Innlent

Halla að­stoðar Loga

Atli Ísleifsson skrifar
Halla Jónsdóttir.
Halla Jónsdóttir. Stjr

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hefur ráðið Höllu Jónsdóttur sem aðstoðarmann sinn.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Þar segir að Halla hafi lokið grunnnámi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og meistaranámi í vinnu- og skipulagssálfræði frá Háskólanum í Amsterdam árið 2004. 

„Þá lauk hún einnig MBA-námi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2015. Í meistaranámi sínu í vinnusálfræði lagði Halla áherslu á fræðslu, starfsþróun og hæfni einstaklinga.

Halla starfaði sem fræðslustjóri Landsbankans á árunum 2011-2018 en sem sérfræðingur í fræðslumálum þar á undan. Árin 2018-2021 starfaði Halla sem mannauðs- og rekstrarstjóri hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og undanfarin þrjú ár sem forstöðumaður Endurmenntunar Háskóla Íslands. Hún hefur því reynslu og þekkingu úr störfum bæði á almennum markaði og hjá hinu opinbera. Í störfum sínum hefur Halla öðlast reynslu af bæði stjórnun og stefnumótun og -innleiðingu. Þá hefur hún reynslu af því að stýra stefnumótun í fræðslumálum og innleiðingu árangursstjórnunar. Halla hefur störf í lok janúar en Tómas Guðjónsson hefur þegar hafið störf sem aðstoðarmaður menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra,“ segir í tilkynningunni. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×