Á aðfangadag var greint frá því að Viggó hefði samið við Erlangen og myndi byrja að spila með liðinu þegar keppni í þýsku úrvalsdeildinni hefst aftur eftir HM. Í viðtali við Vísi í byrjun árs viðurkenndi Viggó að þessi félagaskipti kæmu eflaust einhverjum á óvart.
„Út á við lítur þetta kannski skringilega út. Í fyrsta lagi er þetta lið sem að á ekki að vera svona neðarlega í töflunni. Þetta er lið sem á að vera miklu ofar. Þeir komu bara með tilboð til Leipzig í byrjun desember, forráðamenn liðanna ræddu sín á milli og komust að samkomulagi. Í framhaldinu næ ég síðan að semja við Erlangen. Þeir eru í erfiðri stöðu og urðu að gera eitthvað. Þeir gerðu mikið til þess að ná mér. Ég get skilið að þetta komi mörgum spánskt fyrir sjónir en mér finnst þetta spennandi og hlakka til,“ sagði Viggó sem sagðist fá betri samning hjá Erlangen.
„Enda væri maður ekki að fara til liðs sem á pappír er verra lið og rífa fjölskylduna upp með sér með flutningum og öllu sem því fylgir nema þetta passaði allt saman. Launakröfur er einn hluti af því.“
Ólafur var aðstoðarþjálfari hjá Erlangen um tíma. Vistaskipti Viggós komu honum verulega á óvart eins og hann lýsti í viðtali í Handkastinu.
„Já, mörg. Sérstaklega að hann skyldi ekki hafa samband við mig að fyrra bragði. En auðvitað er eitt að vera þjálfari þarna en annað að vera leikmaður. Það er alveg hægt að lifa þarna af sem leikmaður,“ sagði Ólafur.
„En ef þú ert með metnað, bara galin skipti, en vonandi hefur hann fengið eitthvað borgað fyrir það. Staðurinn er fallegur og allt það en stóri hnífurinn í kúnni þarna er framkvæmdastjórinn.“
Ólafur hefði viljað sjá Viggó fara til sterkara liðs enda hafi hann getuna til þess.
„Mér finnst þetta svolítið snemmt. Ég hefði frekar ráðlagt honum að fara í betra félag fyrir aðeins minni pening og taka sénsinn á einu stóru félagi og vinna eitthvað. Mér finnst hann oft þar. Flottur, oft mjög góður og getur alveg haldið uppi góðu liði,“ sagði Ólafur.
Viggó hefur skorað sjö mörk í fyrstu tveimur leikjum Íslands á HM. Íslendingar mæta Slóvenum annað kvöld í úrslitaleik um sigur í G-riðli.
Hlusta má á Handkastið hér fyrir neðan.