Landsliðsþjálfarinn Arnar var í stúkunni þegar Hákon mætti á Anfield Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 22. janúar 2025 17:46 Arnar Gunnlaugsson var á Anfield á þriðjudaginn. vísir/Sigurjón Hákon Arnar Haraldsson átti fínan leik þegar Lille mátti þola naumt tap gegn Liverpool í Meistaradeild Evrópu á þriðjudagskvöld. Arnar Gunnlaugsson, nýráðinn landsliðsþjálfari Íslands, var á leiknum.
Lille er í harðri baráttu um að komast í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar á meðan Liverpool er þegar búið að tryggja sæti þar með sjö sigrum í sjö leikjum. Fyrir leikinn á Anfield var það því heimaliðið sem var talsvert sigurstranglegra en þurfti vissulega að hafa fyrir því að landa þremur stigum þó gestirnir hafi verið manni færri í rúman hálftíma. Hákon Arnar kom að marki Lille en sjá mörkin úr leiknum hér að neðan. Hákon Arnar var þó ekki eini Íslendingurinn á vellinum en landsliðsþjálfarinn var í stúkunni til að fylgjast með leikmanni sem ætti að vera í stórri rullu í komandi landsliðsverkefnum. Hákon Arnar á Anfield.Richard Sellers/Getty Images „Hann var taktískt agaður og var með mörg smáatriði á hreinu. Það var mjög gaman að sjá hann vera kominn á svona hátt getustig,“ sagði Arnar Gunnlaugsson í viðtali við Fótbolti.net um frammistöðu Skagamannsins unga á Anfield. Arnar sagði jafnframt að það væri frábært að sjá leiki úr stúkunni því þá væri hægt að sjá mörg smáatriði sem ekki er hægt þegar horft er á leik í sjónvarpi. „Ég hef spilað á þessum velli sjálfur og veit hversu erfitt er að mæta þarna með tryllta stuðningsmenn á bakvið þig. Það getur verið yfirþyrmandi andrúmsloft,“ sagði þjálfarinn einnig við Fótbolti.net. Næsta verkefni landsliðsins eru umspilsleikir í Þjóðadeildinni gegn Kósovó.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira