Olli­e Wat­kins gerði Arsenal skrá­veifu

Siggeir Ævarsson skrifar
Ollie Watkins fagnar marki sínu
Ollie Watkins fagnar marki sínu vísir/Getty

Heimamenn í Arsenal komust yfir á 35. mínútu þegar Martinelli kom boltanum yfir línuna. Martínez náði að koma hönd á boltann í marki Villa en of seint, boltinn var augljóslega allur kominn yfir línuna. Kai Havertz kom Arsenal svo í 2-0 á 55. mínútu og virtust heimamenn vera með góð tök á leiknum og mikla yfirburði en það reyndist skammgóður vermir.

Youri Tielemans minnkaði muninn fimm mínútum síðar og Ollie Watksins jafnaði metin á 68. mínútu eftir að varnarmenn Arsenal sofnuðu á verðinum.

Arsenal-menn reyndu hvað þeir gátu til að tryggja sér öll stigin þrjú og Havertz náði að koma boltanum í netið á 89. mínútu en markið var dæmt af vegna hendi.

2-2 lokatölurnar og Arsenal sex stigum á eftir toppliði Liverpool sem á leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira