Golf

Lék Lo Romero völlinn á 58 höggum og sjáðu hann enda á svaka­legu höggi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nick Carlson, úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar, með golfkúluna sem hann spilaði með í dag.
Nick Carlson, úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar, með golfkúluna sem hann spilaði með í dag. GSÍ

Íslenski landsliðshópurinn í golfi er í æfingaferð á La Finca á Spáni og þar var boðið upp á svakalega spilamennsku í dag.

Hópurinn samanstendur af landsliðskylfingum, atvinnukylfingum og þjálfurum en nú stendur yfir þriggja daga mót hjá hópnum. Annar keppnisdagur var í dag þar sem helmingur hópsins lék á La Finca og helmingur á Lo Romero.

Atvinnukylfingurinn Nick Carlson, úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar, náði því ótrúlega afreki að leika Lo Romero völlinn á 58 höggum af öftustu teigum í dag,

Það eru afar fáir sem hafa leikið keppnishringi af öftustu teigum á 59 höggum eða færri, en Birgir Leifur Hafþórsson lék Garðavöll á Akranesi á 58 höggum af næst öftustu teigum árið 2010.

Nick fékk sjö fugla, fjóra erni og einn skolla á hringnum.

Nick sló beint ofan í holu af 55 metra færi á lokaholunni og tryggði sér þar með fjórða örn dagsins. Hann fagnaði líka vel eins og sjá má hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×