Innlent

Fé­lag for­stöðu­manna fundar um bréf ráð­herra um hag­ræðingu

Lovísa Arnardóttir skrifar
Helga Þórisdóttir segir bréf ráðherranna á dagskrá.
Helga Þórisdóttir segir bréf ráðherranna á dagskrá. Vísir/Einar

Stjórn Félags forstöðumanna ríkisstofnana fundar næstkomandi mánudag og mun þá fara yfir tillögu forsætis- og fjármála- og efnahagsráðherra um það hvernig megi hagræða í rekstri. Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar er formaður nefndarinnar. Í samtali við fréttastofu segist Helga ekki hafa heyrt í félagsmönnum í dag eftir að bréfið var sent út.

„Stjórnin hittist á mánudag og þetta mál er komið á dagskrá,“ segir Helga. Annað geti hún ekki sagt um málið að svo stöddu.

Birt var tilkynnt um málið síðdegis í dag á vef stjórnarráðsins. Þar kom fram að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefðu ritað forstöðumönnum hjá ríkinu bréf þar sem þau óskuðu eftir hugmyndum og sjónarmiðum um hvernig megi hagræða í rekstri ríkisins.

Ríkisstjórnin hefur sömuleiðis óskað eftir hugmyndum um hagræðingu frá almenningi. Í samráðsgátt hafa þegar borist rúmlega þrjú þúsund umsagnir. Tillögurnar verða greindar með gervigreind í fyrsta fasa. Samráð við almenning stendur til 23. janúar, eða í eina viku til viðbótar.

Í bréfi Kristrúnar og Daða Más til forstöðumanna kom meðal annars fram að sjónarmið stjórnenda hjá ríkinu væru nauðsynleg til að fá dýpri innsýn í þau hagræðingartækifæri sem til staðar væru.

„Forstöðumenn eru beðnir um tillögur að hagræðingu, einföldun stjórnsýslu og sameiningu stofnana.“

Þá kom fram að fjallað verði um tillögur þeirra í starfshópi á vegum forsætisráðuneytisins. Niðurstöðurnar verði nýttar til að móta áætlun til lengri tíma um umbætur í rekstri ríkisins. Samhliða verði unnið með tillögur úr fyrri samráðsferlum við stjórnendur og starfsfólk ríkisins.

Í Félagi forstöðumanna ríkisstofnana eru tugir félagsmanna eins og sýslumenn, skólameistarar, forstöðumenn og forstjórar. Í félaginu eru forstöðumenn ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja sem fá laun samkvæmt grunnlaunaflokkum eða samkvæmt ákvörðun ríkisstofnunar/ríkisfyrirtækis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×