Fótbolti

Allt sem þú þarft að vita fyrir loka­um­ferð Meistara­deildarinnar í kvöld

Aron Guðmundsson skrifar
Átján leikir eru á dagskrá Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Línur skýrast.
Átján leikir eru á dagskrá Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Línur skýrast. Vísir/Samsett mynd

Loka­um­ferð deildar­keppni Meistara­deildar Evrópu verður leikin í kvöld. Átján leikir eru á dag­skrá og fylgst verður með gangi mála í öllum þeirra í Meistara­deildar­messunni í um­sjón Guð­mundar Bene­dikts­sonar á Stöð 2 Sport 2. Spennan er mikil fyrir þessa síðustu um­ferð, ógjörningur að segja hvaða lið komast á næsta stig keppninnar, stór nöfn gætu setið eftir.

Eins og margir vita hefur verið leikið eftir nýju fyrir­komu­lagi í Meistara­deildinni á yfir­standandi tíma­bili. Í stað hinnar hefðbundnu riðla­keppni með fjögurra liða riðlum, sem við þekkjum frá fyrri tíð, hafa þrjátíu og sex lið keppt í ein­faldri deildar­keppni þar sem að hvert lið leikur átta leiki gegn átta mis­munandi and­stæðingum, fjóra leiki á heima­velli og sömu­leiðis fjóra á úti­velli.

Efstu átta lið deildarinnar tryggja sér beint sæti í sex­tán liða úr­slitunum. Liðin í níunda til og með tuttugasta og fjórða sæti fara í um­spil um sæti í sex­tán liða úr­slitunum, tveggja leikja einvígi. Liðin fyrir neðan tuttugasta og fjórða sæti ljúka keppni eftir loka­um­ferð deildar­keppninnar.

Tvö lið örugg í sextán liða úrslit

Mikil spenna ríkir fyrir loka­um­ferð kvöldsins þar sem að leikirnir átján hefjast allir klukkan átta á íslenskum tíma. Aðeins tvö lið eru örugg með sæti í sex­tán liða úr­slitunum. Það eru efstu tvö lið deildarinnar fyrir loka­um­ferð deildar­keppninnar: Liver­pool og Barcelona.

Sex­tán lið eru örugg með sæti í Meistara­deildinni fram yfir deildar­keppnina og fara því annað hvort beint í sex­tán liða úr­slitin eða í um­spil um sæti í sex­tán liða úr­slitum. Þau lið eru:

Arsenal (Eng­land), Inter Milan (Ítalía), At­letico Madrid (Spánn), AC Milan (Ítalía), Atalanta (Ítalía), Bayer Le­verku­sen (Þýska­land), Aston Villa (Eng­land), Mónakó (Frakk­land), Feyenoord (Holland), Lil­le (Frakk­land), Brest (Frakk­land), Borussia Dort­mund (Þýska­land), Bayern Munchen (Þýska­land), Real Madrid (Spánn), Juventus (Juventus) og Celtic (Skot­land)

Níu lið eru enn ekki örugg með sæti í Meistara­deildinni fram yfir deildar­keppnina í annað hvort sex­tán liða úr­slitunum eða um­spili fyrir þau. Það eru eftir­farandi:

PSV (Holland), Club Brug­ge (Belgía), Ben­fi­ca (Portúgal), PSG (Frakk­land), Sporting Lisbon (Portúgal), Stutt­gart (Þýska­land), Manchester City (Eng­land), Dina­mo Za­greb (Króatía), Shak­htar Do­netsk (Úkraína)

Neðstu níu lið deildarinnar sem stendur eru nú þegar fallin úr leik, þau lið eru:

Young Boys (Sviss), Slovan Bratislava (Slóvakía), Salz­burg (Austurríki), Stur­m Graz (Austurríki), FK Cr­vena Zvezda (Serbía), Girona (Spánn), RB Leipzig (Þýska­land), Sparta Prag (Tékk­land), Bologna (Ítalía)

Hér má svo sjá leiki kvöldsins í loka­um­ferðinni. Af leikjunum átján má segja að eitt­hvað sé undir í sex­tán þeirra, aðeins viður­eignir Young Boys og Cr­vena Zvezda sem og Stur­m Graz og RB Leipzig eru inn­byrðis­viður­eignir liða sem eiga nú þegar engan mögu­leika á sæti í sex­tán liða úr­slitunum eða um­spilinu og þar með er ekkert undir fyrir þau lið:

Lokaumferðin:

• Aston Villa (9. sæti) vs Celtic (18.sæti)

• Barcelona (2.sæti) vs Atalanta (7.sæti)

• Bayer Le­verku­sen (8.sæti) vs Sparta Pragu­e (29.sæti)

• Bayern Munich (15.sæti) vs Slovan Bratislava (35.sæti)

• Borussia Dort­mund (14.sæti) vs Shak­htar Do­netsk (27.sæti)

• Brest (13.sæti) vs Real Madrid (16.sæti)

• Dina­mo Za­greb (26.sæti) vs Milan (6.sæti)

• Girona (31.sæti) vs Arsenal (3.sæti)

• Internaziona­le (4.sæti) vs Monaco (10.sæti)

• Juventus (17.sæti) vs Ben­fi­ca (21.sæti)

• Lil­le (12.sæti) vs Feyenoord (11sæti)

• Manchester City (25.sæti) vs Club Brug­ge (20.sæti)

• PSV (19.sæti) vs Liver­pool (1.sæti)

• Red Bull Salz­burg (34.sæti) vs Atlético Madrid (5.sæti)

• Stur­m Graz (33.sæti) vs RB Leipzig (30.sæti)

• Sporting CP (23.sæti) vs Bologna (28.sæti)

• VfB Stutt­gart (24.sæti) vs Paris Saint-Germain (22.sæti)

• Young Boys (36.sæti) vs Cr­vena zvezda (32.sæti)

Baráttan um beint sæti í sex­tán liða úr­slitin (Topp átta):

Það gæti margt breyst varðandi það hvaða lið tryggja sér eitt af efstu átta sætum deildarinnar en þar eru aðeins topp tvö lið deildarinnar, Liver­pool og Barcelona, sem hafa nú þegar gull­tryggt sér eitt af topp átta sætunum og þar með far­miða í sex­tán liða úr­slitin. Það skýrist í kvöld hvort þessara liða endar deildar­keppnina á toppnum.

Liverpool hefur unnið alla leiki sína til þessa í Meistaradeildinni og er öruggt með sæti í sextán liða úrslitunumGetty

Arsenal er svo gott sem búið að tryggja sér sæti í sex­tán liða úr­slitunum en gull­tryggir sig áfram með að minnsta kosti jafn­tefli gegn Girona á Spáni í kvöld en þó ber þess að geta að að sökum mjög svo hagstæðrar markatölu og þeirrar stað­reyndar að núverandi lið í áttunda sæti er með þremur stigum minna en læri­sveinar Arteta eru allar líkur á því að liðið sé samt öruggt með sæti í átta liða úr­slitum þrátt fyrir að það tapi í kvöld.

Hvað önnur lið í topp átta sætum deildarinnar varðar eru það Inter Milan, At­letico Madrid, Bayer Le­verku­sen AC Milan sem eiga hvað mestan töl­fræði­legan mögu­leika sam­kvæmt Opta á að tryggja sér eitt af topp átta sætunum. Inter Milan nægir jafn­tefli gegn Mónakó til þess að gera það á meðan að At­letico Madrid og AC Milan gætu þurft sigur til þess að verða sér út um beinan far­miða í sex­tán liða úr­slitin.

Bayer Le­verku­sen hangir í áttunda sætinu á markatölu sem stendur og sigur gegn Spörtu Prag í kvöld ætti að fara langt með að tryggja liðinu eitt af efstu átta sætunum. Á meðan hanga bestu vonir Aston Villa í níunda sætinu á því að liðið klári sitt gegn Celtic á heima­velli og að Atalanta tapi stigum gegn Barcelona á sama tíma.

Hákon Arnar átti góðan leik í liði Lille sem mátti þó þola naumt tap gegn Liverpool í síðustu umferð.EPA-EFE/ADAM VAUGHAN

Lið neðar í töflunni sem eiga enn töl­fræði­legan mögu­leika, sem er þó í sumum til­fellum nær óhugsan­legur, á að ná í eitt af topp átta sætunum eru eftir­farandi: Mónakó (Frakk­land), Feyenoord (Holland), Lil­le (Frakk­land), Brest (Frakk­land), Borussia Dort­mund (Þýska­land), Bayern Munchen (Þýska­land), Real Madrid (Spánn), Juventus (Ítalía), Celtic (Skot­land), PSV Eind­hoven (Holland), Club Brug­ge (Belgía).

Af þessum liðum eru lið Lil­le, með ís­lenska lands­liðs­manninn Há­kon Arnar Haralds­son innan­borðs, talið lík­legast, sam­kvæmt út­reikningum tölfræðiveitunnar OPTA, til þess að geta mögu­lega skotið sér í eitt af topp átta sætunum. Lil­le tekur á móti Feyenoord í kvöld en liðin sitja í tólfta og þrettánda sæti með þrettán stig. Lil­le myndi þurfa sigur gegn Feyenoord sem og treysta á að önnur úr­slit falli sér í vil.

Baráttan um um­spilssæti (9. – 24.sæti) - City í hættu

Flestra augu verða á Manchester City í kvöld. Liðinu hefur gengið herfi­lega hingað til í Meistara­deildinni. Manchester City er sem stendur í 25.sæti Meistara­deildarinnar með átta stig og þarf að vinna Club Brug­ge á heima­velli í kvöld til þess að tryggja sér sæti í um­spili fyrir sex­tán liða úr­slit deildarinnar. 

Það er pressa á City fyrir lokaumferðinaVísir/Getty

Allt annað en sigur sér til þess að Manchester City fellur úr leik. Sigur gull­tryggir sömu­leiðis sæti liðsins í um­spilinu þar sem að með sigri á Club Brug­ge færi Manchester City alltaf yfir belgíska liðið sem er sem stendur í 20.sæti með þremur stigum meira en Manchester City en verri markatölu.

Það er þýska liðið Stutt­gart sem situr í síðasta um­spilssætinu fyrir loka­um­ferðina (24.sæti) og í kvöld taka þeir þýsku á móti franska stór­liðinu Paris Saint-Germain (22.sæti). Stutt­gart er með tveggja stiga for­skot á liðin fyrir neðan sig en gæti sloppið með tapi í kvöld fari svo að bæði Manchester City og Dina­mo Za­greb tapi stigum. Jafn­tefli gæti nægt þeim en sigur gerir það svo sannar­lega. Á sama tíma nægir PSG jafn­tefli til að tryggja sér um­s­spilssæti en fari allt á versta veg gæti liðið fallið úr leik.

Meistaradeildarmessan, í umsjón Guðmundar Benediktssonar, hefst klukkan hálf átta á Stöð 2 Sport 2 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×