Neytendur

Fólk muni eiga meira eftir í buddunni um mánaða­mótin

Bjarki Sigurðsson skrifar
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka.
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Vísir/Vilhelm

Með nýjum uppgangstíma í hagkerfinu styrkist staða heimilanna verulega, samkvæmt Þjóðhagsspá Íslandsbanka. Aðalhagfræðingur bankans segir marga munu finna fyrir því að eiga aukið afgangs fé um mánaðamótin. 

Hreinn auður heimilanna er í hæstu hæðum og er eiginfjár- og skuldastaða þeirra mjög góð. Jón Bjarki Bentsson, yfirhagfræðingur Íslandsbanka, segir heimilin hafa sýnt meiri ráðdeild undanfarna mánuði. Þau hafi haft hægt um sig í einkaneyslu, þrátt fyrir að kaupmáttur hafi aukist.

„Þau eiga orðið talsverðan uppsafnaðan sparnað, það eru horfur á að laun hækki hraðar en verðbólga allan spátímann, og þetta ætti að gefa heimilunum svigrúm til að bæta sín kjör á heildina litið. Leyfa sér meira, án þess að steypa sér í skuldir,“ segir Jón Bjarki. 

Fólk muni strax finna fyrir þessu um mánaðamótin.

„Það verður einfaldlega aðeins meira eftir af mánaðarlaununum í buddunni þegar útgjöld heimilisins hafa verið greidd. Ég tala nú ekki um þegar vaxtabyrðin fer hægt og rólega að léttast líka af íbúðalánum. Hjá allflestum ætti þessi róður við að halda jafnvægi í heimilisbókhaldinu að léttast hægt og bítandi bæði í ár og næstu ár þar á eftir,“ segir Jón Bjarki. 

Útflutningstekjur muni aukast á næstu árum, sérstaklega vegna mikils vaxtar í hugverkaiðnaði og fiskeldi.

„Þetta er allt frá lyfjaframleiðslu, til lækningavara á fiskroði, yfir í tölvuleikjaiðnaðinn og þjónustu við kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerð og útflutning á svoleiðis efni. Þegar við tökum þetta allt saman erum við komin í yfir þrjú hundruð milljarða í útflutningstekjur frá þessum geira, sem er stærðargráða á stærð við sjávarútveg og ál. Vöxturinn þarna verður trúlega umtalsvert hraðari en í þeim tveimur greinum og hjá ferðaþjónustunni,“ segir Jón Bjarki. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×