekki síst í því ljósi að veiðarnar eru að sögn nýs fjármálaráðherra „efnahagsleg sóun“ og skal þeirri skoðun ekki mótmælt hér.“ Hún ítrekar að fjölgun daga til strandveiða geti haft gífurlegar afleiðingar í för með sér. „Ef litið er til reynslu liðins sumars þegar um 12.000 tonna strandveiði nægði um 750 bátum aðeins í 33 daga, þá má ætla að afli gæti aukist um 50% tonn ef sömu bátar fá 48 daga. Og það má telja varlega áætlað þar sem líkur eru til þess að þeim bátum muni fjölga sem vilja skerf af höfðinglegri þjóðargjöfinni.“ Að hennar mati muni þetta hafa þá þýðingu fyrir ríkissjóð og efnahagslíf að greitt veiðigjald af þorski lækki um tugi milljóna og útflutningsverðmæti verði einhverjum milljörðum minni. „Það er mikilvægt að þessi verðmiði sé öllum ljós, enda hefur ekki mátt skynja umræðuna öðruvísi en að einhverjir telji að sjávarútvegur skili ekki nægum tekjum í ríkissjóð fyrir nýtingu á auðlindinni. [...] Strandveiðar eru í eðli sínu kapphlaup þeirra sem veiða um takmarkað magn af fiski. Útgerðarkostnaður eykst, umgengni um auðlindina verður verri og slysum fjölgar, svo dæmi sé tekið. Reynsla af slíkum kerfum, hvort sem er á Íslandi eða annars staðar í heiminum, er ekki góð. Landaður afli verður alltaf meiri en ákveðið hefur verið þar sem engin stjórn er á fjölda báta og takmörkuð stjórn er á afla hvers þeirra.“ Verið að fórna fyrirsjáanleika enn og aftur Að lokum ítrekar Heiðrún að það sem að sjávarútvegurinn þurfi fyrst og fremst á að halda sé fyrirsjáanleiki og svigrúm til fjárfestinga. „Eins og staðan blasir við í augnablikinu er verið að fórna þessu, enn einn ganginn. Og af þessum sökum verður raunar nokkuð umhugsunarverð ein fyrsta grein stjórnarsáttmálans um að fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar sé að ná stöðugleika í efnahagslífi. Vonandi mun það ganga eftir. Sá stöðugleiki mun þá væntanlega byggjast að einhverju leyti á óstöðugleika í sjávarútvegi, grunnatvinnuvegi þjóðarinnar. Það er verðmætasköðun, en ekki verðmætasköpun.“
Sjávarútvegur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Byggðamál Breytingar á veiðigjöldum Strandveiðar Mest lesið „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Innlent TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Erlent Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Innlent Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Innlent Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Innlent Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Veður Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Innlent Fleiri fréttir Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Sjá meira