Kínversk kúvending leiddi til hruns vestanhafs Samúel Karl Ólason skrifar 27. janúar 2025 20:44 Kynning kínverska fyrirtækisins DeepSeek leiddi til mikilla lækkana á mörkuðum og sérstaklega hjá félaginu Nvidia. Getty/Costfoto Hlutabréf stórra tæknifyrirtækja hríðféllu í virði í dag eftir að lítið þekkt kínverskt fyrirtæki opinberaði nýja gervigreind í síðustu viku. Fyrirtækið DeepSeek opinberaði mállíkan sem á að standa í hárinu á sambærilegri gervigreind eins og ChatGPT í eigu OpenAI en fyrir brot af kostnaðinum.
Hingað til hefur verið talið að ekki sé hægt að framleiða gervigreind eins og ChatGPT án gífurlegs tilkostnaðar í gagnaverum, vefþjónum, öflugum tölvuflögum og fleiru. Kynning DeepSeek kollvarpaði þessum þankagangi á mjög skömmum tíma. Samkvæmt frétt New York Times leiddi kynning forsvarsmanna DeepSeek til þess að fjárfestar þurftu að endurhugsa hagnaðarvæntingar sínar af hlutabréfum í félögum sem tengjast gervigreindarmarkaðnum hvað mest. Einn viðmælandi NYT lýsti fregnunum sem löðrungi í andlit fjárfesta og segir þá mögulega þurfa að hugsa allt öðruvísi um fjárfestingar sínar varðandi gervigreind í framtíðinni. Mesta virðistap sögunnar Nvidia, sem framleiðir meðal annars tölvuflögur og skjákort, varð hvað verst úti í óreiðu dagsins en samkvæmt frétt Wall Street Journal lækkaði virði fyrirtækisins um 550 milljarða dala í dag og er það líklegast mesta virðistap skráðs félags á einum degi sem þekkist. 550 milljarðar dala samsvara um 76,4 billjónum króna eða 76.400.000.000.000kr. Ef marka má vef Hagstofunnar var verg landsframleiðsla Íslands árið 2023 um 4,3 billjónir króna. Virði hlutabréfa Nvidia hafði fyrir daginn í dag farið úr tuttugu dölum í rúmlega 140 dali á innan við tveimur árum. Önnur sambærileg félög féllu einnig töluvert í verði í dag. Microsoft og Google lækkuðu einnig en óreiðan hefur þó ekki komið niður á hlutabréfum Meta og Apple. Oracle, fyrirtæki sem opinberað var í síðustu viku að ætlar í umfangsmikla uppbyggingu gagnavera í samvinnu með OpenAI, lækkaði um átta prósent í dag. Efasemdir um kúvendingu DeepSeek opinberaði gervigreind sína í síðasta mánuði en í lok síðustu viku gaf félagið út skýrslu um það hvernig gervigreind þess hefði verið þróuð. Það var þessi skýrsla sem leiddi til óreiðunnar á mörkuðum í dag. Eins og fram kemur í grein WSJ hefur DeepSeek ekki aðgang að heimsins bestu örflögum heims vegna viðskiptaþvingana sem Bandaríkin beita Kína, til að hindra þróun þarlendra fyrirtækja á gervigreind. Þess vegna hafa starfsmenn fyrirtækisins reitt sig á ódýrari og verri örflögur og þróað gervigreind fyrirtækisins mun ódýrar en fyrirtæki eins og OpenAI. Sérfræðingar segja þó í samtali við WSJ að þó umræddir starfsmenn hafi fundið ódýrari leiðir til að þjálfa gervigreind sé ekki enn ljóst hvort að kúvending hafi orðið á markaði gervigreindar. Eftirspurnin eftir reiknigetu sé gífurleg og hún muni ekki minnka.
Gervigreind Bandaríkin Kína Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira