Fótbolti

Brest mátti þola tap í Þýska­landi

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Úr leik Shakhtar og Brest.
Úr leik Shakhtar og Brest. Marcel Bonte/Getty Images

Fyrstu tveir leikir dagsins í Meistaradeild Evrópu karla í knattspyrnu er nú lokið. Báðir þeirra fóru fram í Þýskalandi. Í Gelsenkirchen unnu „heimamenn“ í Shakhtar góðan sigur á Brest sem hefur verið spútniklið keppninnar til þessa. Þá vann RB Leipzig góðan 2-1 sigur á Sporting frá Lissabon.

Brasilíumaðurinn Kevin kom Shakhtar yfir á 18. mínútu og tæpum tuttugu mínútum síðar fékk Shakhtar vítaspyrnu sem Georgiy Sudakov skoraði úr og staðan 2-0 í hálfleik. 

Þegar það voru fimm mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma bætti Oleksandr Zubkov þriðja marki Shakhtar við en markið stóð ekki vegna rangstöðu, lokatölur 2-0.

Hinn eftirsótti Benjamin Šeško kom Leipzig yfir gegn Sporting strax á 19. mínútu eftir undirbúning David Raum. Það var svo Raum sjálfur sem kom Leipzig í 2-0 eftir rúmlega hálftíma en markið hins vegar dæmt af og staðan 1-0 í hálfleik.

Hinn sjóðheiti Viktor Gyökeres jafnaði metin fyrir Sporting þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Það tók heimamenn hins vegar aðeins þrjár mínútur að ná forystunni á nýjan leik. Yussuf Poulsen með markið eftir sendingu Christoph Baumgartner.

Brest er áfram með 13 stig í 9. sæti þegar ein umferð er eftir af deildarkeppni Meistaradeildarinnar. Sporting er í 19. sæti með 10 stig. Shakhtar er með fjögur stig í 28. sæti RB Leipzig í 30. sæti með þrjú stig. 

Alls eru 8 umferðir í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu. Eftir það fara efstu átta liðin í 16-liða úrslit á meðan liðin í 9. til 24. sæti fara í umspil um sæti í 16-liða úrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×