Innlent

Sárt að vera sakaður um að maka krókinn á ósið­legan hátt

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Jón Rúnar var formaður knattspyrnudeildar FH á árunum 2005 til 2019.
Jón Rúnar var formaður knattspyrnudeildar FH á árunum 2005 til 2019. Vísir/Arnar

Fyrrverandi formaður knattspyrnudeildar FH segir fjölmiðla ranglega hafa sakað hann um að hafa makað krókinn á viðskiptum fyrirtækis hans við FH vegna byggingar knatthússins Skessunnar. Hann segir ásakanir um ólöglegt, eða í það minnsta ósiðlegt athæfi, svíða. 

Í síðasta mánuði var fjallað um málið sem Jón Rúnar Halldórsson, fyrrverandi formaður knattspyrnudeildarinnar, vísar til í tilkynningu sem hann sendi mbl.is

Jón Rúnar segir að nafn hans hafi dregist inn í umfjöllun um byggingarkostnað Skessunnar, sem og fyrirtækis hans, Best-hús ehf. Umfjöllunin hafi öll byggst á skýrslu Deloitte vegna fyrirhugaðra kaupa Hafnarfjarðarbæjar á Skessunni.

Sakaður um að hafa makað krókinn

Hamrað hafi verið á því í umfjölluninni að félag Jóns hefði fengið greiddar 350 milljónir króna frá FH, og „látið að því liggja að ekki væru hald­bær­ar skýr­ing­ar á þess­um greiðslum“. Eins hafi blandast inn í umfjöllunina endurgreiðslur FH á vaxta- og verðbótalausum lánum Best-húsa ehf. til FH, sem hafi ekki komið byggingu Skessunnar við á nokkurn hátt.

„Í raun sökuðu fjöl­miðlar mig og fyr­ir­tæki mitt rang­lega um að hafa með ólög­mæt­um eða í það minnsta ósiðleg­um hætti makað krók­inn á viðskipt­um við FH vegna bygg­ing­ar Skess­unn­ar,“ segir í yfirlýsingu Jóns Rúnars. 

Engin staðfestingarvinna hafi farið fram

Jón Rúnar segir engan þeirra fjölmiðla sem fjallað hafi um málið gefið því gaum að í skýrslunni væri þess sérstaklega getið að engin staðfestingarvinna hefði átt sér stað við gerð hennar og að hún gæti ekki að nokkru leyti talist grundvöllur endurskoðunar eða áreiðanleikakönnunar. 

„Þá tók Deloitte ehf. fram að fé­lagið gæti ekki staðfest ná­kvæmni upp­lýs­inga eða hvort upp­lýs­ing­ar og gögn sem Deloitte ehf. hafði aflað væru rétt eða full­nægj­andi, þar sem ekki var leitað sér­stak­lega eft­ir því. Einnig að þarna séu ábend­ing­ar, án þess að hægt sé að draga álykt­an­ir af þeim.“

Deloitte hafi aldrei haft samband við Jón Rúnar til að fá gögn eða skýringar á greiðslum FH til félags hans. 

„Hefðu starfs­menn Deloitte ehf. aflað gagna frá Best-hús­um ehf. hefðu þeir séð og getað staðreynt að hvorki ég per­sónu­lega né Best-hús ehf. höf­um haft nokk­urn hagnað af bygg­ingu Skess­unn­ar.“

Öllum gerð grein fyrir málavöxtu

Jón Rúnar segir að allir þeir fjármunir sem FH greiddi til Best-húsa hafi runnið til framleiðanda og seljanda burðarvirkis og ytra byrðis Skessunnar. Sá kostnaður, að viðbættum flutningskostnaði, hafi verið grundvöllur virðisaukaskatts sem greiddur hafi verið við innflutning, auk annarra gjalda vegna tollafgreiðslu.

„Rétt er að taka fram að öll­um hlutaðeig­andi, þ.e. aðal­stjórn FH, for­ráðamönn­um Hafn­ar­fjarðarbæj­ar sem og Deloitte hef­ur verið gerð grein fyr­ir því hvernig greiðslum þess­um var háttað.“

Jón Rúnar segir að fjölmiðlaumfjöllun um málið hafi verið á þann veg að eitthvað óeðlilegt eða jafnvel ósiðlegt hafi verið við það að félag hans hafi verið milligönguaðili í umræddum kaupum.

„Á það skal bent að árið 2018 bauð Hafn­ar­fjarðarbær út bygg­ingu á knatt­húsi fyr­ir FH í Kaplakrika. Í verkið buðu þrír aðilar og voru all­ir, þar á meðal lægst­bjóðandi, með til­boð frá Best-hús­um ehf. í burðargrind og ytra byrði húss­ins sem og hönn­un þess.“

Svíður ásakanirnar

Áður hafi komið fram að bærinn hafi hætt við útboðið og hafnað öllum tilboðum. Þegar bærinn og FH hafi gert með sér samkomulag um að FH stæði að byggingu hússins hafi legið beinast við að nota sömu lausn og hönnun sem legið hafi til grundvallar áður fram komnun tilboðum, enda um hagkvæma lausn að ræða.

„Aðdrag­andi þessa máls er sá í upp­hafi árs 2023 óskaði FH eft­ir því við bæ­inn að hann tæki á leigu eða keypti knatt­húsið Skess­una, sem fé­lagið hafði reist og tekið í notk­un haustið 2019. Var það gert á grund­velli op­in­berr­ar stefnu Hafn­ar­fjarðarbæj­ar um að eiga og reka öll íþrótta­mann­virki í Hafnar­f­irði.“

Hafnarfjarðarbær hafi ráðið Deloitte til þess að vermeta Skessuna en verðmatsskýrsla hafi legið fyrir í apríl 2024. Í henni hafi komið fram að verðmæti Skessunnar væri á bilinu 1,5 til liðlega 2 milljarðar króna. Bærinn hafi í kjölfarið ráðið Deloitte til að vinna aðra skýrslu um bygg­ing­ar- og rekstr­ar­kostnað Skess­unn­ar. Þegar sú skýrsla hafi legið fyrir, með öllum ofangreindum fyrirvörum, hafi einhverjir talið sér í hag að leka henni til fjölmiðla, með þeim afleiðingum að Hafnarfjarðarbær hafi látið öllum fjölmiðlum hana í té. 

„Ég er og hef allt tíð verið FH-ing­ur, ber hag fé­lags­ins ávallt fyr­ir brjósti og því svíður mig mjög að hafa þurft að sitja und­ir ásök­un­um í fjöl­miðlum hvað mál þetta varðar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×