Landsliðsmaðurinn Bjarki Már mælir með Nutrilenk Gold Artasan 16. janúar 2025 08:46 „Ég fann mjög fljótt fyrir breytingum eftir að ég byrjaði að taka Nutrilenk. Þar á meðal finn ég minna fyrir eymslum vegna álagsmeiðsla en ég gerði áður,“ segir Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handbolta. Myndir/Arna Petra Sverrisdóttir. Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handbolta, hefur prófað margar lausnir við eymslum og álagi sem fylgja íþróttinni, en fullyrðir að ekkert hafi skilað jafn góðum árangri og Nutrilenk Gold.
Bjarki Már er atvinnuíþróttamaður sem hefur átt farsælan feril í handbolta. Hann spilar með Telekom Veszprém í Ungverjalandi, einu sterkasta liði Evrópu, og spilar núna með íslenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu, sem stendur yfir til 2. febrúar. Ferill íþróttamanns er oft krefjandi og hefur Bjarki þurft að takast á við ýmis óþægindi og meiðsli í gegnum tíðina, sem varð til þess að hann prófaði Nutrilenk Gold. Liðbætiefnið hefur reynst honum afar vel í að styrkja liðamót og styðja við endurheimt eftir miklar álagsæfingar og leiki. Fann loksins lausn sem virkar „Ég hef þurft að kljást við alls konar eymsli og meiðsli í gegnum ferilinn. Ég hef fengið brjósklos, álagsbrot í ristirnar og svokallað „hopparahné“ sem dæmi og þá hef ég yfirleitt leitað allra leiða til þess að vinna bug á þeim,“ segir Bjarki en eftir að hafa rekist á auglýsingu í sjónvarpinu ákvað hann að prófa Nutrilenk Gold og sér ekki eftir því. Ég hef prófað ýmislegt við liðeymslum en ekkert hefur virkað eins vel og Nutrilenk. Bjarki hefur notað Nutrilenk í nokkur ár með hléum, þar sem hann býr ekki á Íslandi og hefur því ekki alltaf haft aðgang að vörunni. „Ég hef góða reynslu af Nutrilenk hingað til,“ segir hann og bætir við að hann finni minna fyrir liðeymslum en áður. „Ég fann mjög fljótt fyrir breytingum eftir að ég byrjaði að taka Nutrilenk. Þar á meðal finn ég minna fyrir eymslum vegna álagsmeiðsla en ég gerði áður. Ég hef líka fundið fyrir breytingum í litlum hlutum í daglegu lífi, eins og að ég finn fyrir minni óþægindum að ganga upp og niður stiga til dæmis,“ segir hann og bætir að lokum við: „Ég myndi hiklaust mæla með því, fyrir þá sem glíma við liðeymsli af einhverju tagi, að minnsta kosti að prófa Nutrilenk.“ Nutrilenk er hannað til að styrkja og vernda liðheilsuna Nutrilenk hefur lengi verið eitt vinsælasta liðbætiefni á Íslandi og ekki er það af ástæðulausu. Fjölmargir einstaklingar hafa fundið lausn á stirðleika, óþægindum og eymslum í liðum með hjálp Nutrilenk og hefur bætiefnið reynst ómissandi fyrir þau sem vilja viðhalda heilbrigðum liðum. Sem atvinnuíþróttamaður hef ég þurft að kljást við alls konar eymsli á ferlinum. Eftir að ég byrjaði að taka Nutrilenk hef ég fundið mikið minna fyrir liðeymslum. Nutrilenk Gold er unnið með sérhæfðri aðferð sem tryggir að líkaminn nýti virku innihaldsefnin á sem bestan hátt. Helstu innihaldsefni þess eru kondrótín, kollagen og kalk, sem öll eru nauðsynleg fyrir viðhald heilbrigðra beina. Auk þess inniheldur formúlan D- og C- vítamín, sem stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir heilbrigða starfsemi beina og brjósks, ásamt mangan sem styður við viðhald heilbrigðra beina og eðlilega myndun bandvefja. Fyrir íþróttafólk, fólk í álagsvinnu eða einfaldlega í daglegu amstri – Nutrilenk liðbætiefnin henta fyrir öll þau sem upplifa einhvers konar óþægindi í liðum.
Heilsa Mest lesið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Fleiri fréttir Bylgjulestin í Fjölskyldu og húsdýragarðinum Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Bylgjulestin: Sólskin og stemning í Grindavík Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Fjarfundaþjónusta Hugarafls er lífsbjörg fyrir fólk Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Endurvekja límmiðaleik Bylgjunnar Celebrating George Michael kemur til Íslands Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Sjá meira