Golf

Slógu golfbolta hvors annars og misstu af milljónum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Will Zalatoris og Cameron Davis gerðu klaufaleg mistök og var líka refsað fyrir það.
Will Zalatoris og Cameron Davis gerðu klaufaleg mistök og var líka refsað fyrir það. Getty/Tracy Wilcox/Sarah Stier

Atvinnukylfingarnir Cameron Davis og Will Zalatoris gerðu afdrifarík mistök á Sentry golfmótinu á Havaí um helgina.

Menn hafa nú reiknað að mistökin hafi kostað þá samanlagt meira en þrjú hundruð þúsund Bandaríkjadali eða meira en 47 milljónir króna. BBC segir frá.

Mistökin urðu á fimmtándu holu á lokahringnum. Þeir slógu þá fyrir mistök golfbolta hvors annars.

Báðir fengu þeir tvö högg í víti fyrir vikið. Þeir voru að slá sitt þriðja högg á holunni þegar þeir rugluðust á boltum.

Regluverðir mótsins létu þá endurtaka þriðja höggið en það var ekki lengur þriðja höggið þeirra heldur það fimmta.

Án þess að fá þessa tveggja högga refsingu þá hefðu þeir Davis og Zalatoris unnið sér inn samtals 339 þúsund Bandaríkjadölum meira eða 47,5 milljónum meira talið í íslenskum krónum.

Davis endaði á því að spila á 22 höggum undir pari og hann fékk vissulega 410 þúsund dali í verðlaunafé eða 57,5 milljónir. Hann hefði fengið rúmlega 715 þúsund dali án refsihögganna sem eru meira en hundrað milljónir króna.

Zalatoris spilaði á 19 höggum undir pari og fékk 163 þúsund dali í verðlaunafé eða 22,9 milljónir. Án refsingarinnar hefði hann fengið 283 þúsund dali eða 39,7 milljónir.

Japaninn Hideki Matsuyama vann mótið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×